Skattbyrði millitekjuhópa gæti orðið meiri Óli Kristján Ármannsson skrifar 19. maí 2015 07:00 Hjá skattinum. Miðað við breytingar á tekjuskattkerfinu sem teiknaðar eru upp í Vísbendingu yrðu engar breytingar hjá fólki með um 400 þúsund krónur í mánaðarlaun, en þeir sem hefðu hærri tekjur greiddu meiri skatta eftir breytingu. Fréttablaðið/Anton
Hækki laun allra hópa um meira en fjögur prósent í yfirstandandi kjarasamningum, um leið og kynntar yrðu til sögunnar skattkerfisbreytingar með hækkuðum persónuafslætti sem færi stiglækkandi með auknum tekjum, þá myndu ráðstöfunartekjur allra hópa aukast. Þetta kemur fram í umfjöllun efnahagsritsins Vísbendingar um eina mögulega útfærslu slíkra skattkerfisbreytinga. Í dæminu er gert ráð fyrir að skattleysismörk verði færð upp í 160 þúsund krónur á mánuði, skattprósentur yrðu óbreyttar frá því sem nú er, en persónuafslátturinn yrði breytilegur eftir tekjum. „Hækkun persónuafsláttar er mjög dýr aðgerð. Þess vegna hefur sú hugmynd verið sett fram að breyta afslættinum þannig að hann fari stiglækkandi með tekjum,“ segir í Vísbendingu. Lágtekjufólk myndi njóta hans að fullu, en hátekjufólk fengi engan persónuafslátt. „Með þessu móti fer breyting á afslættinum ekki til þeirra sem hæst hafa launin.“Gert er ráð fyrir að fyrir tekjur undir 309.140 krónum verði persónuafslátturinn 59.680 krónur, sem samsvari 160 þúsund króna skattleysismörkum. „Afslátturinn fari svo jafnt lækkandi niður í núll við 1.200 þúsund krónur.“Áhrifin eru sögð þau að skattar þeirra sem lægst hafi launin lækki, en þegar komið sé í tekjur aðeins yfir millitekjum, sem nú séu á bilinu 350 til 400 þúsund krónur á mánuði, þá hækki skattbyrðin.„Ráðstöfunartekjur þeirra sem eru með um 200 þúsund krónur á mánuði myndu hækka um fjögur prósent við þessa breytingu, en ráðstöfunartekjur þeirra sem eru með tekjur um 700 þúsund myndu lækka um nálægt þrjú prósent,“ segir í Vísbendingu. „Breytingin er fyrst og fremst tilfærsla á skattbyrðinni frá þeim sem minnst hafa launin til hinna sem hafa meiri tekjur.“Í Vísbendingu er tekið fram að tímaritið felli ekki um það nokkurn dóm hvort leiðin sé snjöll eða heppileg. „Mat manna á því fer eflaust eftir því hvar menn lenda á tekjuskalanum, en persónuafsláttur af þessu tagi myndi jafna ráðstöfunartekjur í samfélaginu.“
Mest lesið Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Innlent Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Innlent Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Hló að svari sambýliskonunnar Innlent Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Innlent Fleiri fréttir Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Lögmenn fagna niðurstöðu EFTA-dómstólsins Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Umferðarslys við Nýbýlaveg í Kópavogi Gæsluvarðhald sonar þingmannsins aftur framlengt Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Hló að svari sambýliskonunnar Tilboð hrikalega hátt yfir kostnaðaráætlun Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Möguleg tengsl við heilabilun Skora á borgina að afturkalla uppsagnir á samningum við listamenn Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn „Enn ein vondu tíðindin af þessu máli“ Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Verðbólga, uppsagnir og mikil notkun svefnlyfja Forstjórar leita lausna Fulltrúi prentara vill verða forseti ASÍ Sýklalyfjanotkun í dýrum jókst um rúm tuttugu prósent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ „Dýr geta augljóslega ekki sjálf leitað réttar síns“ Segir upp eftir tvær vikur í starfi Lægð upp að landinu og önnur dýpri á morgun Tólf með réttarstöðu sakbornings vegna andláts á Stuðlum Einn stöðvaður sem var að „drifta“ á hringtorgi Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Sjá meira