Ráðum engu um verðmyndun í milljarða afurðaflokki svavar hávarðsson skrifar 18. maí 2015 07:00 Vestmannaeyingar taka á móti miklu magni til bræðslu árlega. fréttablaðið/óskar
Sölumálum á fiskimjöli og lýsi á Íslandi gæti verið betur borgið á hendi öflugra sölusamtaka. Þrátt fyrir mikla framleiðslu ræður Ísland engu um verðmyndun mjöls og lýsis á heimsmarkaði. Samþjöppun fyrirtækja á fáar hendur í Skandinavíu hafa fætt af sér risafyrirtæki sem setja verðið fyrir íslenska framleiðendur. Á þetta bendir Jens Garðar Helgason, framkvæmdastjóri Fiskimiða og formaður Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi, en hagsmunirnir eru miklir. Á árunum 2011 til 2013 voru útflutningsverðmæti mjöls og lýsis um 110 milljarðar króna eða 12 til 16% af útflutningsverðmætum sjávarútvegsins í heild.Jens Garðar Helgason„Ef Pelagia setur verð á skandinavíska markaðnum þá er voðalega lítið sem við getum hreyft það til hefðbundinna kaupenda okkar, svo dæmi sé tekið,“ segir Jens Garðar og vísar til norska sjávarútvegsfyrirtækisins Pelagia sem á orðið allan fiskimjöls- og lýsisiðnaðinn í Noregi. Fyrirtækið er einnig búið að kaupa upp verksmiðjur í Danmörku, og hefur tryggt sér allar verksmiðjurnar í Bretlandi og á Írlandi. Í dag á Pelagia níu af tíu fiskimjölsverksmiðjum landanna og rekur sextán uppsjávarfrystihús. Fimm fyrirtæki annast sölu á mjöli og lýsi frá Íslandi, en verksmiðjurnar eru ellefu talsins. „Ég hef talað fyrir því að Íslendingar skoði sölumálin sameiginlega því eins og málum er háttað í dag erum við algjörir verðþegar á markaðnum. Það er kominn tími til að setjast niður og skoða hvort Íslendingar geti unnið betur saman og komið fram sem sterkari heild í sölumálum á alþjóðavísu,“ segir Jens Garðar.Blikur á lofti á mjöl- og lýsismarkaði Fréttir berast nú af því að veðurfyrirbrigðið El Niño, sem í mikið einfaldaðri mynd stendur fyrir miklum frávikum í sjávarhita í austanverðu Kyrrahafi, sé líklegt til að hafa meiri áhrif en mörg undanfarin ár, en við þessu varar m.a. bandaríska haf- og loftslagsstofnunin (NOAA).Lengi voru fréttir sem þessar jákvæðar, enda hrynur jafnan veiði á ansjósu í Perú í kjölfarið, en þeir eru langstærstu mjöl- og lýsisframleiðendur heims og byggja á þeim veiðum. Verð á afurðum annarra framleiðenda hækkar jafnan í kjölfarið, en breytingar á undanförnum árum í fóðurframleiðslu benda til að fréttirnar nú séu sætsúrar. Til að mæta minna framboði af mjöli og lýsi hafa fóðurframleiðendur minnkað innihald mjöls og lýsis í uppskriftum sínum. Þeir hafa farið úr 35-50% niður í 8-12%, og stefna á 5-6% innihald. Með þessu verja fóðurframleiðendur sig líka fyrir miklum sveiflum í veiðum og gegn verðsveiflum með því að leita í sojamjöl og repjuolíu í staðinn.
Mest lesið Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Innlent Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Innlent Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Hló að svari sambýliskonunnar Innlent Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Innlent Fleiri fréttir Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Lögmenn fagna niðurstöðu EFTA-dómstólsins Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Umferðarslys við Nýbýlaveg í Kópavogi Gæsluvarðhald sonar þingmannsins aftur framlengt Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Hló að svari sambýliskonunnar Tilboð hrikalega hátt yfir kostnaðaráætlun Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Möguleg tengsl við heilabilun Skora á borgina að afturkalla uppsagnir á samningum við listamenn Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn „Enn ein vondu tíðindin af þessu máli“ Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Verðbólga, uppsagnir og mikil notkun svefnlyfja Forstjórar leita lausna Fulltrúi prentara vill verða forseti ASÍ Sýklalyfjanotkun í dýrum jókst um rúm tuttugu prósent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ „Dýr geta augljóslega ekki sjálf leitað réttar síns“ Segir upp eftir tvær vikur í starfi Lægð upp að landinu og önnur dýpri á morgun Tólf með réttarstöðu sakbornings vegna andláts á Stuðlum Einn stöðvaður sem var að „drifta“ á hringtorgi Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Sjá meira