VR stefnir ríkinu vegna breytinga á atvinnuleysisbótum Stefán Árni Pálsson skrifar 8. janúar 2015 11:49 Ólafía B. Rafndóttir, formaður VR.
VR hefur stefnt íslenska ríkinu vegna breytinga á lögum um atvinnuleysistryggingar sem komu til framkvæmda um áramótin en þetta kemur fram í tilkynningu frá VR. Stefnan var lögð fram í Héraðsdómi Reykjavíkur þann 2. janúar sl. og hefur félagið óskað eftir flýtimeðferð. Ólafía B. Rafnsdóttir, formaður VR, segir félagið ekki hafa séð annan kost í stöðunni en höfða mál til að fá ákvörðun ríkisins um lagabreytingarnar hnekkt.Eins og Fréttablaðið greinir frá í dag þá ætlar einn af þeim rúmlega 500 atvinnuleitendum sem hefur verið ýtt út af bótaskrá vegna nýrrar lagasetningar um styttri bótatíma ætlar að sækja rétt sinn. VR telur að íslenska ríkinu hafi verið óheimilt að skerða rétt félagsmanna til atvinnuleysisbóta með því að stytta bótatímabilið um sex mánuði, eins og gert var með breytingum á lögum um atvinnuleysistryggingar. „Skerðing á bótarétti atvinnuleysistrygginga, með nær engum fyrirvara, kippir fótunum undan fjölda félagsmanna VR. Okkar hlutverk er að verja réttindi félagsmanna og gæta hagsmuna þeirra. Ábyrgð okkar er skýr, við sáum engan annan kost í stöðunni en höfða mál til að fá þessari ákvörðun hnekkt,“ segir Ólafía, formaður VR og varaforseti ASÍ. Ólafía bendir á að árið 2006, þegar bótatímabilið var stytt úr fimm árum í þrjú, hafi löggjafinn séð til þess að atvinnulausum var gefinn aðlögunartími þannig að ekki kæmi til afturvirkrar skerðingar. Svo sé ekki raunin nú. Félagsmenn VR eru um þrjátíu þúsund, af þeim voru tæplega eitt þúsund á atvinnuleysisskrá um áramótin. Ólafía bendir á að 81 félagsmaður VR hafi misst rétt til atvinnuleysisbóta þann 1. janúar sl. en alls hafi um 500 einstaklingar misst bótaréttinn um áramótin þegar litið er til vinnumarkaðarins í heild sinni. Í stefnunni bendir VR á að breytingar á lögum um atvinnuleysistryggingar, sem tóku gildi þann 1. janúar sl., hafi ekki verið í samræmi við meginreglur stjórnskipunar um réttaröryggi og fyrirsjáanleika. Eignaréttur þeirra sem þegar fá atvinnuleysisbætur hafi verið skertur með afturvirkum og ólögmætum hætti og gengið hafi verið gegn réttaröryggi þeirra. Lagasetningin hafi verið byggð á ómálefnalegum forsendum og ekki verið gætt meðalhófs. Með því að höfða mál er ætlun félagsins að koma í veg fyrir að breytingarnar gildi um félagsmenn VR. Hér að neðan er stiklað á stóru um helstu málsástæður.Brot gegn stjórnarskrá Réttur til aðstoðar vegna atvinnuleysis er meðal grundvallarréttinda í stjórnarskránni þar sem segir að með lögum skuli tryggja öllum sem þess þurfa rétt til aðstoðar. Íslenska ríkið hefur ekki frjálst mat um hvernig og hversu mikil aðstoð er veitt vegna atvinnuleysis og er óheimilt að ákveða að réttinum til atvinnuleysisbóta sé breytt á ósanngjarnan, íþyngjandi og afturvirkan hátt. VR telur að breytingarnar á lögunum um atvinnuleysistryggingar gangi gegn 76. gr. stjórnarskrár Íslands.Eignaréttindi skert Í tilkynningunni segir að áunnin réttindi til greiðslna teljast eign sem njóti verndar eignaréttarákvæðis stjórnarskrárinnar. „Þeir, sem þegar hafa fengið atvinnuleysisbætur á grundvelli þeirrar forsendu að rétturinn sé til allt að þriggja ára, eiga rétt á því að þær forsendur haldist. Það er mat VR að réttindi þeirra sem fengu atvinnuleysisbætur við gildistöku laganna 1. janúar 2015 hafi verið skert með óstjórnskipulegum hætti enda var skilyrðum fyrir skerðingu ekki fullnægt,“ segir í tilkynningu VR. Ástæður breytinganna eru að lækka eigi útgjöld ríkissjóðs. „Þær ástæður réttlæta ekki að mati VR svo íþyngjandi og afturvirkar skerðingar sem hér um ræðir. Atvinnuleysistryggingasjóður er fjármagnaður með atvinnutryggingagjaldi. Ekkert liggur fyrir um að tryggingagjald hafi hætt að duga fyrir rekstri sjóðsins og bendir raunar allt til hins gagnstæða. Stjórnvöld hafa ekki sýnt fram á nein tengsl milli skerðingarinnar og málefnalegra ástæðna þannig að réttlæta megi skerðingu þeirra hagsmuna sem sjóðnum er ætlað að tryggja.“Ónógur fyrirvari og engin aðlögun Almennt má gera ráð fyrir því að í lagasetningu sé gætt að réttaröryggi, fyrirsjáanleika og stöðugleika. „Að mati VR eru breytingarnar á lögunum verulega íþyngjandi gagnvart fjölda fólks og því verður að gera þá kröfu til ríkisins að haga gildistöku þeirra þannig að einstaklingar hafi raunhæft tækifæri til að gera viðeigandi ráðstafanir og gæta hagsmuna sinna. Svo var ekki í þessu tilfelli, að mati VR.“
Mest lesið Faðirinn í hungurverkfalli í lokaðri móttökustöð og móðirin ein með börnin Innlent „Fyrst og fremst er verið að hafna oddvitanum“ Innlent Ungir Sjálfstæðismenn fengu áfengi í ferð með Vilhjálmi og fóru svo á kjörstað Innlent Maðurinn er fundinn Innlent Icelandair aflýsir flugferðum Innlent Munaði litlu að nýliði skákaði borgarstjóra Innlent Þjóðvarðlið virkjað eftir að ICE skaut mann til bana Erlent Skotinn til bana: Myndefnið þvert á orð ráðherrans Erlent Fyrrverandi yngsti þingmaður sögunnar skiptir um flokk og fer fram Innlent Gripnir á 165 á áttatíu götu og á 157 á sextíu götu Innlent Fleiri fréttir Ungir Sjálfstæðismenn fengu áfengi í ferð með Vilhjálmi og fóru svo á kjörstað Loðna fundist á stóru svæði Metfjöldi vill stíga á svið með Íslenska dansflokknum Faðirinn í hungurverkfalli í lokaðri móttökustöð og móðirin ein með börnin Aðeins tíu prósent sem leita til Stígamóta kæra ofbeldið Spyr hvort að Rúv finnist hún „hundleiðinleg t***a“ „Örstutt þunglyndi yfir niðurstöðunum“ Maðurinn er fundinn Kerfið hafi brugðist Sjálfstæðismenn mynda bandalag á Akureyri Sundabraut og Fljótagöng verkefni innviðafélagsins Háværar flugvélar sem vöktu athygli í gær voru á æfingu „Fyrst og fremst er verið að hafna oddvitanum“ Fyrrverandi yngsti þingmaður sögunnar skiptir um flokk og fer fram Heiðu hafnað og fjöldi niðurfellinga heimilisofbeldismála hjá lögreglu Segir Heiðu hafa átt betra skilið Icelandair aflýsir flugferðum Fyrrverandi ráðherrar ræða alþjóðamálin Gripnir á 165 á áttatíu götu og á 157 á sextíu götu Tvö pör handtekin grunuð um líkamsárásir Munaði litlu að nýliði skákaði borgarstjóra Stóra verkefnið að vinna aftur traust borgarbúa Gríðarleg vonbrigði að reyndri konu sé ekki treyst Pétur Marteinsson kjörinn oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavík Samfylkingin valdi sér borgarstjóraefni Valið á milli gömlu og nýju Samfylkingarinnar Gullhúðað afnám jafnlaunavottunar Tvöfalt fleiri aldraðir leituðu hjálpar vegna ofbeldis Vandræðagangur með skilaboð á versta tíma fyrir Heiðu Leita að öðrum til að taka við Ísafjarðarfluginu Sjá meira