Vekja athygli á einhverfu viktoría hermannsdóttir skrifar 7. apríl 2015 07:15 Grunur kviknaði á leikskólanum vegna þess að Sveinn Gauti sýndi nokkur einkenni sem gætu átt við einhverfu. Þórhildur viðurkennir að það hafi verið áfall að fá þessa greiningu. Fréttablaðið/Valli
Blár apríl, vitundarvakning um einhverfu, er nú haldinn í annað sinn af Styrktarfélagi barna með einhverfu. „Félagið var stofnað fyrir tveimur árum, við tókum fyrsta árið til að undirbúa og í fyrra héldum við í fyrsta skipi Bláan apríl, þá var aðalmálið að koma þessu málefni á framfæri. Það kom okkur á óvart hvað þetta gekk vel í fyrra. Yfir allt árið söfnuðum við fé sem gerði okkur kleift að kaupa sérkennslugögn fyrir alla grunnskóla í landinu fyrir fjórar og hálfa milljón króna,“ segir Ragnhildur Ágústsdóttir formaður stjórnar félagsins. Ragnhildur á tvo einhverfa drengi, 5 og 8 ára. Þórhildur Birgisdóttir er einnig í stjórn félagsins en sonur hennar, Sveinn Gauti sjö ára, greindist með einhverfu í kringum tveggja ára aldur. „Það var leikskólinn sem kveikti á perunni, við erum ótrúlega þakklát þeim fyrir að vera vel vakandi. Þetta var okkar fyrsta barn og við höfðum ekkert að miða við. Þó að ég hafi mikið verið í kringum börn þá var ég algjörlega grunlaus,“ segir Þórhildur. Grunur kviknaði á leikskólanum vegna þess að, Sveinn Gauti, sýndi nokkur einkenni sem gætu átt við einhverfu. Þórhildur viðurkennir að það hafi verið áfall að fá þessa greiningu. „Ég held að öllum foreldrum bregði við að heyra svona. Þetta var sannarlega áfall og okkur brá mjög enda vissum við lítið um einhverfu.“ Hún segir þau hafa verið þakklát fyrir hversu fljótt hann greindist. Hann fékk svokallaða forgreiningu og því var hægt að fara vinna strax með þau atriði sem þurfti aðleggja áherslu á. Í dag er Sveinn Gauti í Álfhólsskóla í Kópavogi í almennum bekk en einnig einhverfudeild. Að sögn Þórhildar gengur honum vel að fóta sig. Auk þess er hann að æfa handbolta og tennis. „Það er áskorun fyrir hann að vera í handboltanum. Honum finnst það gaman en getur verið tapsár. Það er algengt hjá börnum með einhverfu, að eiga erfitt með að tapa eða skipta á milli. Við höfum unnið með það síðan hann var lítill.“ Þórhildur segir mikilvægt að fólk sé vakandi fyrir einkennum svo að hægt sé að greina einhverfuna sem fyrst. „Það eru svo margir sem fara í afneitun. Það skiptir miklu máli að fólk loki ekki á þetta og það sé greint eins snemma og hægt er. Þannig að ef það vaknar grunur þá að bregðast við því.“ Í ár er safnað fyrir námskeiðahaldi, annars vegar til þess að geta haldið námskeið fyrir foreldra nýlega greindra barna á einhverfurófi og félagsfærninámskeið fyrir einhverf börn. Fjölmargar byggingar verða lýstar upp í bláu í tilefni af átakinu sem nær hápunkti 10. apríl. Þá eru allir hvattir til þess að klæðast bláu í tilefni dagsins. Hægt er að leggja söfnuninni lið með því að hringja í 902-1010 og gefa þúsund krónur.
Mest lesið Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Maðurinn sem sóttur var í Glerárdal er látinn Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Bongóblíða um nánast allt land og rofar til í borginni um stund Veður Halldór Árni Sveinsson er látinn Innlent Minnstu munaði að harður árekstur yrði: „Hefði ég ekki bremsað væri hann dáinn“ Innlent Atli sagður milliliðurinn í Straumsvíkurmálinu Innlent „Galið að komast að þessari niðurstöðu“ Innlent Rúmlega 50 heimili horfin í stórbruna í Drammen Erlent Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Innlent Fleiri fréttir „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Kvöldfréttir Sýnar í beinni Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Sveitarfélögin óþreyjufull og krefjast svara frá ráðherrum Fiskibátur varð aflvana við Stykkishólm Vegabréfsgjaldið hækkaði um fimm þúsund milli ára „Galið að komast að þessari niðurstöðu“ Krefjast lögbanns við laxveiðum Iðufólks í Stóru-Laxá Telur bikblæðingu hafa valdið brunanum Fólk eigi að hugsa sig tvisvar um ef því er ekki hleypt inn á heimilið Þyrla Gæslunnar kölluð út á Landmannaleið Segir gríðarlegt álag á miðakaupendum í sumar Vilji til að framlengja ETS sérlausn og hvalveiðar brutu ekki gegn lögum Íslendingur reyndi að smygla milljónum í reiðufé frá Grænlandi Maðurinn sem sóttur var í Glerárdal er látinn Hálftíma dauðastríð ekki talið brot á lögum um velferð dýra Halldór Árni Sveinsson er látinn Atli sagður milliliðurinn í Straumsvíkurmálinu Krefjast tæps milljarðs af félagi Bergþórs Minnstu munaði að harður árekstur yrði: „Hefði ég ekki bremsað væri hann dáinn“ Maður á áttræðisaldri dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir nauðgun Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Þyrla og björgunarsveitir kallaðar út í Eyjafirði „Imprað á því að við séum ekki baðhús og verðum aldrei baðhús“ „Ég væri hikandi að hafa börnin mín hjá mér“ Bæjarstjóri í beinni, gusumeistari sem biðlar til yfirvalda og sirkus Vísað á brott af hjúkrunarheimilinu í annarlegu ástandi Sjá meira