Orðalag á vefsíðu gjaldþrotaskipti.is talið rangt og villandi Nadine Guðrún Yaghi skrifar 1. apríl 2015 12:00 Guðmundur Ásgeirsson VÍSIR/VALLI „
Þeir virðast hafa dregið þetta til baka hálfa leið í stað þess að breyta villandi og röngu orðalagi alveg,“ segir Guðmundur Ásgeirsson, lögfræðinemi og erindreki hjá Hagsmunasamtökum heimilanna, um orðalag á vefsíðunni gjaldþrotaskipti.is. Síðan auglýsir meðal annars aðstoð vegna gjaldþrotaskipta. Í kjölfar frumkvæðisathugunar Neytendastofu í desember var orðalagi á síðunni breytt. Athugunin var gerð vegna kvörtunar frá Hagsmunasamtökum heimilanna sem sneri að því að gefnar væru upp rangar og villandi upplýsingar. Fullyrt var að um síðustu áramót myndu lög um fyrningarfrest við gjaldþrot breytast, en fyrir þeirri fullyrðingu var enginn fótur þar sem forsætisráðherra tók það fram í stefnuræðu sinni að fyrningarfrestur myndi áfram vera tvö ár. Guðmundur segir að þrátt fyrir breytt orðalag sé greinilega enn verið að reyna að kveikja þá hugmynd að stuttur fyrningarfrestur muni aðeins standa til boða tímabundið og því sé skammur tími til að nýta styttan frestinn. „Þetta er ekki rétt. Þeir nota þetta orðalag bara sem tæki til að veiða til sín viðskipti,“ segir Guðmundur og bætir við að þeir kveiki þá hugmynd hjá fólki í fjárhagserfiðleikum að það sé tímapressa. „Þannig spila þeir með örvæntingafullt fólk sem á undir högg að sækja.“ Samkvæmt upplýsingum frá Neytendastofu verður metið hvort tilefni sé til athugunar að nýju vegna viðskiptahátta vefsíðunnar sem er í eigu Sigma bókhalds sf.
Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Innlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent Tilkynnt um ölvaðan flugmann Innlent Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði Innlent „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Innlent Fleiri fréttir Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði ESA geti ekki beðið endalaust Valgerður réttir fram sáttahönd Vill að Daði vísi til þess sem hún á að hafa sagt Tilkynnt um ölvaðan flugmann Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Konan sem lögreglan lýsti eftir er fundin Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Gera alvarlegar athugasemdir við málflutning Daða Skoðar uppfærslu í 36 sæta rafflugvél Neysla geðrofs-, tauga- og ofnæmislyfja stóraukist Dæmdur fyrir manndráp af gáleysi við Vík Innan við helmingur karla vill refsingar fyrir vændiskaup Árásin rannsökuð sem tilraun til manndráps Bein útsending: Hvernig birtast menntarannsóknir í opinberri umræðu? „Einn aðili sem hefur til þessa skilað auðu“ Telur ESA falla frá málsókn ef Alþingi samþykkir frumvarpið Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Tvöfalda makrílráðgjöf Ragnar Þór vissi ekkert og meirihluti karla vill ekki refsa fyrir vændiskaup Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Í mál gegn Íslandi fyrir vanefndir á bókun 35 Ein vél Fljótsdalsstöðvar úti „Ég er ógeðslega reiður“ Kröpp og djúp lægð og varasamar vindhviður Sjá meira