Kostnaður við ferðaþjónustu fatlaðra í Hafnarfirði jókst um hundrað prósent Kristjana Björg Guðbrandsdóttir skrifar 27. mars 2015 07:00 Haraldur L. Haraldsson ítrekar að þjónusta við fatlaða verði ekki skert en segir kostnaðarauka grafalvarlegt mál. Vísir/GVA
Þegar bornir eru saman reikningar vegna ferðaþjónustu fatlaðra í janúar og febrúar milli áranna 2014 og 2015 þá kemur fram kostnaðaraukning hjá Hafnarfjarðarbæ upp á 100 prósent. Þetta kemur fram í minnisblaði sem lagt var fram í bæjarráði Hafnarfjarðar. „Þetta er grafalvarlegt mál fyrir okkur,“ segir Haraldur L. Haraldsson, bæjarstjóri Hafnarfjarðar. Í janúar 2014 var kostnaður við ferðaþjónustu fatlaðra sjö milljónir króna en árið 2015, eftir að Strætó Bs. hafði tekið við rekstrinum, 14 milljónir. „Við gerðum ekki ráð fyrir þessum kostnaðarauka í fjárhagsáætlunum okkar. Ég vil leggja áherslu á að við ætlum ekki að skerða þjónustuna, henni verður haldið uppi, hins vegar mun ég skrifa bréf til forstjóra Strætó og óska eftir viðræðum um þetta mál. Þetta samtal þarf að fara fram, það er ekki bara hægt að senda okkur reikninginn. Við erum ekki með opið ávísanahefti,“ segir Haraldur og segir málið að sjálfsögðu einkennilegt því Hafnarfjarðarbær sé einn eigenda Strætó. Sveitarfélögin gerðu samning við Strætó í maí 2014 um yfirtöku fyrirtækisins á akstursþjónustu fatlaðra. Gerð var sú krafa að ákveðin skilyrði yrðu uppfyllt til þess að farið yrði í samvinnu vegna ferðaþjónustunnar: Heildarkostnaður við þjónustuna og meðalverð fyrir hverja ferð skyldi vera lægra án þess að þjónustan skertist. Markmiðið var sparnaður. Nú er komið í ljós að niðurstaðan fyrir Hafnarfjarðarbæ er andstæð því sem stefnt var að. Kostnaðaraukningin er svo mikil við breytingarnar á þjónustunni að Haraldi hefur verið falið að taka upp viðræður við Strætó um kostnaðinn, hvað sé gert ráð fyrir að hann verði mikill út árið og hvernig verði farið með kostnaðaraukann. Í minnisblaði um ástæður kostnaðaraukans segir að svo virðist sem innra skipulag hafi ekki verið nægilega undirbúið með þeim afleiðingum að verkefnið riðlaðist allt. Þetta hafi orsakað „endalausar óhagkvæmari og dýrari lausnir“. Verkefnið hefur aðeins verið starfrækt í rúma tvo mánuði og reiknar bæjarráð með að kostnaður muni fara lækkandi þegar starfsmenn hafa náð tökum á verkefninu og kerfið verður farið að virka eins og til var ætlast.
Mest lesið Segir erfitt að horfa upp á nágranna missa aleiguna Erlent „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Innlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Rúmlega 50 heimili horfin í stórbruna í Drammen Erlent Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent „Galið að komast að þessari niðurstöðu“ Innlent Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Innlent Maðurinn sem sóttur var í Glerárdal er látinn Innlent Halldór Árni Sveinsson er látinn Innlent Fleiri fréttir „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Kvöldfréttir Sýnar í beinni Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Sveitarfélögin óþreyjufull og krefjast svara frá ráðherrum Fiskibátur varð aflvana við Stykkishólm Vegabréfsgjaldið hækkaði um fimm þúsund milli ára „Galið að komast að þessari niðurstöðu“ Krefjast lögbanns við laxveiðum Iðufólks í Stóru-Laxá Telur bikblæðingu hafa valdið brunanum Fólk eigi að hugsa sig tvisvar um ef því er ekki hleypt inn á heimilið Þyrla Gæslunnar kölluð út á Landmannaleið Segir gríðarlegt álag á miðakaupendum í sumar Vilji til að framlengja ETS sérlausn og hvalveiðar brutu ekki gegn lögum Íslendingur reyndi að smygla milljónum í reiðufé frá Grænlandi Maðurinn sem sóttur var í Glerárdal er látinn Hálftíma dauðastríð ekki talið brot á lögum um velferð dýra Halldór Árni Sveinsson er látinn Atli sagður milliliðurinn í Straumsvíkurmálinu Krefjast tæps milljarðs af félagi Bergþórs Minnstu munaði að harður árekstur yrði: „Hefði ég ekki bremsað væri hann dáinn“ Maður á áttræðisaldri dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir nauðgun Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Þyrla og björgunarsveitir kallaðar út í Eyjafirði „Imprað á því að við séum ekki baðhús og verðum aldrei baðhús“ „Ég væri hikandi að hafa börnin mín hjá mér“ Bæjarstjóri í beinni, gusumeistari sem biðlar til yfirvalda og sirkus Vísað á brott af hjúkrunarheimilinu í annarlegu ástandi Sjá meira