Þarf aukna fræðslu og úrræði fyrir þolendur viktoría hermannsdóttir skrifar 26. mars 2015 07:00 Helga hefur starfað sem ráðgjafi hjá Stígamótum í um ár og þar hefur hún hjálpað fötluðum fórnarlömbum ofbeldis auk þess að sinna fræðslu um málefnið. Hún segir þurfa að byrja á því að breyta þjónustu við fatlaða þannig þeir fái að taka þátt í samfélaginu á eigin forsendum. Fréttablaðið/GVA „
Allar rannsóknir sýna að fatlað fólk verður fyrir meira ofbeldi en aðrir,“ segir Helga Baldvins- og Bjargardóttir ráðgjafi hjá Stígamótum. Helga byrjaði að starfa hjá Stígamótum fyrir um ári og einbeitir sér sérstaklega að því að hjálpa fötluðum brotaþolum ofbeldis. Fréttablaðið sagði í gær frá nýrri rannsókn á ofbeldi gegn konum þar sem kemur fram að stuðning vanti fyrir brotaþola. Helga hefur starfað hjá Stígamótum í um ár en hún var ráðin sérstaklega inn til þess að hjálpa fötluðum þolendum ofbeldis. Á því ári sem Helga hefur starfað hjá Stígamótum hafa leitað til hennar um 30 fatlaðir þolendur ofbeldis en hún hefur einnig sinnt fræðslu um þessi mál víða. „Það er margt sem þarf að bæta en það mætti kannski byrja á þessu almenna. Það eru viðhorf gagnvart fötluðu fólki og hvernig við komum fram við það.“ Helga segir vanta verklagsreglur og úrræði. Það sé staðreynd að fatlaðir einstaklingar verði fyrir meira ofbeldi. „Við þurfum að fara að vinna út frá því, og móta verklag um hvernig við ætlum að bregðast við þegar fatlað fólk verður fyrir ofbeldi og hvað hægt er að gera til að fyrirbyggja það.“ Fræðsla er að mati Helgu lykilatriði og þá bæði hjá fötluðum einstaklingum og þeim sem með þeim starfa. „Það þarf að auka fræðslu um ofbeldi. Fræðslu um mörk, hvenær það má segja nei og hvað sé ofbeldi. Stundum veit fólk ekki að það er að verða fyrir ofbeldi.“ Það reynist oft erfiðara fyrir fatlað fólk að segja frá verði það fyrir ofbeldi. „Það gerir veruleikann oft flóknari fyrir fatlað fólk að sumir verða fyrir valdbeitingu, kúgun og niðurlægingu í daglegu lífi. Það er vant því að þurfa að láta alls konar yfir sig ganga og það er kannski það helsta sem við þyrftum að einbeita okkur að því að breyta. Hafa þjónustuna þannig að fólk fái meira um hana að segja og fái raunveruleg tækifæri til að taka þátt í samfélaginu á sínum forsendum,“ segir hún. Að sögn Helgu hefur umræðan um ofbeldi gegn fötluðu fólki opnast á undanförnum árum en að hennar mati þarf að efla vitundarvakningu í samfélaginu. „Svona er þetta og hvernig ætlum við að tækla það? Nú þurfum við að fara að bregðast við, búa í veruleikanum og hætta að ýta þessu á undan okkur eða gera lítið úr því.“
Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Innlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent Tilkynnt um ölvaðan flugmann Innlent Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði Innlent Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Innlent Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Vill að Daði vísi til þess sem hún á að hafa sagt Innlent Fleiri fréttir Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði ESA geti ekki beðið endalaust Valgerður réttir fram sáttahönd Vill að Daði vísi til þess sem hún á að hafa sagt Tilkynnt um ölvaðan flugmann Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Konan sem lögreglan lýsti eftir er fundin Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Gera alvarlegar athugasemdir við málflutning Daða Skoðar uppfærslu í 36 sæta rafflugvél Neysla geðrofs-, tauga- og ofnæmislyfja stóraukist Dæmdur fyrir manndráp af gáleysi við Vík Innan við helmingur karla vill refsingar fyrir vændiskaup Árásin rannsökuð sem tilraun til manndráps Bein útsending: Hvernig birtast menntarannsóknir í opinberri umræðu? „Einn aðili sem hefur til þessa skilað auðu“ Telur ESA falla frá málsókn ef Alþingi samþykkir frumvarpið Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Tvöfalda makrílráðgjöf Ragnar Þór vissi ekkert og meirihluti karla vill ekki refsa fyrir vændiskaup Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Í mál gegn Íslandi fyrir vanefndir á bókun 35 Ein vél Fljótsdalsstöðvar úti „Ég er ógeðslega reiður“ Kröpp og djúp lægð og varasamar vindhviður Sjá meira