Sátt náðist í deilu vegna sprenginga Ingibjörg Bára Sveinsdóttir skrifar 24. mars 2015 07:00 Sprengt í bakgarðinum. Hús Svanlaugar Rósar Ásgeirsdóttur er í sex metra fjarlægð frá þeim stað þar sem sprengt var fyrir bílakjallara fjölbýlishúss á Lýsisreitnum. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Mál íbúa í tveimur húsum við Grandaveg og Lágholtsveg í Reykjavík á hendur byggingafélaginu Þingvangi, undirverktakanum Hagtaki og Vátryggingafélagi Íslands vegna sprenginga á svokölluðum Lýsisreit hefur verið fellt niður, að sögn Tómasar Hrafns Sveinssonar lögmanns.Tómas Hrafn Sveinsson„Það náðist sátt í málinu í síðustu viku. Fallist var á að þeir bæru ábyrgð,“ segir Tómas sem er lögmaður íbúanna. Svanlaug Rós Ásgeirsdóttir, íbúi á Lágholtsvegi sem býr í aðeins sex metra fjarlægð frá þeim stað þar sem sprengt var, fagnar niðurstöðunni. „Þetta eru ánægjuleg tíðindi. Þetta hefur legið í loftinu,“ segir Svanlaug sem greindi í viðtali við Fréttablaðið í fyrra frá því að skemmdir hefðu orðið á húsi hennar vegna sprenginganna. Byrjað var að sprengja klöpp á Lýsisreitnum vegna fyrirhugaðrar byggingar fjölbýlishúss 6. janúar í fyrra og stóðu sprengingarnar yfir í tæpa þrjá mánuði. Í upphafi var sprengt fimm til sex sinnum á dag og sögðu íbúar í nágrenninu að í hvert skipti hefði allt nötrað og skolfið og að skemmdir hefðu orðið á húsum þeirra. Í kjölfar kvartana íbúa var magn sprengisefnis minnkað um helming nokkrum vikum eftir að sprengingar hófust.Svanlaug rós ÁsgeirsdóttirÍbúarnir voru ósáttir við þau svör tryggingafélags verktakans að það væri ekki skyldugt til að bæta skaðann nema um sök væri að ræða. Mat á tjóninu er nú framundan, að sögn lögmanns íbúanna. „Matsmaður metur hvort tjón hafi átt sér stað og hversu mikið það er og sá sem ber ábyrgð greiðir fyrir störf hans.“Björn Stefán HallssonBjörn Stefán Hallsson byggingarfulltrúi bjó í maí síðastliðnum til nýja reglu til notkunar innan borgarlóðarinnar. „Sprengjutíðni og sprengiafl var lækkað vegna þess að sú reglugerð um notkun sprengiefna sem stuðst er við er gríðarlega rúm og tekur lítið mið af mannlegum þáttum og viðbrögðum. Framkvæmdin getur verið innan leyfilegra efri marka þótt hún valdi skemmdum.“ Nú verður miðað við að hámark bylgjuhraða sé 15 mm á sekúndu að hámarki og 10 Hz að lágmarkstíðni. Skal mæling miðast við lóðarmörk framkvæmda. „Mesta sprengiafl á Lýsisreit var 69 mm á sekúndu. Langmestur meirihluti sprenginga var innan við 20 til 25 mm,“ segir byggingarfulltrúi. Hann segir nýju regluna hafa verið samþykkta á fundi umhverfis- og skipulagsráðs í maí. Íbúar á Grettisgötu 8 óttast að skemmdir geti orðið á bakhúsi á lóð þeirra verði sprengt fyrir grunnum húsa sem til stendur að flytja á Grettisgötu 9a og 9b. Björn Stefán Hallsson byggingarfulltrúi telur ólíklegt að sprengingar verði leyfðar á svæðinu. „Þarna er fjöldi gamalla húsa á gömlum sökklum í næsta nágrenni sem varhugavert er að lendi í titringi.“ Björn segir mun líklegra að notaðir verði fleygar. „Hávaðinn verður miklu minni og titringur lítill sem enginn en það sem er óþægilegt er það að þetta er í gangi allan daginn á meðan á framkvæmdum stendur. Slíkt hefur farið gríðarlega illa í suma.“ Að sögn Björns er í undirbúningi regla um að gert verði hlé með vissu millibili yfir vinnudaginn þegar fleygar eru notaðir.
Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Innlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent Tilkynnt um ölvaðan flugmann Innlent Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði Innlent Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Innlent Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Vill að Daði vísi til þess sem hún á að hafa sagt Innlent Fleiri fréttir Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði ESA geti ekki beðið endalaust Valgerður réttir fram sáttahönd Vill að Daði vísi til þess sem hún á að hafa sagt Tilkynnt um ölvaðan flugmann Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Konan sem lögreglan lýsti eftir er fundin Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Gera alvarlegar athugasemdir við málflutning Daða Skoðar uppfærslu í 36 sæta rafflugvél Neysla geðrofs-, tauga- og ofnæmislyfja stóraukist Dæmdur fyrir manndráp af gáleysi við Vík Innan við helmingur karla vill refsingar fyrir vændiskaup Árásin rannsökuð sem tilraun til manndráps Bein útsending: Hvernig birtast menntarannsóknir í opinberri umræðu? „Einn aðili sem hefur til þessa skilað auðu“ Telur ESA falla frá málsókn ef Alþingi samþykkir frumvarpið Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Tvöfalda makrílráðgjöf Ragnar Þór vissi ekkert og meirihluti karla vill ekki refsa fyrir vændiskaup Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Í mál gegn Íslandi fyrir vanefndir á bókun 35 Ein vél Fljótsdalsstöðvar úti „Ég er ógeðslega reiður“ Kröpp og djúp lægð og varasamar vindhviður Sjá meira