Telja OR hafa sagt ósatt um forstjórabíl garðar örn úlfarsson skrifar 24. mars 2015 08:15 Launahækkun og nýr bíll ---- Fréttablaðið sagði frá starfskjörum forstjóra Orkuveitunnar 28. febrúar síðastliðinn.
Kjartan Magnússon og Áslaug Friðriksdóttir, stjórnarmenn í Orkuveitu Reykjavíkur, segja Eirík Hjálmarsson, upplýsingafulltrúa fyrirtækisins, hafa gefið Fréttablaðinu rangar upplýsingar um bílafríðindi Bjarna Bjarnasonar forstjóra. Í bókun Kjartans og Áslaugar á stjórnarfundi í OR í gær segjast þau gera alvarlega athugasemd við ummæli upplýsingafulltrúans í Fréttablaðinu 28. febrúar síðastliðinn.Kjartan Magnússon„Í frétt um launakjör forstjóra Orkuveitunnar kom fram að fulltrúi Sjálfstæðisflokksins hefði bókað á stjórnarfundi 26. janúar síðastliðinn að honum hefði ekki verið kunnugt um það fyrr en í nóvember 2014 að forstjórinn væri á bifreið frá fyrirtækinu. Upplýsingafulltrúinn segir í þessu sambandi að afnot af umræddri bifreið hafi verið í ráðningarsamningi forstjórans frá 2011 en ekki verður annað séð en þær upplýsingar séu rangar,“ segir í bókuninni. Fulltrúi Sjálfstæðisflokksins sem vísað er í er Kjartan Magnússon. Vitna Kjartan og Áslaug í ráðningarsamning Bjarna þar sem segir að OR skuli endurgreiða forstjóranum sannanlegan kostnað sem hann kunni að hafa af akstri eigin bifreiðar í þágu fyrirtækisins og að hann skuli þá halda akstursbók. Einnig að forstjórinn eigi ekki að njóta frekari launa eða starfskjara en þeirra sem tilgreind eru í samningnum.Bjarni Bjarnason„Af framangreindu er ljóst að upplýsingafulltrúi fyrirtækisins gaf útbreiddasta dagblaði landsins rangar upplýsingar um ákvæði ráðningarsamnings forstjóra viðvíkjandi bílafríðindum hans, gagngert í þeim tilgangi að bera brigður á bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokksins um málið. Er óskað eftir því að upplýsingafulltrúinn komi leiðréttingu á framfæri við Fréttablaðið,“ segir í bókuninni. „Þetta er rétt hjá stjórnarmanninum að ákvæðið er ekki í ráðningarsamningnum heldur í þeim úrskurði kjararáðs sem samningurinn byggir á. Beðist er velvirðingar á ónákvæmninni,“ segir Eiríkur Hjálmarsson við Fréttablaðið. Eiríkur vitnar til ráðningarsamningsins þar sem segir: „OR og BB hafa samið sín á milli að laun forstjóra skuli að jafnaði miða við ákvörðun kjararáðs um laun forstjóra Landsvirkjunar, eftir því sem við á.“Eiríkur HjálmarssonÞá vitnar upplýsingafulltrúinn í úrskurð kjararáðs þar sem segir að kjósi forstjórinn að halda bifreiðahlunnindum sínum skuli draga verðmæti þeirra samkvæmt mati ríkisskattstjóra frá heildarlaunum. „Það var á þessum grunni að forstjóri valdi, að höfðu samráði við stjórnarformann og formann starfskjaranefndar, að fá Toyota Yaris til umráða, enda drógust þau hlunnindi frá launum hans,“ segir Eiríkur Hjálmarsson.Svar frá Orkuveitu í febrúar „Um heimild til afnota af bifreið var samið í upphaflegum ráðningarsamningi stjórnar við forstjóra í ársbyrjun 2011. Forstjóri átti þann rétt að velja hvort hann væri á bíl frá Orkuveitunni eða ekki. Hlunnindaandvirði bílsins dróst frá launum hans.“Úr svari sem upplýsingafulltrúi OR sendi til Fréttablaðsins 26. febrúar 2015.
Mest lesið Yrði stærsta lýðheilsuslys Íslandssögunnar Innlent Segja Pútín vilja vopnahlé sem miðist við núverandi víglínur Erlent Veita viðtal um Hamraborgarmálið í fyrsta sinn: Viðvörunarkerfi í bílnum hefði getað gert illt verra Innlent Svipað og frekar róleg haustlægð Innlent Rúta brann til kaldra kola við Sóltún Innlent Albert Guðmundsson verður ákærður fyrir kynferðisbrot Innlent Mikill harmleikur en skýrir farvegir Innlent Tamningakona sýknuð af bótakröfu vegna reiðslyss Innlent Sá sem át ekkert nema McDonalds í mánuð er fallinn frá Erlent Íslendingurinn sem slasaðist í háloftunum var á vegum Marels Innlent Fleiri fréttir Svipað og frekar róleg haustlægð Yrði stærsta lýðheilsuslys Íslandssögunnar Veita viðtal um Hamraborgarmálið í fyrsta sinn: Viðvörunarkerfi í bílnum hefði getað gert illt verra Rúta brann til kaldra kola við Sóltún Mikill harmleikur en skýrir farvegir Tamningakona sýknuð af bótakröfu vegna reiðslyss Aukinn viðbúnaður í verðmætaflutningum og óveður í beinni Stöðvaði innbrotsþjóf sem var hálfur inni í bílnum Katrín að taka afgerandi forystu Albert Guðmundsson verður ákærður fyrir kynferðisbrot Fyrirvari á eldgosi gæti orðið mjög stuttur Telur víst að sala á Landsvirkjun komi á borð næsta forseta Segja miður að móðir hafi upplifað að ekki væri hlustað á hana Íslendingurinn sem slasaðist í háloftunum var á vegum Marels Björgólfur lýkur hópmálsókn með milljarðssátt Hafa níu mánuði til að svara dómi MDE í talningamálinu Sló aðra á heimilinu ítrekað með hleðslusnúru Vonar að þetta dugi til Hagkaup selur áfengi og Þórkatla kaupir í Grindavík „ÁTVR dugar“ Hækka leigu á stúdentagörðum um tvö prósent í haust Safna til að koma konunum í varanlegt skjól í Nígeríu Fundur um athafnaborgina Reykjavík Kostnaður vegna uppkaupa fjórtán milljörðum meiri en áætlað var Brottfall ungra karla á Íslandi úr námi hæst í Evrópu Ákærður fyrir að nauðga barnungri hálfsystur sinni Enginn málefnalegur ágreiningur skýri brotthvarf bæjarstjóra Réðst í tvígang á starfsmann verslunar í Skeifunni Neyðarlínan lýsir eftir börnum sem komu færandi hendi Augljóst að fylgið er enn á verulegri hreyfingu Sjá meira
Veita viðtal um Hamraborgarmálið í fyrsta sinn: Viðvörunarkerfi í bílnum hefði getað gert illt verra Innlent
Veita viðtal um Hamraborgarmálið í fyrsta sinn: Viðvörunarkerfi í bílnum hefði getað gert illt verra
Veita viðtal um Hamraborgarmálið í fyrsta sinn: Viðvörunarkerfi í bílnum hefði getað gert illt verra Innlent