Lækkar tolla til að ná fataverslun heim kolbeinn óttarsson proppé skrifar 24. mars 2015 07:00 Fjármálaráðherra vinnur að tillögum um einföldun á tollakerfinu. Hann vill afnema ýmsa tolla sem aðeins eru settir á til tekjuöflunar, enda skili þeir ekki miklu. vísir/vilhelm
Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra boðar heildarendurskoðun á tollakerfinu. Það sé flókið og margbrotið, leggi kostnað á atvinnulíf og hið opinbera og skili tiltölulega litlum tekjum í ríkissjóð. Sérstaklega horfir hann til tolla á föt. „Það verður að bíða þess að við fullmótum tillögurnar og förum með þær í gegnum ríkisstjórn, en augljóslega er það sláandi að við erum að tapa t.d. fataverslun úr landinu í stórum stíl og í síauknum mæli eru Íslendingar að sækja sér hversdagsföt til útlanda. Á sama tíma og við erum með tiltölulega háa tolla og síðan tiltölulega hátt virðisaukaskattsþrep ofan á þá tolllagningu.“ Bjarni bendir á að í mörgum tilvikum komi tolllagning ofan á tolllagningu sem þegar hafi átt sér stað hjá Evrópusambandinu sem hækki verðið og í ofanálag bætist 24 próenta virðisaukaskattur á vörurnar. „Þá er ekki nema von að verslunin í landinu eigi erfitt í samkeppni við nágrannalöndin sum.“ Helgi Hjörvar, þingmaður Samfylkingarinnar, spurði ráðherra út í tolla á franskar kartöflur á þingi í gær. Hann sagði innlenda framleiðslu standa undir 5 prósentum af markaði, en engu að síður bæru þær 75 prósenta innflutningstolla. Bjarni segir mikilvægt að gera greinarmun á tollum til að vernda innlenda framleiðslu og tollum sem settir séu í tekjuöflunarskyni. „Þegar maður horfir til þess hversu litlu þeir skila í raun, þá finnst mér að við hljótum að þurfa að skoða möguleikana á því að afmá þá einn af öðrum. Fari svo að samið verði um tuga prósenta launahækkanir er þó ljóst að svigrúm ríkisins til að fella niður tolla, lækka skatta eða aðrar álögur verður lítið sem ekkert.“
Mest lesið Yfir hundrað íbúðir gjörskemmdar Erlent „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Innlent Hótar tollum vegna skógareldanna Erlent Segir erfitt að horfa upp á nágranna missa aleiguna Erlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Mótorhjól og bíll skullu saman Innlent Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Innlent Hæð langt suður í hafi dælir hlýju lofti til landsins Veður Rúmlega 50 heimili horfin í stórbruna í Drammen Erlent Fleiri fréttir Mótorhjól og bíll skullu saman „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Kvöldfréttir Sýnar í beinni Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Sveitarfélögin óþreyjufull og krefjast svara frá ráðherrum Fiskibátur varð aflvana við Stykkishólm Vegabréfsgjaldið hækkaði um fimm þúsund milli ára „Galið að komast að þessari niðurstöðu“ Krefjast lögbanns við laxveiðum Iðufólks í Stóru-Laxá Telur bikblæðingu hafa valdið brunanum Fólk eigi að hugsa sig tvisvar um ef því er ekki hleypt inn á heimilið Þyrla Gæslunnar kölluð út á Landmannaleið Segir gríðarlegt álag á miðakaupendum í sumar Vilji til að framlengja ETS sérlausn og hvalveiðar brutu ekki gegn lögum Íslendingur reyndi að smygla milljónum í reiðufé frá Grænlandi Maðurinn sem sóttur var í Glerárdal er látinn Hálftíma dauðastríð ekki talið brot á lögum um velferð dýra Halldór Árni Sveinsson er látinn Atli sagður milliliðurinn í Straumsvíkurmálinu Krefjast tæps milljarðs af félagi Bergþórs Minnstu munaði að harður árekstur yrði: „Hefði ég ekki bremsað væri hann dáinn“ Maður á áttræðisaldri dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir nauðgun Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Þyrla og björgunarsveitir kallaðar út í Eyjafirði „Imprað á því að við séum ekki baðhús og verðum aldrei baðhús“ „Ég væri hikandi að hafa börnin mín hjá mér“ Bæjarstjóri í beinni, gusumeistari sem biðlar til yfirvalda og sirkus Sjá meira