Buðu 110 milljónir í golfvöll í Grímsnesi Garðar Örn Úlfarsson skrifar 20. mars 2015 08:00 Áhugasamir kaupendur vilja útbúa fyrsta tólf holu golfvöll landsins á grunni vallarins á Minni-Borg. Mynd/Einar Þorsteinsson
Ófullgerður golfvöllur sem Grímsnes- og Grafningshreppur keypti á árinu 2011 er enn í höndum sveitarfélagsins. Síðast fyrir mánuði hafnaði sveitarstjórnin tilboði í völlinn sem hefur verið á söluskrá í tvö ár. Í tilboði Örvars B. Hólmarssonar hjá Minni-Borgum sagði að kaupandi myndi greiða 110 milljónir króna „í síðasta lagi eftir tíu ár frá undirritun kaupsamnings“ en að hann gæti líka borgað hvenær sem er á tímabilinu „komi þær aðstæður upp“. Grímsnes- og Grafningshreppur eignaðist golfvallarsvæðið í júní 2011. Völlurinn var þá keyptur fyrir um 55 milljónir króna af Sparisjóðabankanum sem leyst hafði hann til sín frá félaginu Golfborgum sem komið var í þrot. Að Golfborgum stóðu sömu einstaklingar og nú reka gisti- og veitingaþjónustuna Minni-Borgir. „Við höfum verið að reyna að komast yfir þennan völl aftur,“ segir Einar Þorsteinsson hjá Minni-Borgum. Að sögn Einars er völlurinn í niðurníðslu. Nú vilji Minni-Borgarmenn fullgera tólf holu golfvöll og efla þannig afþreyingarmöguleika á svæðinu. Auk fyrrnefndra 55 milljóna í kaupverð hefur hreppurinn lagt nærri aðra eins upphæð í framkvæmdir á svæðinu að sögn Ingibjargar Harðardóttur sveitarstjóra. „Þetta var náttúrlega bara moldarflag allt saman og við keyptum þetta bara til að loka því,“ segir Ingibjörg og útskýrir að ekki hafi staðið til af hálfu sveitarfélagsins að ljúka gerð golfvallarins. „En af því að þarna voru uppi ýmsar hugmyndir þá lokuðum við þessu ekki sem landi heldur sem golfvelli á meðan verið var að spá í þetta. Við sléttum síðan úr þessu í fyrrasumar og lokuðum. Það er ekki búandi á svæðinu með moldrok yfir sér alla daga,“ segir Ingibjörg sem kveður nokkur tilboð hafa borist sem öllum hafi verið hafnað. Reyndar segir sveitarstjórinn ekki gert ráð fyrir því á fjárhagsáætlunum hreppsins út árið 2018 að selja landið þótt það sé á söluskrá. „Á Borg er þéttbýliskjarninn okkar og þetta er ríflega 55 hektara gott byggingarland. En er ekki flest til sölu ef það er boðið vel í?“ Einar kveður hreppinn hafa fengið mat fasteignasala sem telji völlinn 150 milljóna króna virði. „Þetta er bara einhver græðgi því þeir vita að eftir tvö til þrjú ár verður völlurinn einskis virði – bara orðinn einhver mói,“ metur Einar stöðuna.Golfarar kærðu golfvöllinn Eftir að Grímsnes- og Grafningshreppur eignaðist golfvöllinn á Minni-Borg og ákvað að setja fé í að ljúka gerð hans kærðu Golfklúbbur Öndverðarness og Golfklúbbur Kiðjabergs þá ákvörðun til innanríkisráðuneytisins. Sögðu klúbbarnir samþykkt sveitarstjórnarinnar um uppbyggingu golfvallar í samkeppni við íþróttafélög í sveitarfélaginu ekki fullnægja því almenna viðmiði sveitarstjórnarlaga að teljast sameiginlegt velferðarmál íbúa sveitarfélagsins. Innanríkisráðuneytið hafnaði kröfum klúbbanna með úrskurði í apríl 2013. Það hafi verið mat sveitarfélagsins að hagkvæmara væri að ljúka gerð vallarins heldur en að koma landinu aftur í upprunalegt horf. Þess utan lægi engin ákvörðun fyrir um það að hreppurinn myndi reka golfvöllinn þegar hann yrði tilbúinn til notkunar.
Mest lesið Maður hífður upp úr Ölfusá Innlent Farþegaþota í útsýnisflugi um hundrað metrum yfir Heimaey Innlent Gæsluvarðhaldskröfu yfir Írisi hafnað Innlent Fullkomin lending eftir sögulega ferð Erlent Gapandi búrhval rak á land: „Heljarinnar skepna“ Innlent Tilkynna málið til lögreglu: Flugstjórinn í sínu síðasta flugi Innlent „Arc de Trump“ rísi í Washington Erlent Ók á tæplega tvöföldum leyfilegum hraða Innlent Sjö á sjúkrahús eftir árekstur á Mosfellsheiði Innlent Útlit fyrir vorveður á næstu dögum Veður Fleiri fréttir Tilkynna málið til lögreglu: Flugstjórinn í sínu síðasta flugi Sjö á sjúkrahús eftir árekstur á Mosfellsheiði Maður hífður upp úr Ölfusá Farþegaþota í útsýnisflugi um hundrað metrum yfir Heimaey Ellefu framboðslistar á kjörseðli borgarbúa í vor Fjórar í valdastöðum á fréttamynd ársins Maður stunginn í heimahúsi á Akureyri Hafi áhrif á vísitöluna en vonandi væntingar líka Aðgerðirnar ekki til þess fallnar að koma í veg fyrir að forsenduákvæðið virkist Annar hvalrekinn á nokkrum dögum Fyrir þinginu að breyta svarmöguleikum þó enginn vafi leiki á umsóknarstöðu Til skoðunar að breyta svarmöguleikum á kjörseðli og sprenging í stofnun bókaklúbba Gæsluvarðhaldskröfu yfir Írisi hafnað Ók á tæplega tvöföldum leyfilegum hraða Spá enn vaxtahækkun í maí Gapandi búrhval rak á land: „Heljarinnar skepna“ Verzló hreppti hljóðnemann eftir sigur gegn MR Landskjörstjórn telur spurningu Þorgerðar gildishlaðna Góðan daginn býður góðan dag Óvæntur ríkisstjórnarfundur boðaður að kvöldi Sólheimar segja upp þjónustusamningnum „Þegar allt þrýtur þá ganga gerendur lengra og lengra“ Kristrún kynnir planið fyrir sveitarstjórnarkosningarnar Barátta við verðbólgu, eltihrellir og brugðist við breyttri Reynisfjöru Engir glæpir á bak við aukið sírenuvæl í borginni Bæjarfulltrúa í Grindavík misboðið: „Sleppið af okkur klónum“ Gabríel Douane í síbrotagæslu: Einn handtekinna vegna líkamsárásar í mars Bæjarstjóri Kópavogs lýsir yfir sárum vonbrigðum með efnahagsáætlun ríkisstjórnarinnar Börn flytji ekki til Grindavíkur á meðan óvissa varir Mikilvægt að tala saman, líka karlar Sjá meira