Vísbendingar um markaðsmisnotkun 18. mars 2015 08:45 Í Kauphöll Íslands. Óvenjulega mikil hækkun er síðasta dag ársins en svo virðist sem hækkanir gangi til baka strax á fyrsta degi nýs árs. Fréttablaðið/Daníel
Hækkun ICEX-vísitölunnar síðasta dag ársins bendir til markaðsmisnotkunar þar sem aðilar á íslenskum verðbréfamarkaði fegri ársuppgjör sín. Þetta er ein niðurstaðna rannsóknar Stefáns Baldurs Gunnlaugssonar, dósents við Háskólann á Akureyri, á íslenskum hlutabréfamarkaði.Stefán B. GunnlaugssonStefán kynnti niðurstöður rannsóknar sinnar í erindi á málstofu í viðskiptafræði við Háskólann á Akureyri síðastliðinn föstudag. Rannsóknin snýr að breytingum ICEX-vísitölunnar frá ársbyrjun 1993 til 2013. Þar kemur fram samhengi milli vikudags og ávöxtunar íslenskra hlutabréfa. Ávöxtun sé mest á fimmtudögum og föstudögum en lítil sem engin í byrjun vikunnar. Einnig kemur fram að síðasta dag ársins hafi vísitalan hækkað um 0,45 prósent að miðgildi en lækkað um 0,48 prósent á fyrsta degi ársins. Á seinni hluta tímabilsins sé enn sama uppi á teningnum. ICEX-vísitalan fer upp um 0,51 prósent að meðaltali á síðasta degi ársins en niður um 0,22 prósent á fyrsta degi nýs árs. „Þetta bendir til þess að aðilar á íslenskum verðbréfamarkaði séu að fegra uppgjör sín. Það skýtur skökku við að það sé svona mikill munur á síðasta degi ársins og fyrsta degi nýs árs,“ segir Stefán. Brot á lögum um verðbréfaviðskipti geta varðað sektum og fangelsi allt að sex árum séu brotin stórfelld.Baldur ThorlaciusBaldur Thorlacius, forstöðumaður Eftirlits Kauphallarinnar, segir eftirlit með viðskiptum mjög mikilvægt og að í mörgum tilvikum hafi eftirlitið kallað eftir gögnum og framkvæmt ítarlega greiningu á málsatvikum. „Kauphöllin leggur sérstaka áherslu á að hafa eftirlit með verðhreyfingum á síðasta viðskiptadegi ársins, sem og öðrum dögum sem geta verið mikilvægir við mat á virði verðbréfa. Hefur það eftirlit í mörgum tilvikum leitt til þess að óskað hefur verið eftir gögnum frá markaðsaðilum og framkvæmd ítarleg greining á málsatvikum,“ segir Baldur. Hann segir ekki hægt að ræða einstaka tilvik. „Kauphöllin getur þó ekki greint frá niðurstöðu einstakra mála. Í þessu samhengi má þó benda á að frá hruni hefur hlutabréfaverð lækkað í fjórum tilvikum af sjö á síðasta viðskiptadegi ársins.“
Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Innlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent Tilkynnt um ölvaðan flugmann Innlent Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði Innlent Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Innlent Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Fleiri fréttir Bíl ekið á ljósastaur Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði ESA geti ekki beðið endalaust Valgerður réttir fram sáttahönd Vill að Daði vísi til þess sem hún á að hafa sagt Tilkynnt um ölvaðan flugmann Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Konan sem lögreglan lýsti eftir er fundin Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Gera alvarlegar athugasemdir við málflutning Daða Skoðar uppfærslu í 36 sæta rafflugvél Neysla geðrofs-, tauga- og ofnæmislyfja stóraukist Dæmdur fyrir manndráp af gáleysi við Vík Innan við helmingur karla vill refsingar fyrir vændiskaup Árásin rannsökuð sem tilraun til manndráps Bein útsending: Hvernig birtast menntarannsóknir í opinberri umræðu? „Einn aðili sem hefur til þessa skilað auðu“ Telur ESA falla frá málsókn ef Alþingi samþykkir frumvarpið Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Tvöfalda makrílráðgjöf Ragnar Þór vissi ekkert og meirihluti karla vill ekki refsa fyrir vændiskaup Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Í mál gegn Íslandi fyrir vanefndir á bókun 35 Ein vél Fljótsdalsstöðvar úti „Ég er ógeðslega reiður“ Sjá meira