Ráðherra sækir Kínverja heim kolbeinn óttarsson proppé skrifar 18. mars 2015 07:45 Menntamálaráðherra segir mannréttindamál verða rædd með óbeinum hætti þar sem þau falli undir mennta- og menningarmál. fréttablaðið/gva
Illugi Gunnarsson, mennta- og menningarmálaráðherra, er á leið í opinbera heimsókn til Kína. Kínversk stjórnvöld buðu ráðherra í heimsókn, en menntamálaráðherra Íslands sótti Kína síðast heim árið 2006. Fréttablaðið náði tali af ráðherra í Kanada, en þaðan liggur leiðin til Kína. „Tilgangurinn er fyrst og fremst að funda með ráðherrum menntamála, vísindamála og menningarmála, ásamt því að verið er að skoða samvinnu á sviði vísinda á milli landanna, meðal annars það sem snýr að nýtingu jarðhita og öðrum slíkum verkefnum,“ segir Illugi. Í fylgdarliði ráðherra verða starfsmenn ráðuneytisins, rektorar Háskóla Íslands og Háskólans á Akureyri, sem og Listaháskóla Íslands. Illugi segir að ekki verði starfsfólk úr orkugeiranum með í þessari för. „En við munum meðal annars skoða hitaveituframkvæmdir sem verið hafa í Kína og samvinnu á vísindasviðinu, meðal annars í kringum jarðhitann.“ Spurður hvort hann hyggist ræða mannréttindamál við stjórnvöld í Kína segir Illugi eðlilegt að sú spurning vakni. „Við munum auðvitað ræða menntamál og menningarmál og undir þá málaflokka falla auðvitað með beinum og óbeinum hætti mannréttindi. Öll umræða um þessa málaflokka er þá um leið líka umræða um mannréttindi.“
Mest lesið Sjötugur maður tapað hundrað og átta milljónum til fjárkúgara Innlent Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Innlent Slasaðist alvarlega við heyskap Innlent Nálægt því að útrýma moskítóflugu á Suðurlandi Innlent Hótar tollum vegna skógareldanna Erlent „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Innlent Yfir hundrað íbúðir gjörskemmdar Erlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Ekki með tök á eldinum og slökkviliðsstjóri hljóp á sig Erlent Drykkurinn komi úr flösku ráðherra Innlent Fleiri fréttir „Þetta er bara toppurinn á ísjakanum“ Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Drykkurinn komi úr flösku ráðherra Dagrún ráðin sveitarstjóri Strandabyggðar Nálægt því að útrýma moskítóflugu á Suðurlandi Slasaðist alvarlega við heyskap Stórbruni í Drammen og dularfull staða moskítóflugunnar Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Sjötugur maður tapað hundrað og átta milljónum til fjárkúgara Brotist inn í þrjá gáma og dýr verkfæri tekin ófrjálsri hendi Mótorhjól og bíll skullu saman „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Kvöldfréttir Sýnar í beinni Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Sveitarfélögin óþreyjufull og krefjast svara frá ráðherrum Fiskibátur varð aflvana við Stykkishólm Vegabréfsgjaldið hækkaði um fimm þúsund milli ára „Galið að komast að þessari niðurstöðu“ Krefjast lögbanns við laxveiðum Iðufólks í Stóru-Laxá Telur bikblæðingu hafa valdið brunanum Fólk eigi að hugsa sig tvisvar um ef því er ekki hleypt inn á heimilið Þyrla Gæslunnar kölluð út á Landmannaleið Segir gríðarlegt álag á miðakaupendum í sumar Vilji til að framlengja ETS sérlausn og hvalveiðar brutu ekki gegn lögum Íslendingur reyndi að smygla milljónum í reiðufé frá Grænlandi Maðurinn sem sóttur var í Glerárdal er látinn Hálftíma dauðastríð ekki talið brot á lögum um velferð dýra Sjá meira