1.900 bifreiðar innkallaðar frá áramótum sveinn arnarsson skrifar 17. mars 2015 07:00 Gripið er inn í áður en slys eiga sér stað eða bílar verði fyrir frekara tjóni. Fréttablaðið/GVA
Alls hafa 1.900 bifreiðar á landinu verið innkallaðar af framleiðendum frá áramótum í alls 15 innköllunum. Er þessi fjöldi óvenju mikill að mati Neytendastofu. Fjöldi innkallaðra bifreiða hefur vaxið síðustu ár en tímabilið frá áramótum slær öllu við. Ekki er þó um það að ræða að gallar í bifreiðum séu að verða algengari en tíðkast hefur. Guðrún Lárusdóttir, gæðastjóri stjórnsýslusviðs Neytendastofu, segir neytendur nú í auknum mæli njóta vafans ef líkur á göllum er annars vegar. „Framleiðendur eru varari um sig en áður. Við höfum ekki séð viðlíka fjölda innkallaðra bifreiða áður, en það er alveg ljóst að tilkynningum hefur farið fjölgandi undanfarin ár,“ segir Guðrún. Þetta þýði í raun að mati Guðrúnar að fyrirbyggjandi aðgerðir sem þessar komi neytendum vel. „Í sjálfu sér er þetta mjög gott mál fyrir neytendur því þarna er gripið inn í áður en slys gerast eða bifreiðar verði fyrir frekari tjóni af völdum galla.“ Neytendastofa heldur skrá yfir tilkynningar af þessu tagi. Stofnunin sjálf hefur aðeins einu sinni á síðustu árum óskað eftir innköllun bifreiða. Ef upp kemur um líklega galla í bifreiðum er eigendum þeirra mjög fljótt tilkynnt um það og þeim boðið að koma bílunum til viðgerðar sér að kostnaðarlausu.
Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Innlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði Innlent Tilkynnt um ölvaðan flugmann Innlent Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Innlent Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Innlent Fleiri fréttir Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði ESA geti ekki beðið endalaust Valgerður réttir fram sáttahönd Vill að Daði vísi til þess sem hún á að hafa sagt Tilkynnt um ölvaðan flugmann Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Konan sem lögreglan lýsti eftir er fundin Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Gera alvarlegar athugasemdir við málflutning Daða Skoðar uppfærslu í 36 sæta rafflugvél Neysla geðrofs-, tauga- og ofnæmislyfja stóraukist Dæmdur fyrir manndráp af gáleysi við Vík Innan við helmingur karla vill refsingar fyrir vændiskaup Árásin rannsökuð sem tilraun til manndráps Bein útsending: Hvernig birtast menntarannsóknir í opinberri umræðu? „Einn aðili sem hefur til þessa skilað auðu“ Telur ESA falla frá málsókn ef Alþingi samþykkir frumvarpið Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Tvöfalda makrílráðgjöf Ragnar Þór vissi ekkert og meirihluti karla vill ekki refsa fyrir vændiskaup Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Í mál gegn Íslandi fyrir vanefndir á bókun 35 Ein vél Fljótsdalsstöðvar úti „Ég er ógeðslega reiður“ Kröpp og djúp lægð og varasamar vindhviður Sjá meira