Kanadamávar í gestahlutverki í fuglastríði íbúanna á Álftanesi Garðar Örn Úlfarsson skrifar 16. mars 2015 07:45 Tíðin er geysihörð fyrir fugla um þessar mundir svo þeir sækja í æti þar sem það býðst. Ekki er allir sáttir við að það skuli vera á Álftanesi. „
Mér þykir mjög leitt ef þetta angrar einhvern,“ segir Brynja Valsdóttir sem um árabil hefur gefið hröfnum á Bessastaðatúninu á Álftanesi. Þótt Brynja hafi fengið þakkir í Facebook-hópi íbúa á Álftanesi eru ekki allir sáttir. „Gætuð þið hugsað ykkur að fara aðeins fjær byggðinni með þessa matargjöf því þetta er frekar hvimleitt að vakna upp við gargið í varginum fyrir allar aldar,“ skrifar til dæmis Bylgja Baldursdóttir sem býr við Suðurtún, í ávarpi á Facebook. Brynja kveðst hafa gefið hröfnum á morgnana á Bessastaðatúni að vetrarlagi í áraraðir. Í óveðrum að undanförnu hafi hún gefið gæsum nærri byggðinni. Mávur og hrafn hafi sótt í það æti.Bjartmávur frá Kanada sækir í gæsabrauð „Gæsirnar sækja í brauð sem ég gef smáfuglum í garðinum mínum og ég hef því hent brauði á tún handan við veginn til að lokka þær þangað. Ef það er að angra einhvern þá skil ég það og mun hætta því,“ segir hún. Í vetur hefur bjartmávur sem Brynja segir farfugl frá Kanada bæst í hópinn. „Hann er venjulega á Breiðafirði og annars staðar en þar hefur orðið ætishrun,“ útskýrir hún.FuglafóðurÓþarft að draga varginn að byggðinni Bylgja Baldursdóttir segir í fyrrnefndu ávarpi á Facebook halda að vera „vargsins“ svo nærri byggð hafi slæm áhrif á smáfugla sem fólk vilji gjarnan gefa í görðum sínum. „Persónulega þá finnst mér algjör óþarfi að draga varginn nær byggð í ljósi þess að hann er alveg skelfilegur þegar kemur að ungatímabili smáfuglanna,“ skrifar Bylgja. Brynja bendir hins vegar á að Kanadamávurinn sé sjófugl sem verði farinn fyrir vorið.Guð launar fyrir hrafninn Að sögn Brynju kemur hrafninn langt að úr næturskjóli sínu. „Hrafnarnir eru vinir mínir og bíða þarna á morgnana eftir að fá matinn. Tíðin í vetur hefur verið skelfileg fyrir alla fugla. Menn hafa gjarnan flokkað þá í góða fugla og vonda og gefa sumum en öðrum ekki. Sumir þeirra geta betur bjargað sér en smáfuglarnir eru algerlega háðir matargjöfum núna,“ segir Brynja og bendir á að Álftanes sé fuglasvæði. „Mávurinn er væntanlega þarna hvort sem hann étur úr ætinu sem ég gef hröfnum eða ekki. Ég get ekki sorterað mávana úr.“ Brynja bætir við að þúsundir manna á höfuðborgarsvæðinu gefi fuglum mat. „Guð launar fyrir hrafninn.“
Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Innlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði Innlent Tilkynnt um ölvaðan flugmann Innlent Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Innlent Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Fleiri fréttir Bíl ekið á ljósastaur Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði ESA geti ekki beðið endalaust Valgerður réttir fram sáttahönd Vill að Daði vísi til þess sem hún á að hafa sagt Tilkynnt um ölvaðan flugmann Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Konan sem lögreglan lýsti eftir er fundin Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Gera alvarlegar athugasemdir við málflutning Daða Skoðar uppfærslu í 36 sæta rafflugvél Neysla geðrofs-, tauga- og ofnæmislyfja stóraukist Dæmdur fyrir manndráp af gáleysi við Vík Innan við helmingur karla vill refsingar fyrir vændiskaup Árásin rannsökuð sem tilraun til manndráps Bein útsending: Hvernig birtast menntarannsóknir í opinberri umræðu? „Einn aðili sem hefur til þessa skilað auðu“ Telur ESA falla frá málsókn ef Alþingi samþykkir frumvarpið Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Tvöfalda makrílráðgjöf Ragnar Þór vissi ekkert og meirihluti karla vill ekki refsa fyrir vændiskaup Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Í mál gegn Íslandi fyrir vanefndir á bókun 35 Ein vél Fljótsdalsstöðvar úti „Ég er ógeðslega reiður“ Sjá meira