Unglingar á samskiptamiðlum í yfir fjórar stundir á hverjum degi Ingibjörg Bára Sveinsdóttir skrifar 5. febrúar 2015 08:45 Könnun Rannsókna og greiningar náði til allra nemenda í 8., 9. og 10. bekk á landinu. Allir nemendur sem sátu í kennslustundum daginn sem könnunin fór fram svöruðu spurningunum. Svör fengust frá 11.033 nemum. Heildarsvarhlutfall á landsvísu var 86,3 prósent. NORDICPHOTOS/GETTY
Rúm 14 prósent nemenda í 8., 9. og 10. bekk á höfuðborgarsvæðinu og rúm 15 prósent nemenda á landsbyggðinni verja fjórum klukkustundum eða meira í að vera á samskiptamiðlum á netinu (Facebook, Instagram, Snapchat o.s.frv.), á hverjum degi. Þetta kemur fram í skýrslu um rannsóknina Ungt fólk 2014 sem Rannsóknir og greining unnu fyrir mennta- og menningarmálaráðuneytið. Niðurstöður rannsóknarinnar sýna einnig að um 10 prósent nemenda hafa þrisvar sinnum eða oftar fengið andstyggileg eða særandi skilaboð frá einstaklingi eða hópi á netinu. „Við fáum mörg símtöl vegna neteineltis. Í flestum tilfellum eru það foreldrarnir sem hringja í okkur en krakkar geta líka hringt sjálfir. Skólar leita líka ráða hjá okkur. Svo erum við með ábendingarhnapp á síðunni okkar, heimiliogskoli.is,“ segir Hrefna Sigurjónsdóttir, framkvæmdastjóri samtakanna Heimili og skóli. Hún kveðst hafa orðið vör við að krakkar séu ekki jafn mikið inni á nafnlausum spurningasíðum og áður, til dæmis ask.fm. „Það voru allir inni á þessum síðum á tímabili. Krakkar á þessum aldri eru að þróa sjálfsmyndina og vilja fá komment á sig en skilaboð á þessum síðum voru neikvæð. Margir krakkar sem við erum að tala við segjast vera búnir að fá nóg af þessu ógeði.“Niðurstöðurnar sýna meðal annars að hlutfall nemenda í 9. og 10. bekk sem segjast verja tíma með foreldrum sínum, hvort sem er á virkum dögum eða um helgar, eykst frá árinu 2009 og hafði þá aukist töluvert frá 2006. Um 21 prósent stráka í 9. og 10. bekk segist oft eða nær alltaf vera með foreldrum sínum utan skólatíma á virkum dögum árið 1997, en 49 prósent árið 2014. Á fréttavef Politiken er haft eftir sálfræðingnum og rithöfundinum Gitte Haag að margir foreldrar verji ekki miklum tíma með börnum sínum. Fjölskyldan sitji saman við kvöldverðarborðið og í besta falli einnig við morgunverðarborðið. Að lokinni máltíð horfi á mörgum heimilum hver og einn á sinn skjá. Hrefna telur að verji krakkar fjórum klukkustundum og lengri tíma á hverjum degi á samskiptamiðlum hafi þeir lítinn tíma til annars. „Það er alltaf talað um það að samvera foreldra og barna sé mikilvægasta forvörnin. Umhyggja foreldra hefur mjög jákvæð áhrif á líðan barna. Þá finna þau að foreldrum standi ekki á sama um þau. Ef börnin eru föst í tölvunni verða samskiptin öðruvísi. Þau sjá ekki svipbrigði og heyra jafnvel ekki raddblæ. Þá er auðvelt að misskilja það sem sagt er, eins og til dæmis grín. Það getur valdið leiðindum.“
Mest lesið Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Innlent Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Innlent „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Uppsagnir hjá Klettabæ Innlent Fleiri fréttir Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Árekstur við Hamraborg Engin aðstoð við próftöku og litaðar númeraplötur Uppsagnir hjá Klettabæ Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Kristrún tilbúin í aðgerðir Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Væntingar um útspil tengt gjaldahækkunum Neituðu sök við þingfestingu Straumsvíkurmálsins Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Sniðganga geti verið túlkuð sem yfirlýsing ríkisstjórnarinnar Fjórir í gæsluvarðhald eftir hraðsendingu frá Þýskalandi Ekkert svigrúm í tengslum við kjarasamninga og tvísýnt með framhaldið Lét ákærða vita af andlátinu: „Hann var í miklu uppnámi“ „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Flutningabíll valt á Þverárfjallsvegi sem er lokaður Lægðin grynnist í dag en von á annarri Bíl ekið á ljósastaur Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði ESA geti ekki beðið endalaust Valgerður réttir fram sáttahönd Vill að Daði vísi til þess sem hún á að hafa sagt Sjá meira