Biðja um undanþágu frá vinnsluskyldu byggðakvóta Sveinn Arnarsson skrifar 3. janúar 2015 11:30 Engin bolfiskvinnsla er á Vopnafirði sem getur unnið úr byggðakvótanum að mati hreppsnefndar Vopnafjarðarhrepps. Fréttablaðið/Pjetur
Hreppsnefnd Vopnafjarðarhrepps hefur óskað eftir undanþágu frá vinnsluskyldu á byggðakvóta á yfirstandandi fiskveiðiári. Vopnafjarðarhreppur fékk úthlutuð um 550 tonn af byggðakvóta á þessu ári og vill fá að landa því annað. Árlega ráðstafar ráðherra ákveðnum aflaheimildum til stuðnings byggðarlögum sem hafa lent í vanda vegna samdráttar í sjávarútvegi og eru háð veiðum eða vinnslu á botnfiski. Ólafur Áki Ragnarsson, sveitarstjóri Vopnafjarðarhrepps, segir þetta vera neyðarúrræði. „Það hefur ekki verið sýnt fram á það með haldbærum rökum að fyrir hendi sé vinnsla á Vopnafirði sem ráði við vinnslu á byggðakvóta Vopnafjarðar,“ segir Ólafur. Hann bendir á að þrjú hundruð tonnum af byggðakvóta hafi verið úthlutað til Vopnafjarðar og einnig eigi þeir um 250 tonn frá fyrra ári. „Það skiptir miklu máli að ná að landa eins miklum afla og hægt er af aflaheimildum fyrra árs því annars missum við þann hluta frá okkur í næstu úthlutun.“Ólafur Áki Ragnarsson, sveitarstjóri Vopnafjarðarhrepps.Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið hefur ekki tekið undanþágubeiðni hreppsins til efnislegrar meðferðar en að sögn Þóris Hrafnssonar, upplýsingafulltrúa ráðuneytisins, er von á niðurstöðu frá ráðuneytinu innan tveggja vikna. 29 sveitarfélög landsins fengu úthlutaðan byggðakvóta á þessu fiskveiðiári og er Vopnafjarðarhreppur eina sveitarfélagið sem óskar eftir undanþágu frá reglum um vinnslu í heimabyggð. Ólafur Áki vonar að hægt verði að vinna kvóta á Vopnafirði í náinni framtíð. „Við höfum verið í viðræðum við fjölda aðila um að koma að verkefninu með okkur og vinna aflann. Margir hafa verið áhugasamir um að hefja vinnslu á staðnum og vilja skoða það fyrir næsta fiskveiðiár. Hér er um að ræða kjörið tækifæri til að fjölga störfum í heimabyggð og auka fjölbreytni í atvinnutækifærum fyrir íbúa,“ segir Ólafur Áki. Í umsögn atvinnu- og ferðamálanefndar Vopnafjarðarhrepps kemur fram að nefndin telji mikilvægt að vinnslu á bolfiski verði komið í þann farveg að ekki þurfi að koma til þess á fiskveiðiárinu að fiskur sé fluttur frá staðnum óunninn. Það eru því eindregin tilmæli atvinnu- og ferðamálanefndar að hlutaðeigandi aðilar komi af stað fiskverkun sem getur tekið á móti bolfiski til vinnslu á Vopnafirði til næstu framtíðar.
Mest lesið Þórdís Kolbrún skipuð sendiherra í London Innlent Verjanda Helga Bjarts nóg boðið Innlent Afleiðingarnar af systkinabroti séu verri en brotið sjálft Innlent Eldur olli miklum skemmdum í kjallara Innlent Reyndi að greiða með ellefu þúsund króna seðli Innlent Launahækkun Höllu illskiljanleg Innlent Samfylking og Sjálfstæðisflokkur hækka flugið Innlent Faðirinn skaut sjö börn sín til bana og eitt til viðbótar Erlent Grunaðir um að táldraga táningsstúlkur Innlent Föst í Herjólfi í korter eftir langa ferð frá Eyjum Innlent Fleiri fréttir Fyrstu vindmyllurnar komnar í Þorlákshöfn Hlegið á þingi: „Ég er ekki hundrað ára“ Samfylking og Sjálfstæðisflokkur hækka flugið Ný könnun og frægasti köttur landsins Kona flutt á sjúkrahús eftir bruna í kjallaraíbúð Reyndi að greiða með ellefu þúsund króna seðli Grunaðir um að táldraga táningsstúlkur Eldur olli miklum skemmdum í kjallara „Hræðsluáróður, stagl og þvæla sem stjórnarandstaðan ætlar að keyra á“ Þórdís Kolbrún skipuð sendiherra í London Nánast búin með stafrófið Útlit fyrir flókna meirihlutamyndun í borginni Launahækkun Höllu illskiljanleg Verjanda Helga Bjarts nóg boðið Mandarínönd heillar við Hamarkotslæk Öll tólf mánaða börn fá leiksskólapláss í Kópavogi Vilja að fullorðnir lofi að búa til rými þar sem börn geta sagt frá Vinstrið eygir þrjá borgarfulltrúa og sjálfstæðismenn þann sjöunda Bein útsending: Samtal um atvinnustefnu og aðgerðir í þágu verðmætasköpunar Afleiðingarnar af systkinabroti séu verri en brotið sjálft Sagðist ætla að kveikja í hundi áður en hann rændi gull- og demantsmunum Föst í Herjólfi í korter eftir langa ferð frá Eyjum Skýringar manns sem vildi „endurvekja þýsku sturturnar“ héldu ekki vatni Nánast hreint kókaín í umferð en ekkert fentanyl Ofsaakstur um allt höfuðborgarsvæðið Nám Hildar sé merkilegra en menntunarfræði leikskóla „Ég sé engin rök fyrir því“ „Það er bara frekar slæmt ástand“ Inga sendir boltann á sveitarfélögin „Hver hefur reynslu af því að byrla eiginkonu sinni?“ Sjá meira