Dæmdur í nálgunarbann vegna gruns um að nauðga sambýliskonu sinni ítrekað Atli Ísleifsson skrifar 27. mars 2015 19:12 Við skýrslutöku tók konan fram að maðurinn hafi margoft nauðgað konunni og beitt hana líkamlegu ofbeldi án þess þó að hún hefði tilkynnt um slíkt til lögreglu. Vísir/GVA
Hæstiréttur hefur staðfest dóm Héraðsdóms Suðurlands um nálgunarbann yfir karlmanni sem grunaður er um að hafa nauðgað sambýliskonu sinni ítrekað og beitt hana grófu ofbeldi. Manninum hefur verið gert að yfirgefa heimili þeirra. Lögreglustjóra kveðst ljóst að um sé að ræða endurtekin brot af hálfu mannsins sem sýni ákveðið hegðunarmynstur hans gagnvart konunni. „Að mati lögreglustjóra sé brotaþoli trúverðug í frásögn. Þá beri frásögn og hegðun brotaþola merki um langvarandi og grófa misnotkun kærða og virðist hún halda nokkrum hlífiskildi yfir honum og sýna honum jafnvel meðvirkni,“ segir í dómnum. Þá virðist konan óttast viðbrögð mannsins við aðkomu lögreglu í þeim málum sem séu til rannsóknar. Við skýrslutöku tók konan fram að maðurinn hafi margoft nauðgað konunni og beitt hana líkamlegu ofbeldi án þess þó að hún hefði tilkynnt um slíkt til lögreglu. „Hafi hún sagt að þó væri þekkt í vinahópi þeirra að hann þröngvaði henni til samræðis hvenær sem hann kysi svo, og státaði sig jafnvel af því sjálfur í áheyrn annarra.“ Hæstiréttur staðfestir að maðurinn skuli sæta nálgunarbanni í sex mánuði og er lagt bann við því að hann komi að eða sé við svæði sem afmarkast af 50 metra radíus mælt frá miðju húss þeirra. Þá er honum bannað að veita konunni eftirför, heimsækja eða vera með nokkru öðru móti í beinu sambandi við konuna, svo sem með símtölum, tölvupósti eða með öðrum hætti.
Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Innlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent Tilkynnt um ölvaðan flugmann Innlent Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði Innlent Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Innlent Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Vill að Daði vísi til þess sem hún á að hafa sagt Innlent Fleiri fréttir Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði ESA geti ekki beðið endalaust Valgerður réttir fram sáttahönd Vill að Daði vísi til þess sem hún á að hafa sagt Tilkynnt um ölvaðan flugmann Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Konan sem lögreglan lýsti eftir er fundin Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Gera alvarlegar athugasemdir við málflutning Daða Skoðar uppfærslu í 36 sæta rafflugvél Neysla geðrofs-, tauga- og ofnæmislyfja stóraukist Dæmdur fyrir manndráp af gáleysi við Vík Innan við helmingur karla vill refsingar fyrir vændiskaup Árásin rannsökuð sem tilraun til manndráps Bein útsending: Hvernig birtast menntarannsóknir í opinberri umræðu? „Einn aðili sem hefur til þessa skilað auðu“ Telur ESA falla frá málsókn ef Alþingi samþykkir frumvarpið Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Tvöfalda makrílráðgjöf Ragnar Þór vissi ekkert og meirihluti karla vill ekki refsa fyrir vændiskaup Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Í mál gegn Íslandi fyrir vanefndir á bókun 35 Ein vél Fljótsdalsstöðvar úti „Ég er ógeðslega reiður“ Kröpp og djúp lægð og varasamar vindhviður Sjá meira