Hæstiréttur staðfesti dóm vegna líkamsárásar í fangelsi Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 27. mars 2015 08:00 Árásin átti sér stað á útisvæði Hegningarhússins við Skólavörðustíg.
Hæstiréttur staðfesti í gær dóm Héraðsdóms Reykjaness þess efnis maður sem réðst á samfanga í Hegningarhúsinu skuli sæta fangelsi í eitt ár. Maðurinn réðst á samfanga sinn á útisvæði Hegningarhússins í mars í fyrra. Sló hann manninn ítrekað í andlitið og höfuðið með þeim afleiðingum að hann nefbrotnaði, tognaði og hlaut ofreynslu á hálshrygg. Þá hlaut hann einnig mar og sár í andliti auk annarra áverka. Fyrir dómi játaði maðurinn sök og krafðist vægustu refsingar en var dæmdur í ársfangelsi og til að greiða manninum sem hann réðst á 400.000 krónur í miskabætur. Hann áfrýjaði dómnum til Hæstaréttar og krafðist mildunar á refsingu og lægri miskabóta en Hæstiréttur varð við hvorugu. Í dómi Hæstaréttar, sem og í dómi héraðsdóms, kemur fram að árásin hafi verið alveg tilefnislaus. Þá er einnig litið til þess í dómnum að maðurinn á sér langan sakaferil að baki, allt frá árinu 1993. Meðal annars er tekið fram í dómi Hæstaréttar að þar sem maðurinn hefur fjórum sinnum áður verið sakfelldur fyrir ofbeldisbrot hafi dómnum þótt tilefni til að þyngja refsingu hans. Ákveðið var þó að staðfesta dóm héraðsdóms um ársfangelsi að teknu tilliti til kröfugerðar ákæruvaldsins.
Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Innlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent Tilkynnt um ölvaðan flugmann Innlent Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði Innlent Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Innlent Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Vill að Daði vísi til þess sem hún á að hafa sagt Innlent Fleiri fréttir Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði ESA geti ekki beðið endalaust Valgerður réttir fram sáttahönd Vill að Daði vísi til þess sem hún á að hafa sagt Tilkynnt um ölvaðan flugmann Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Konan sem lögreglan lýsti eftir er fundin Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Gera alvarlegar athugasemdir við málflutning Daða Skoðar uppfærslu í 36 sæta rafflugvél Neysla geðrofs-, tauga- og ofnæmislyfja stóraukist Dæmdur fyrir manndráp af gáleysi við Vík Innan við helmingur karla vill refsingar fyrir vændiskaup Árásin rannsökuð sem tilraun til manndráps Bein útsending: Hvernig birtast menntarannsóknir í opinberri umræðu? „Einn aðili sem hefur til þessa skilað auðu“ Telur ESA falla frá málsókn ef Alþingi samþykkir frumvarpið Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Tvöfalda makrílráðgjöf Ragnar Þór vissi ekkert og meirihluti karla vill ekki refsa fyrir vændiskaup Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Í mál gegn Íslandi fyrir vanefndir á bókun 35 Ein vél Fljótsdalsstöðvar úti „Ég er ógeðslega reiður“ Kröpp og djúp lægð og varasamar vindhviður Sjá meira