Innlent

Dómurum ekki skipt út í nauðgunarmáli

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Hæstiréttur vísar til þeirrar meginreglu sakamálaréttarfars að héraðsdómari er ekki bundinn af fyrri úrlausn sinni í málinu.
Hæstiréttur vísar til þeirrar meginreglu sakamálaréttarfars að héraðsdómari er ekki bundinn af fyrri úrlausn sinni í málinu. Vísir/Valli
Hæstiréttur hefur hafnað kröfu manns sem ákærður er fyrir nauðgun um að héraðsdómarar í málinu víki sæti.

Krafan kemur í kjölfar þess að Hæstiréttur ómerkti í mars síðastliðnum 4 ára dóm yfir manninum sem féll í júní á seinasta ári. Var dómur héraðsdóms ómerktur „vegna verulegra annmarka á samningu dómsins og þess að nafngreint vitni gaf ekki skýrslu fyrir dómi.“

Þegar málið var svo aftur tekið fyrir í héraði tveimur vikum eftir ómerkingu var farið fram á að héraðsdómararnir færu úr dómnum vegna vanhæfis. Var á því byggt að að „héraðsdómarar sem dæmdu málið í upphafi hafi nú þegar lagt mat á framburði ákærða og vitna í málinu og um leið sakfellingu ákærða.“

Þessu hafnaði héraðsdómur á grundvelli þess að Hæstiréttur víkur hvergi að því í dómi sínum um ómerkingu að niðurstöðu héraðsdóms um sönnunargildi munnlegs framburðar og hvort mat á þeim kunni að hafa verið rangt af hálfu dómara í málinu.

Undir þetta tekur Hæstiréttur en vísar þó aðallega til þeirrar meginreglu sakamálaréttarfars að héraðsdómari er ekki bundinn af fyrri úrlausn sinni í málinu. Þá hafði ekki verið bent á önnur atvik eða aðstæður sem gætu verið til þess fallnar að draga óhlutdrægni dómaranna í efa.


Tengdar fréttir

Fjögurra ára nauðgunardómur ómerktur í Hæstarétti

Dómurinn er ómerktur vegna þess að um tvo ákæruliði var að ræða þar sem lýst var ólíkri háttsemi. Hæstiréttur telur að héraðsdómur hefði átt að taka hvorn ákæruliðinn fyrir sig til sjálfstæðrar úrlausnar en það var ekki gert.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×