Krafan réttlæti fyrir Farkhundu Kristjana Guðbrandsdóttir skrifar 30. mars 2015 09:00 Víða um heim hafa verið haldnar minningarathafnir um Farkhundu og nú í Reykjavík. Vísir/Vilhelm
Minningarathöfn um Farkhundu, 27 ára gamlan kennaranema, sem var myrt á hrottalegan hátt af stórum hópi manna í Kabúl 19. mars síðastliðinn, var haldin í gær í Ráðhúsi Reykjavíkur. Farkhunda var myrt af trúarofstækismönnum fyrir rangar sakir. Hefur morðið vakið sterk viðbrögð í Afganistan og um allan heim. Í Kabúl brugðu konur á það ráð að bera kistu Farkhundu til grafar og neita karlmönnum um að snerta hana þvert á hefðir Afgana sem leyfa konum að jafnaði ekki að taka þátt í jarðarförum. Á þriðjudaginn var gengu þúsundir saman í Kabúl til þess að krefjast réttlætis fyrir Farkhundu. Í Ráðhúsi Reykjavíkur mættu gestir með útprentaðar myndir af Farkhundu. Fatima Hussaini las ljóð til minningar um Farkhundu og Þórhildur Sunna Ævarsdóttir hélt stutta tölu. Gestir rituðu nöfn sín á undirskriftarlista til þess að hvetja afgönsk stjórnvöld til þess að taka harðar á ofbeldi gegn konum í Afganistan og tryggja réttlæti fyrir Farkhundu. Í lok athafnarinnar var kertum fleytt á Reykjavíkurtjörn í minningu Farkhundu. Minningarathafnir og kröfugöngur hafa verið farnar víða annars staðar í heiminum undir yfirskriftinni Réttlæti fyrir Farkhundu. Þá hafa notendur Facebook og Twitter birt greinar og myndir og skipulagt viðburði henni til heiðurs undir kassamerkinu #JusticeForFarkhunda.
Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Innlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent Tilkynnt um ölvaðan flugmann Innlent Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði Innlent Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Innlent Fleiri fréttir Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði ESA geti ekki beðið endalaust Valgerður réttir fram sáttahönd Vill að Daði vísi til þess sem hún á að hafa sagt Tilkynnt um ölvaðan flugmann Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Konan sem lögreglan lýsti eftir er fundin Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Gera alvarlegar athugasemdir við málflutning Daða Skoðar uppfærslu í 36 sæta rafflugvél Neysla geðrofs-, tauga- og ofnæmislyfja stóraukist Dæmdur fyrir manndráp af gáleysi við Vík Innan við helmingur karla vill refsingar fyrir vændiskaup Árásin rannsökuð sem tilraun til manndráps Bein útsending: Hvernig birtast menntarannsóknir í opinberri umræðu? „Einn aðili sem hefur til þessa skilað auðu“ Telur ESA falla frá málsókn ef Alþingi samþykkir frumvarpið Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Tvöfalda makrílráðgjöf Ragnar Þór vissi ekkert og meirihluti karla vill ekki refsa fyrir vændiskaup Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Í mál gegn Íslandi fyrir vanefndir á bókun 35 Ein vél Fljótsdalsstöðvar úti „Ég er ógeðslega reiður“ Kröpp og djúp lægð og varasamar vindhviður Sjá meira