Dæmdur í fjögurra ára fangelsi fyrir nauðgun Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 16. október 2015 16:57 Fram kemur í dómi héraðsdóms að nauðgunin hafi valdið konunni mikilli vanlíðan. vísir/getty
Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í dag Magnús Óskarsson í fjögurra ára fangelsi fyrir nauðgun í febrúar 2014. Maðurinn var ákærður fyrir að hafa káfað á brjóstum og kynfærum konu auk þess sem hann átti að hafa neytt hana til að hafa við sig munnmök og kynmök. Átti hann meðal annars að hafa náð því fram „með því að beita hana ofbeldi og hótunum með því að grípa um annan handlegg hennar og þvinga hana niður á gólf og halda henni í tökum í liggjandi líkams-stöðu, meðal annars með því að þrýsta á öxl hennar og grípa með annarri hendi fyrir munn hennar og skipa henni að hafa hljótt [...]“, eins og sagði í ákæru.Neitaði sök fyrir dómi Maðurinn neitaði sök en sagðist fyrir dómi hafa hitt konuna á skemmtistað. Þau hafi þekkst fyrir og byrjað að kela inni á staðnum. Sagði maðurinn að konan hefði tekið þátt í atlotunum og sogið kynfæri hans inni á staðnum. Stuttu síðar vildi konan fara heim, að sögn mannsins. Tengdasonur mannsins skutlaði honum og konunni heim til hennar og sagði maðurinn að hún hefði beðið hann um að koma með sér inn. Að sögn mannsins höfðu þau svo samfarir í anddyri íbúðarinnar en hann kvaðst ekki hafa beitt hana valdi á neinn hátt.Kannaðist ekki við húsið sem þau fóru í Frásögn konunnar fyrir dómi var nokkuð frábrugðin frásögn mannsins. Hún kvaðst vissulega hafa hitt hann á skemmtistað og sagðist kannast við hann frá fyrri tíð. Á ákveðnum tímapunkti um kvöldið hafi henni liðið illa, hún vildi fara heim og „beðið rekstraraðila skemmtistaðarins um að útvega sér leigubíl.“ Hún hafi farið út og bifreið komið. Ákærði hafi komið og sagt henni að setjast inn í bifreiðina og sagt að hann ætlaði að skutla henni heim. Þau hafi farið inn í bifreiðina og sest afturí,“ eins og segir í dómi fjölskipaðs héraðsdóms. Þau hafi síðan komið að húsi sem konan kannaðist ekki við. Hún sagði manninn hafa opnað hurð á húsinu og ýtt henni inn. Þá hafi hann gripið um úlnlið og framhandlegg hennar og sagt henni að fara niður á hné, en allt gerðist þetta í anddyri hússins að sögn konunnar.Öskraði og reyndi að brjótast um Konan lýsti því fyrir dómi að maðurinn hafi klætt hana úr buxum og nærbuxum en hún hafi öskrað og brotist um. Manninum hafi hins vegar tekist að halda henni niðri. „Ákærði hafi stungið fingri inn í leggöng hennar og í framhaldi stungið lim sínum í leggöng hennar. Hún hafi reynt að brjótast um. Skömmu síðar hafi farsími ákærða hringt í tvígang og hann svarað í síðara skiptið. Hann hafi bölvað og svarað viðmælandanum að hann væri að koma.“ Maðurinn hætti þá að sögn konunnar og stóð á fætur en hún missti rænu í sömu andrá og vaknaði ekki fyrr en tveimur til þremur tímum síðar.Telja manninn hafa nýtt sér ölvunarástand konunnar Í niðurstöðu dómsins kemur fram að konan hafi verið mjög ölvuð umrædda nótt og muni ekki vel eftir öllu því sem gerðist en dómurinn metur framburð hennar trúverðugan. Því metur dómurinn það sem svo að maðurinn hafi nýtt sér ölvunarástand konunnar sem gat ekki spornað við kynferðisbrotum mannsins gegn sér, en dómurinn vísar meðal annars í áverka sem konan hafði, framburð vitna sem kölluð voru fyrir dóminn og skýrslu sálfræðings í niðurstöðu sinni. „Ákærði hefur hér í dómi verið sakfelldur fyrir tvö kynferðisbrot gagnvart brotaþola. Beitti ákærði brotaþola líkamlegu ofbeldi og nýtti sér jafnframt ölvunarástand hennar. Brotin ollu brotaþola mikilli sálrænni vanlíðan. Á ákærði sér engar málsbætur. Með hliðsjón af því sæti ákærði fangelsi í 4 ár. Gæsluvarðhaldsvist ákærða frá 6. til 16. apríl 2014 kemur til frádráttar refsingu.“ Dóm héraðsdóms má sjá í heild sinni hér.
Mest lesið Kærir Iðufólk fyrir líkamsárásir, þjófnað og hótanir Innlent „Kemur ekki á óvart að þetta komi fram í Morgunblaðinu“ Innlent Þurfti að lenda flugvél eftir að kennarinn stökk út og hrapaði til bana Erlent Fengu öll áletraða skammbyssu að gjöf frá Erdogan Innlent Kostnaður aldraðra gæti aukist um 50 þúsund krónur Innlent Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár Innlent „Eldgamlir bekkir og kompur sem hjúkrunarfræðingum var holað í“ Innlent Brugðið yfir því hvernig talað sé um Ólaf Ragnar Innlent Virðist ekki iðrast stunguárása og ofbeldis gegn móður sinni Innlent Skemmdarverkið setti svip sinn á útför Innlent Fleiri fréttir ESB-deilan harðnar eftir ummæli erlendra ráðamanna Segja Reykjanesbæ greiða þremur bæjarstjórum laun Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár „Þá sé þetta sem næst útilokað“ Lögreglan þekkti óprúttna aðila á upptökum Krafa Íslands um undanþágur vekur spurningar í ESB Segir skoðanir Ólafs Ragnars ekkert ofboðslega fréttnæmar Opna fyrir umferð á morgun Fjárhagslegt tjón netbrota á árinu nemur hundruðum milljóna Namibíumenn krefjast skaðabóta í Samherjamálinu Hafnaði á skilti Þessi sóttu um starf bæjarstjóra Fjallabyggðar Starfshópur um gervigreind tekinn til starfa Kærir Iðufólk fyrir líkamsárásir, þjófnað og hótanir Öll málning þrifin af kirkjutröppunum Energy Observer komið til Reykjavíkurhafnar „Eldgamlir bekkir og kompur sem hjúkrunarfræðingum var holað í“ Sendi fimmtán ára skilaboð og typpamynd: „Riða i kvöld?“ Strandaði á skeri rétt utan við Húsavík Breskt herskip siglir um Hvalfjörð „Kemur ekki á óvart að þetta komi fram í Morgunblaðinu“ Fannar leiðir hagræðingu í Reykjanesbæ Sjávarútvegurinn og ESB, vopnagjöf og heilbrigðismál Hanna Katrín segir rasista vilja endurskilgreina hlutverk íslenska fánans Skemmdarvargarnir enn ófundnir Kostnaður aldraðra gæti aukist um 50 þúsund krónur Virðist ekki iðrast stunguárása og ofbeldis gegn móður sinni Fengu öll áletraða skammbyssu að gjöf frá Erdogan Skemmdarverkið setti svip sinn á útför Reyndi að stela verkfærum iðnaðarmanna Sjá meira