Gífuryrtur upplýsingafulltrúi gerir Grindvíkinga gráhærða Jakob Bjarnar skrifar 16. október 2015 13:25 Siggeir upplýsingafulltrúi heldur því fram að þeir sem ekki vilja leggja flóttafólki lið með beinum hætti séu barnamorðingjar í sínum huga. Hjálmar sættir sig illa við það en Róbert bæjarstjóri vill bera klæði á vopnin. vísir
Hjálmar Hallgrímsson, sem er forseti bæjarstjórnar Grindavíkur, hefur farið fram á það að Siggeir Ævarsson upplýsingafulltrúi verði fjarlægður þegar bæjarstjórnarfundir eru haldnir. Þetta erindi hefur hann lagt fram og beinir til bæjarstjóra og formanns bæjarráðs. Siggeir er að margra mati gífuryrtur mjög á Facebooksíðu sinni og það sem einkum stendur í Hjálmari, og reyndar fleiri Grindvíkingum, eru ummæli sem eru á þá leið að hann leggi það að jöfnu að vera barnamorðingi og vilja ekki koma flóttafólki til hjálpar.Víkurfréttir greina frá málinu en í samtali við Vísi segir Hjálmar að sér sé slétt sama hvað menn gera á Facebooksíðum og manna á milli. „En, að stilla þeim upp við hlið barnamorðingja sem eru eru tiltekinnar afstöðu til flóttamanna tel ég of mikið sagt.“Til stendur að Siggeir haldi áfram störfum fyrir bæinnSiggeir kaus að tjá sig ekki um málið þegar Vísir falaðist eftir hans sjónarmiðum, en vísaði þess í stað á bæjarstjórann Róbert Ragnarsson, sem var að koma af fundi bæjarstjórnarmanna á Mývatni þegar Vísir náði í hann. Róbert telur þetta ekki óleysanlegan vanda, þetta sé eitthvað sem fólk leysir sín á milli. „Þetta hefur í sjálfu sér ekkert með hans störf fyrir Grindavíkurbæ að gera. Siggeir heldur áfram að sinna sínum störfum eftir sem áður.“ Bæjarstjórinn bendir á að téð ummæli hafi fallið 3. september en bæjarstjórnarfundurinn þar sem flóttamannavandinn var ræddur var haldinn 29. september. Þetta sé því almennt athugað hjá Siggeir. Þá telur Róbert þá tvo hafa rætt málin og þetta sé leyst í hans huga.Hjálmar er óhress með hinn skoðanaríka upplýsingafulltrúa og vill sem minnst af honum vita þegar fundir bæjarstjórnar standa yfir.Engin afsökunarbeiðni liggur fyrirEn, svo er þó ekki ef marka má hljóðið í Hjálmari. Hann segir þetta vissulega svo að honum hafi verið sýnt útprent af þessum ummælum eftir fundinn, og ummælin hafi fallið áður. En, það breyti engu í sínum huga. Engin afsökunarbeiðni liggi fyrir frá Siggeir, heldur réttlætingar á þessum ósmekklega samanburði. Hjálmar hefur því ekki dregið í land með kröfu sína. „Að hvaða leyti er þetta leyst? Ég fatta það ekki? Þessi er staðan. Það hefur ekki verið fundað neitt um þetta.“ Hjálmar segir að til standi að funda í dag klukkan fjögur og hann gerir ráð fyrir því að málið komi þá til umfjöllunar.Bæjarbúinn Siggeir hefur sterkar skoðanirFyrir liggja athyglisverðar færslur Siggeirs á Facebook þar sem hann færir rök fyrir þeim sjónarmiðum sínum að skoðanir hans hafi ekki áhrif á störf sín fyrir bæinn.Siggeir stendur vörð um rétt sinn til að viðra sínar skoðanir.„Vinna mín við heimasíðu Grindavíkurbæjar er öll unnin á 100% faglegan hátt. Síðan er algjörlega ópólítísk og þar einblínum við á jákvæðar fréttir og tökum ekki afstöðu með eða á móti þeim málum sem fjallað er um í bæjarstjórn. Ég aftur á móti, bæjarbúinn Siggeir F. Ævarsson, hef ákveðnar og stundum sterkar skoðanir á sumu sem bæjarstjórn gerir, eðlilega. Ég frábið mér allar fullyrðingar um að ég eigi ekki að skipta mér af grindvískri pólítík vegna stöðu minnar. Vinna mín og skoðanir mínar eru tveir aðskildir hlutir og væri óskandi að fólk gerði sér grein fyrir því. Ef fólk ætlar í alvöru að fara að heimta að ég haldi mínum skoðunum fyrir mig held ég að ég neyðist til að hringja í Ásmund Friðriksson og biðja hann um aðstoð við að verja málfrelsi mitt.“ Ekki eru alveg allir sammála þessum sjónarmiðum, eins og fram kemur á athugasemdaþræði þar sem þessi mál eru rædd af nokkru kappi.Af barna- og mannorðsmorðingjumÞann 3. september síðastliðinn blandaði ég mér í umræður um flóttafólk frá Sýrlandi. Má...Posted by Siggeir F. Ævarsson on 7. október 2015
Mest lesið Kærir Iðufólk fyrir líkamsárásir, þjófnað og hótanir Innlent „Kemur ekki á óvart að þetta komi fram í Morgunblaðinu“ Innlent Þurfti að lenda flugvél eftir að kennarinn stökk út og hrapaði til bana Erlent Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár Innlent Fengu öll áletraða skammbyssu að gjöf frá Erdogan Innlent Kostnaður aldraðra gæti aukist um 50 þúsund krónur Innlent „Eldgamlir bekkir og kompur sem hjúkrunarfræðingum var holað í“ Innlent „Þá sé þetta sem næst útilokað“ Innlent Brugðið yfir því hvernig talað sé um Ólaf Ragnar Innlent Virðist ekki iðrast stunguárása og ofbeldis gegn móður sinni Innlent Fleiri fréttir „Mikið hitaefni en þessi texti á að vera hlutlaus“ ESB-deilan harðnar eftir ummæli erlendra ráðamanna Segja Reykjanesbæ greiða þremur bæjarstjórum laun Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár „Þá sé þetta sem næst útilokað“ Lögreglan þekkti óprúttna aðila á upptökum Krafa Íslands um undanþágur vekur spurningar í ESB Segir skoðanir Ólafs Ragnars ekkert ofboðslega fréttnæmar Opna fyrir umferð á morgun Fjárhagslegt tjón netbrota á árinu nemur hundruðum milljóna Namibíumenn krefjast skaðabóta í Samherjamálinu Hafnaði á skilti Þessi sóttu um starf bæjarstjóra Fjallabyggðar Starfshópur um gervigreind tekinn til starfa Kærir Iðufólk fyrir líkamsárásir, þjófnað og hótanir Öll málning þrifin af kirkjutröppunum Energy Observer komið til Reykjavíkurhafnar „Eldgamlir bekkir og kompur sem hjúkrunarfræðingum var holað í“ Sendi fimmtán ára skilaboð og typpamynd: „Riða i kvöld?“ Strandaði á skeri rétt utan við Húsavík Breskt herskip siglir um Hvalfjörð „Kemur ekki á óvart að þetta komi fram í Morgunblaðinu“ Fannar leiðir hagræðingu í Reykjanesbæ Sjávarútvegurinn og ESB, vopnagjöf og heilbrigðismál Hanna Katrín segir rasista vilja endurskilgreina hlutverk íslenska fánans Skemmdarvargarnir enn ófundnir Kostnaður aldraðra gæti aukist um 50 þúsund krónur Virðist ekki iðrast stunguárása og ofbeldis gegn móður sinni Fengu öll áletraða skammbyssu að gjöf frá Erdogan Skemmdarverkið setti svip sinn á útför Sjá meira