Tæplega fjórðungur sendiherra konur: „Mikið hefur áunnist í þessum efnum“ Stefán Árni Pálsson skrifar 14. apríl 2015 11:24 Gunnar Bragi segir að eitt af þeim markmiðum undanfarna tvo áratugi hafi verið að jafna kynjahlutföll. VÍSIR/Stefán / E.ÓL. „
Utanríkisráðuneytið heldur áfram að stuðla að jöfnu kynjahlutfalli í sendiskrifstofum og tryggja að störf greinist ekki í karla- og kvennastörf,“ segir Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra í samtali við fréttastofu. Í síðasta mánuði kom fram skýrsla frá Ríkisendurskoðun þar sem kom fram að á árunum 2004‒14 voru sendiherrar og sendifulltrúar nær eingöngu karlar. Utanríkisráðuneytið starfrækir 22 sendiskrifstofur í 18 ríkjum. Gunnar Bragi segir að sendiherrar séu í dag 29 karlmenn og níu konur. Estrid Brekkan verður síðan skipuð sendiherra frá og með 1. ágúst nk. og verður hún tíunda konan.Sjá einnig: Jafna þurfi kynjahlutfjöll innan utanríkisþjónustunnar „Það er ávallt horft á kynjahlutfall þegar mönnun sendiskrifstofa er til skoðunar vegna árlegra flutninga. Það eru auðvitað fleiri þættir sem koma til skoðunar í því samhengi, t.d. hver er reynsla og þekking einstaklinga og hvar nýtist hún best, hver eru fyrirsjáanleg verkefni sendiskrifstofa á næstu árum og hvaða þekking þarf að vera fyrir hendi í sendiskrifstofum. En kynjahlutfallið er vissulega meðal þess sem litið er til.“ Í jafnréttislögum segir að atvinnurekendur skuli vinna markvisst að því að jafna stöðu kynjanna á vinnustað og stuðla að því að störf flokkist ekki í sérstök karla- og kvennastörf. Í skýrslunni frá Ríkisendurskoðun er utanríkisráðuneytið hvatt til að beita sér í þessu efni. „Þá er þess ávallt gætt að auglýsingar um laus störf beinist ekki að öðru kyninu sérstaklega. Í öllum auglýsingum er málsgrein þar sem bæði konur og karlar eru hvött til að sækja um starfið.“ Gunnar Bragi segir að eitt af þeim markmiðum undanfarna tvo áratugi hafi verið að jafna kynjahlutföll meðal starfsmanna. „Það kemur enda fram í skýrslu Ríkisendurskoðunar að þetta hafi þróast í rétta átt. Vegna flutningsskyldunnar og framgangskerfisins tekur þetta hins vegar talsverðan tíma, en það er alveg ljóst að mikið hefur áunnist í þessum efnum á undanförnum 15-20 árum. Í skýrslu Ríkisendurskoðunar má sjá þróunina frá árinu 2004-2014.“
Tengdar fréttir Jafna þurfi kynjahlutfjöll innan utanríkisþjónustunnar Starfsmönnum sendiskrifstofa Íslands erlendis fækkaði um 25 milli áranna 2007 og 2014 og raunkostnaður starfseminnar dróst saman. 30. mars 2015 11:43 Mest lesið „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Innlent Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Erlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Innlent Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Erlent Dæmdur fyrir manndráp af gáleysi við Vík Innlent Fleiri fréttir Lögreglan lýsir eftir Ingu Rún Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Gera alvarlegar athugasemdir við málflutning Daða Skoðar uppfærslu í 36 sæta rafflugvél Neysla geðrofs-, tauga- og ofnæmislyfja stóraukist Dæmdur fyrir manndráp af gáleysi við Vík Innan við helmingur karla vill refsingar fyrir vændiskaup Árásin rannsökuð sem tilraun til manndráps Bein útsending: Hvernig birtast menntarannsóknir í opinberri umræðu? „Einn aðili sem hefur til þessa skilað auðu“ Telur ESA falla frá málsókn ef Alþingi samþykkir frumvarpið Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Tvöfalda makrílráðgjöf Ragnar Þór vissi ekkert og meirihluti karla vill ekki refsa fyrir vændiskaup Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Í mál gegn Íslandi fyrir vanefndir á bókun 35 Ein vél Fljótsdalsstöðvar úti „Ég er ógeðslega reiður“ Kröpp og djúp lægð og varasamar vindhviður Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Leitaði að sveppum í Breiðholti í indíánabúningi Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Lögmenn fagna niðurstöðu EFTA-dómstólsins Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Umferðarslys við Nýbýlaveg í Kópavogi Sjá meira
Jafna þurfi kynjahlutfjöll innan utanríkisþjónustunnar Starfsmönnum sendiskrifstofa Íslands erlendis fækkaði um 25 milli áranna 2007 og 2014 og raunkostnaður starfseminnar dróst saman. 30. mars 2015 11:43