Innlent

Lýsa götu barna í Þorlákshöfn

Garðar Örn Úlfarsson skrifar
Efla á öryggi skólabarna í Þorlákshöfn.
Efla á öryggi skólabarna í Þorlákshöfn. Fréttablaðið/GVA
Kiwanisklúbburinn Ölver hefur fengið samþykki bæjarráðs Ölfuss fyrir samstarfi við sveitarfélagið um lýsingu á gangbrautum í Þorlákshöfn. Kiwanismenn segja ráðist í verkefnið Vörpum ljósi með öryggi skólabarna að leiðarljósi.

„Ölver vill leggja til kastara í verkefnið en óskar eftir því að sveitarfélagið sjái um uppsetningu og rekstur þeirra.

Um fjórar gangbrautir er að ræða í nágrenni grunnskólans, þrjár yfir Egilsbraut og ein yfir Hafnarberg,“ segir um málið í fundargerð bæjarráðs.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×