Óttast vanbúið millidómstig Gunnar Atli Gunnarsson skrifar 4. mars 2015 19:35
Nefnd sem innanríkisráðherra skipaði í ágúst 2013 um upptöku millidómstigs skilaði ráðherra tillögum sínum í gær. Verði tillögur nefndarinnar að lögum verður dómum og úrskurðum héraðsdóms skotið til Landsréttar í stað Hæstaréttar. Við Landsrétt munu starfa 15 dómarar og dómurum við Hæstarétt verður fækkað niður í sex og munu fimm dómarar taka þátt í meðferð máls fyrir dómi. Þá munu allir dómarar við Hæstarétt gera grein fyrir atkvæði sínu ólíkt því sem nú er, með því að rita sín eigin dómsatkvæði eða skrifa undir atkvæði annarra. Þá gerir nefndin einnig tillögu um breytingu á skipan dómara við Hæstarétt. Skúli Magnússon, formaður dómarafélags Íslands, gerir ýmsar athugasemdir við tillögur nefndarinnar. Til dæmis sé gert ráð fyrir að Hæstiréttur geti tekið við málum beint frá héraðsdómi án þess að málin komi til meðferðar hjá Landsrétti. „Þarna gæti framkvæmdin verið með ýmsum hætti en það er hægt að sjá fyrir sér að hún gæti farið hreinlega út í vitleysu ef Hæstiréttur nýtir þessa heimild mjög mikið og mjög frjálslega,“ segir Skúli. Þá bendir hann á að hér sé verið að koma á nýjum dómstól sem kosti mikla fjármuni, bæði í stofnkostnað og rekstrarkostnað til framtíðar. Ekki séu til nægir peningar til að reka það litla dómskerfi sem fyrir er. „Og ef þeir peningar eru ekki fyrir hendi, þá sé ég ekki hvernig menn ætla að fjármagna fullvaxið millidómstig. Ég óttast að ef menn fara í þann leiðangur þá að þá verði það ekki gert af nægilegum efnum og þetta nýja millidómstig verði þá vanbúið hvað varðar fjármuni og mannafla. Þá er betur heima setið en af stað farið,“ segir Skúli. Viðtalið við Skúla í heild má sjá hér að neðan:
Mest lesið „Köld vatnsgusa“ framan í skólasamfélagið í Laugardal Innlent Fékk ekki að kveðja eiginmanninn fyrir flugið til Nígeríu Innlent „Heill vinnustaður er dreginn sundur og saman í háði“ Innlent „Við lögleiðum heróínið en bönnum áfengið. Þetta er galið“ Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Vann fimmtíu milljónir króna Innlent Vill bjóða NATO að byggja nýjan flugvöll í Færeyjum Erlent Vitni gefur ekki upp nafn vegna ótta við hefndaraðgerðir Innlent Þurftu að farga 30 þúsund eintökum vegna forsetaframboðs Innlent Lýsa eftir Sigurði Fannari Innlent Fleiri fréttir Vann fimmtíu milljónir króna „Köld vatnsgusa“ framan í skólasamfélagið í Laugardal 1.715 börn fengið leikskólapláss Fékk ekki að kveðja eiginmanninn fyrir flugið til Nígeríu Vill sjá Latabæ birtast aftur í sjónvarpsstöðvum heims Drengurinn er fundinn Lýsa eftir Sigurði Fannari „Við lögleiðum heróínið en bönnum áfengið. Þetta er galið“ Koma á fót framkvæmdanefnd um málefni Grindavíkur Vonleysi veðmálanna og eiginmanni vísað úr landi Álftin breyttist í dreka og rak hundinn upp úr með látum Sóttu veikan mann á skemmtiferðaskip umkringt hafís Settur forstjóri skipaður forstjóri „Heill vinnustaður er dreginn sundur og saman í háði“ Breyttar forsendur kalli á nýjan unglingaskóla í Laugardal Ævintýralandið Ísland séð úr háloftunum Dæmdir fyrir ofbeldishrinu Hefur áhyggjur af nýfæddum lömbum á Höfða Uppflettingar í sjúkraskrá: Segir málinu alls ekki lokið Ítrekar afsökunarbeiðni til vöggustofubarna og fjölskyldna þeirra Helmingi dræmari kjörsókn nú en í síðustu forsetakosningum Fulltrúar Stígamóta reyna að tryggja öryggi kvennanna í Nígeríu Heimsótti Julian Assange í Belmarsh-öryggisfangelsið Brottvísun hælisleitenda og dræm þátttaka í utankjörfundi Bein útsending: Má ég taka þátt... í lífinu? Vitni gefur ekki upp nafn vegna ótta við hefndaraðgerðir Beint streymi: Uppfinningar og einkaleyfi Landris heldur áfram á sama hraða Þurftu að farga 30 þúsund eintökum vegna forsetaframboðs Friðlýsir hluta Fjaðrárgljúfurs Sjá meira