Mikil stemmning á Flugfélagshátíð Hróksins í Nuuk Atli Ísleifsson skrifar 22. maí 2015 23:28 Fólk á öllum aldri getur spilað skák. Mynd/Hrókurinn
Flugfélagshátíð Hróksins í Nuuk á Grænlandi stendur nú sem hæst og er óhætt að segja að höfuðborg Grænlands iði af skáklífi. Auk þess að sinna skákviðburðum hafa liðsmenn Hróksins heimsótt skóla, athvörf og heimili fyrir börn með mikið af vönduðum og góðum fatnaði og öðrum gjöfum. Í tilkynningu frá Hróknum segir að fyrr í dag hafi verið gengið frá því að Polar Seafood, stærsta fyrirtæki Grænlands, verði bakhjarl skákhátíðar á austurströndinni í ársbyrjun 2016. Þetta er þriðja ferð Hróksmanna til vestur til Grænlands á þessu ári, en alls hafa félagsmenn farið um fimmtíu sinnum til Grænlands til að breiða út skákíþróttina og stuðla að auknum tengslum og vináttu og grannþjóðanna á sem flestum sviðum. Vísir/HrókurinnAukinn skákáhugi á Grænlandi „Flugfélagshátíðin hófst á þriðjudaginn og á föstudag var fjöltefli í Nuuk Center, verslunarmiðstöð höfuðborgarinnar. Þar tefldu Róbert Lagerman, Omar Salama og Hrafn Jökulsson um 80 skákir gegn heimamönnum á öllum aldri. Ásamt þeim eru í föruneyti Hróksins Arnljótur Sigurðarson, Jóhanna Engilráð Hrafnsdóttir, Jón Grétar Magnússon, Jökull Jónsson og Margrét Pála Ólafsdóttir. Þau hafa notið ómetanlegrar liðveislu Kristjönu Guðmundsdóttur Motzfeldt, Péturs Ásgeirssonar sendiherra og Jóhönnu Gunnarsdóttur konu hans, auk félaga úr hinu vaska skákfélagi Nuuk. Á laugardag verður Flugfélagsmótið 2015 haldið í Nuuk Center og má búast við mjög spennandi keppni. Áhugi á skák hefur vaxið mjög í höfuðborginni á síðustu árum, eftir fjölmargar heimsóknir Hróksmanna.Vísir/HrókurinnSkákveisla á Austur-Grænlandi í ársbyrjun 2016 Í frétt frá Hróknum kemur fram að á föstudag hittu fulltrúar félagsins Henrik Leth, formann Samtaka atvinnulífsins á Grænlandi og stjórnarformann Polar Seafood, sem er stærsta fyrirtæki Grænlands. Polar Seafood stóð ásamt Síldarvinnslunni á Neskaupstað að frábærri skákveislu á Austur-Grænlandi í febrúar, og á fundinum í dag var ákveðið að endurtaka leikinn í ársbyrjun 2016. Fjölmargir einstaklingar og fyrirtæki hafa lagt Hróknum lið við Flugfélagshátíðina í Nuuk. Helstu bakhjarlar eru FÍ, Kjarnafæði, Nói Síríus, HENSON, Ísspor, MS, Grænn markaður, Nuuk Center, Sögur útgáfa o.fl. Þá sendi hinn kraftmikli prjónahópur Rauða krossins í Reykjavík höfðinglega gjöf og Guðjón Kristinsson frá Dröngum lagði til listaverk sem afhent verður á laugardag við hátíðlega athöfn. Flugfélagshátíð Hróksins í Nuuk lýkur á þriðjudaginn og er hægt að fylgjast með gangi mála á Facebook-síðu Hróksins,“ segir í tilkynningu.Mynd/HrókurinnMynd/HrókurinnMynd/HrókurinnMynd/HrókurinnMynd/HrókurinnMynd/Hrókurinn
Mest lesið Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Innlent Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Innlent Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Hló að svari sambýliskonunnar Innlent Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Innlent Fleiri fréttir Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Lögmenn fagna niðurstöðu EFTA-dómstólsins Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Umferðarslys við Nýbýlaveg í Kópavogi Gæsluvarðhald sonar þingmannsins aftur framlengt Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Hló að svari sambýliskonunnar Tilboð hrikalega hátt yfir kostnaðaráætlun Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Möguleg tengsl við heilabilun Skora á borgina að afturkalla uppsagnir á samningum við listamenn Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn „Enn ein vondu tíðindin af þessu máli“ Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Verðbólga, uppsagnir og mikil notkun svefnlyfja Forstjórar leita lausna Fulltrúi prentara vill verða forseti ASÍ Sýklalyfjanotkun í dýrum jókst um rúm tuttugu prósent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ „Dýr geta augljóslega ekki sjálf leitað réttar síns“ Segir upp eftir tvær vikur í starfi Lægð upp að landinu og önnur dýpri á morgun Tólf með réttarstöðu sakbornings vegna andláts á Stuðlum Einn stöðvaður sem var að „drifta“ á hringtorgi Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Sjá meira