Þurfa að endurprenta byggðasöguna vegna klúðurs Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar 8. febrúar 2015 21:24
Grímsnes- og Grafningshreppur stendur frammi fyrir óvæntum útgjöldum því sveitafélagið þarf að greiða nokkrar milljónir króna í endurprentun á byggðasögðu sveitarfélagsins vegna mistaka í nýrri bók. „Klúður sem sveitarstjórn tekur á sig,“ segir Hörður Óli Guðmundsson varaoddviti. Fyrir jól kom út bók á vegum Grímsnes- og Grafningshrepps um byggðasögu Grafnings og Grímsness. Þegar menn fóru að skoða nýju bókina komu í ljós allskonar villur og sumar fjölskyldur vantaði alveg inn í bókina. „Stóra bókamálið snýst um það að bókin er ekki alveg eins og hún átti að vera eða eins og við vildum hafa hana. Okkur þykir þetta mjög miður því við vildum standa vel að þessu og vera stolt af útgáfunni því að þetta er mjög gott rit,“ segir Hörður Óli. Ef hann vissi hvernig svona mistök gerðust þá hefðu þau eðlilega ekki orðið. „Þetta gerist, ætli þetta sé ekki lífið sjálft? Það er svona, það er ekkert annað að gera en laga það,“ segir Hörður Óli sem segist leiður yfir mistökunum. „Þetta er þyngra en tárum taki að þurfa að leiðrétta sig og gera hlutina aftur. Það er mjög leiðinlegt.“ Nokkrar milljónir króna kostar að láta endurprenta bókina með nýjum upplýsingum en stefnt er á að nýju eintökin komi út í vor. En hver eða hverjir bera ábyrgð á mistökunum með bókina? „Nú, auðvitað berum við ábyrgð á þessu klúðri, sveitarstjórnin og þar með ég. Við vonum bara að þetta verði gleymt og grafið þegar kosið verður næst,“ segir varaoddvitinn.
Mest lesið Fólk að skila sér heim eftir rassskellingu Innlent „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Innlent Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Innlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Kvöldfréttir Sýnar í beinni Innlent Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Innlent „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent Fleiri fréttir Tekinn úr umferð vegna ótrúlegrar brotahrinu Góðu fréttirnar þær að innlend verðbólga sé á undanhaldi Druslur ganga í fjórtánda sinn: „Aldrei verið meiri þörf á því heldur en núna“ Tveir af þremur í fangelsi vegna eldri dóma Air China setur beint flug í sölu Verðbólgan eykst enn og borgarstjóri boðar aðgerðir gegn innbrotum Kynna nýtt varanúmer fyrir Neyðarlínuna Vara við hviðum sunnan við Vatnajökul Pallborðið: Nei eða já? Hvalavinir lýsa eftir týndum skýrslum Leggur til breytingar á útivistartíma barna Mikil óhreinindi í ólöglegum peptíðum Fólk að skila sér heim eftir rassskellingu Austurfrétt liggur niðri vegna netárásar Tekið fram að svipting starfsleyfis eigi ekki að vera refsing Umræðan hafi „aftur og aftur snúist um getgátur, misskilning og útúrsnúninga“ Stúlkan fannst heil á húfi „Við hlaupum bara hraðar eftir því sem gestunum fjölgar“ Lögreglan á Norðurlandi eystra lýsir eftir fjórtán ára stúlku Bleikjuvinnslunni breytt í brugghús Lögregla og björgunarsveitir leita að manneskju á Akureyri „Þarf að hafa afleiðingar ef fólki er lógað af heilbrigðisstofnun“ Mikilvægt að draga lærdóm af gerð gatnamótanna „Vald flugstjórans er náttúrulega alveg klárt“ Segir málið verða að hafa afleiðingar fyrir Skúla Tómas Vestmannaeyjabær áfrýjar til Landsréttar Segir Dag plata með úreltri skýrslu Leiðrétting fréttar: Það sem Þorgerður sagði í raun Íslenskt sumarveður verðmæt auðlind Vara við hættulegum aðstæðum við Sólheimajökul Sjá meira