Vafasamt að tengja saman fiskneyslu og geðheilbrigði Óli Kristján Ármannsson skrifar 15. ágúst 2015 07:00 Fiskneysla Íslendinga hafi dregist mjög saman um leið og notkun geðlyfja hefur aukist. Í ljósi fregna frá Ástralíu um hamlandi áhrif Omega-3 fitusýra á geðsjúkdóma gæti einhver freistast til að tengja það saman. vísir/gva
Afar vafasamt væri að leiða að því líkur að samdráttur í neyslu fiskmetis hér á landi síðustu áratugi sé áhrifaþáttur í aukinni notkun á tauga- og geðlyfjum hér á landi. Þetta segir Engilbert Sigurðsson, prófessor í geðlækningum og yfirlæknir á geðsviði Landspítala. Greint hefur verið frá niðurstöðum rannsóknar vísindamanna við háskólann í Melbourne í Ástralíu sem sýndu að hópur ungmenna í áhættuhóp á að þróa með sér geðrofssjúkdóma svo sem geðklofa voru ólíklegri til að þróa með sér sjúkdóminn ef þeir neyttu Omega-3 fitusýra í að minnsta kosti 12 vikur þegar fyrstu einkenni geðrofs voru að greinast hjá þeim fyrir sex til sjö árum. Engilbert bendir raunar á að algengi alvarlegri geðrofssjúkdóma hafi hreint ekki aukist í þróuðum ríkjum Evrópu á síðustu áratugum. „Það hefur frekar dregið úr nýgengi í Evrópu og það er almennt ekki að aukast í vestrænum löndum þar sem vel er haldið utan um mæðravernd og næringarástand hefur verið gott og aðrir þættir sem skipta máli fyrir þroska miðtaugakerfisins.“ Flestir sem eru að veikjast ungir af geðklofa í dag hér á landi segir hann að hafi byrjað að nota kannabisefni reglulega sem unglingar og hafi að auki erfðaáhættu fyrir þróun geðrofssjúkdóma.Engilbert SigurðssonÞá segir Engilbert að þótt vitað sé að geðlyfjanotkun hafi aukist hér á landi síðustu tvo áratugi þá geti verið þar að baki fleiri ástæður en snúa að þróun geðheilbrigðis. „Notkun geðlyfja hefur aukist hér eins og á öðrum Vesturlöndum og heldur meira hér, en það er það sama og á við um ýmsa aðra lyfjanotkun hér á Íslandi,“ segir hann. Hér hafi verið tilhneiging til að lyfjanotkun aukist hraðar, en svo komi hin löndin alla jafna í kjölfarið með svipaða aukningu. Þannig séu Svíar á mjög svipuðum stað og Íslendingar hvað varði notkun þunglyndislyfja. „Málið er flókið og erfitt að smætta það í einföld skilaboð.“ Fréttir af áströlsku rannsókninni á ágæti Omega-3 fitusýra til forvarna gegn frekari þróun geðrofsveikinda segir Engilbert hins vegar í eðli sínu jákvæðar. „Við þurfum bara að sjá fleiri rannsóknarhópa komast að sömu niðurstöðu áður en við förum að leggja eitthvað upp úr þessu.“ Áður hafa verið birtar niðurstöður fyrstu rannsókna sem bent hafa til gagnsemi Omega-3 fitusýra við öðrum krankleika, án þess að frekari rannsóknir styddu þær niðurstöður á fullnægjandi hátt. Engilbert bendir á að frekari rannsóknir hafi þannig ekki rennt nægilega sterkum stoðum undir vísbendingar um að Omega-3 drægi úr líkum á þunglyndi. Þá komu í fyrra fram niðurstöður rannsóknar í hjartalækningum á áhrifum Omega-3 á gáttatif sem sýndu að gagnstætt því sem talið var þá gerðu fitusýrurnar meira ógagn en gagn í þeim efnum.
Mest lesið „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Innlent Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin Innlent „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ Innlent Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Innlent Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Innlent Var illa sofin og endaði á bíl úr gagnstæðri átt Innlent Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Innlent Erfitt að stöðva umfangsmikla sölu Innlent Herinn sé reiðubúinn að tortíma Íran verði Trump ráðinn af dögum Erlent Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Innlent Fleiri fréttir Hluti af þriðja vinningi lenti á Íslandi Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Gagnrýna könnun sem sýni fram á stuðning við dánaraðstoð Breiðholtsbrú opin fyrir umferð Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Gefur engin fyrirheit um lækkun áfengisgjalda Kynferðisbrot á Hólum og gular viðvaranir Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Þrír handteknir fyrir brot á lögreglusamþykkt Erfitt að stöðva umfangsmikla sölu Var illa sofin og endaði á bíl úr gagnstæðri átt Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Bandero yfirgefur Íslandsmið vegna veikinda Hryðjuverkamálið, Landsmót hestamanna og neytendur „hafðir að fíflum“ með Lite-bjórum „Vinalegt“ spjall í bílakjallara sem varð að manndrápstilraun „Svimandi“ bótakröfur á leiðinni frá Sindra Snæ og Ísidóri Strandamenn klárir í almyrkvann Hryðjuverkamálinu lokið fjórum árum eftir handtöku „Sannarlega áhugaverð gjöf“ Þyngja þurfi dóma þeirra sem láta sér ekki segjast „Hver þarf Tenerife þegar þú hefur Hérað?“ Segir undanþágur rekast á grunnforsendur ESB „Erfitt að vera svona lengi úti á sjó“ Flýtir afgreiðslu um allt að mánuð „Ég hef aldrei farið á Vog, ekki enn þá“ „Við skulum ekki láta grípa okkur með buxurnar á hælunum þetta árið“ Sjá meira