Utanríkismálanefnd mun funda um stuðning NATO við aðgerðir Tyrkja Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar 31. júlí 2015 13:43 Ástandið í Tyrklandi er eldfimt um þessar mundir, myndin er af mótmælum í Istanbúl í vikunni. Vísir/EPA
Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstrihreyfingarinnar, hefur óskað eftir fundi í utanríkismálanefnd til þess að ræða stuðning Atlantshafsbandalagsins við aðgerðir Tyrkja við landamæri Írak og Sýrlands. Aðgerðirnar beinast ekki síður gegn Kúrdum heldur en ISIS. Kúrdar hafa sjálfir tekið þátt í baráttunni gegn ISIS. „Ég ákvað að biðja um fund eftir að hafa lesið þessar fréttir í vikunni,“ segir Katrín í samtali við Vísi. Hún spyr á hvaða forsendum Atlantshafsbandalagið styður hernaðaraðgerðir Tyrkja því um er að ræða áratugalanga baráttu Tyrkja og Kúrda. „Það er verið að blanda henni inn í allt annað mál sem er ISIS. Kúrdar hafa líka verið framarlega í baráttunni gegn ISIS þannig að maður veltir því fyrir sér hvaða afleiðingar þetta muni hafa,“ segir Katrín. „Ég vil annars vegar fá skýringu á hvaða forsendur væru á bakvið þennan fund Atlantshafsbandalagsins og hvort að íslensk stjórnvöld hefðu skoðað þetta mál sérstaklega og gert einhverjar athugasemdir við þetta.“ Katrín hefur lýst yfir miklum efasemdum við stuðning Íslands við aðgerðirnar gegn ISIS. „Ég sé ekki að þær séu í raun og veru að skila þessum árangri.“ Hún vill fara í annars konar aðgerðir heldur en loftárásir. Birgir Ármannson, formaður utanríkismálanefndar, hyggst kalla til fundar sem fyrst, ef til vill strax í næstu viku að sögn Katrínar. „Það hafa allir skilning á því að það gæti reynst erfitt að kalla saman fund en hann hafði mikinn skilning á þessu og sagðist myndu koma á fundi í næstu viku, mig minnir að hann hafi sagt næstu viku já.“
Mest lesið Dóra Björt til liðs við Samfylkinguna Innlent Píratar bjóða ekki fram í vor og Sigurbjörg Erla hættir Innlent Þau eru tilnefnd sem maður ársins Innlent Margrét Löf dæmd í 16 ára fangelsi Innlent „Óásættanlegt“ að taka borgarfulltrúa af gestalistanum Innlent Bein útsending: Boða óvænt til blaðamannafundar í Ráðhúsinu Innlent Hafi hnakkrifist í teiti hjá Conan stuttu fyrir morðið Erlent Úkraína fái tryggingar sem jafngilda 5. greininni Erlent Hækka hitann í Breiðholtslaug Innlent Brestir í MAGA-múrnum Erlent Fleiri fréttir Theodóra ætlar ekki fram aftur fyrir Viðreisn „Hæstvirtur yfirlætisráðherra, nei fyrirgefðu, hæstvirtur forsætisráðherra“ Lesstofu Borgarskjalasafnsins lokað Margrét Löf dæmd í 16 ára fangelsi „Óásættanlegt“ að taka borgarfulltrúa af gestalistanum Það hafi víst verið haft samráð við sjávarútveginn Píratar bjóða ekki fram í vor og Sigurbjörg Erla hættir „Við vitum að áföllin munu koma“ Alexandra sækist eftir oddvitasætinu Pírati skiptir um skútu og makrílsamningur fellur í grýttan jarðveg Dóra Björt til liðs við Samfylkinguna Æfur vegna samnings um makríl: „Skiljum vini okkar Grænlendinga eftir á köldum klaka“ Engin breyting á trúfélagsskráningu landsmanna Bein útsending: Boða óvænt til blaðamannafundar í Ráðhúsinu Hækka hitann í Breiðholtslaug Meðalbílaleigubíllinn verði fyrir mestum áhrifum Óvíst hvort Guðmundur Ingi snúi aftur í ráðuneytið Fjölgun landsmanna það eina sem hafi komið í veg fyrir tekjufall Rúv Umferðarslys á Breiðholtsbraut Orð gegn orði um samskipti innan almannavarnarnefndar Skýrslan ekki til neins ef ekki verði brugðist við Faðir sem missti þrjú börn í Súðavík tjáir sig um uppgjör rannsóknarnefndar Bíll bilaði og Hvalfjarðargöngum lokað um stund Kanna áhuga á mögulegu framboði Guðlaugs í borginni Vistunin sé kerfisbundið brot á mannréttindum Hvorki álit né vangaveltur um ábyrgð einstaklinga í skýrslunni Þau eru tilnefnd sem maður ársins Lögðu hald á sautján skotvopn og skotfæri um helgina Stór mál standa enn út af Í takt við það sem verið hefur Sjá meira