Ísland breytti atkvæði sínu hjá Sameinuðu þjóðunum Stefán Rafn Sigurbjörnsson skrifar 12. desember 2015 07:00 Ísland ásamt öðrum ríkjum taldi að samkomulagið gæti grafið undan núverandi samkomulagi. Ísland ásamt öðrum ríkjum taldi að samkomulagið gæti grafið undan núverandi samkomulagi. Fréttablaðið/Brjánn Jónsson
Fastanefnd Íslands hjá Sameinuðu þjóðunum sat hjá í atkvæðagreiðslu um sáttmála um alþjóðlegt kjarnorkuvopnabann. Í byrjun nóvember hafði sendinefnd Íslands greitt atkvæði gegn samkomulaginu og var eitt 29 ríkja sem gerði slíkt. Að þessu sinni voru það 133 ríki sem greiddu atkvæði með samkomulaginu, 23 kusu gegn og 28 sátu hjá. Bretland, Bandaríkin, Frakkland, Rússland og Kína kusu ekki með samkomulaginu. Í svari utanríkisráðuneytisins við fyrirspurn Fréttablaðsins um samkomulagið og afstöðu Íslands segir þar að ekki er deilt um lokatakmarkið sem er kjarnorkuvopnalaus heimur. Það hafi komið fram í atkvæðaskýringu Íslands og kemur heim og saman við afstöðu Gunnars Braga Sveinssonar utanríkisráðherra. „Við viljum ekki sjá þessi vopn og við viljum að þeim sé öllum eytt og ekki búin til ný,“ sagði Gunnar Bragi í viðtali í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni þann 10. nóvember síðastliðinn. Þá kemur skýrt fram í nýrri þjóðaröryggisstefnu sem utanríkisráðherra hefur lagt fram á Alþingi að Ísland skuli vera friðlýst fyrir kjarnorkuvopnum. Í svari ráðuneytisins kemur fram að ástæða þess að Ísland sat hjá ásamt fleiri ríkjum er að til staðar er samningur sem bannar útbreiðslu kjarnorkuvopna, svokallaður NPT-samningur. Mat ríkjahópsins sem sat hjá er að nýtt samkomulag kynni að grafa undan NPT-samningnum. „Sá samningur er vissulega ekki gallalaus og málamiðlun á sínum tíma. Hann er hins vegar sá samningur og það ferli sem hin opinberu fimm kjarnaveldi eru aðilar að, sem er auðvitað frumforsenda þess að árangur náist,“ segir í svari ráðuneytisins.
Mest lesið Freyr látinn fara frá Eflingu Innlent Fulltrúi Íslands yfirgaf ekki salinn með hinum Innlent Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Innlent María Sigurðardóttir er látin Innlent Segir Ingu hafa vitnað í trúnaðarsamtal Innlent Meira um krabbamein hjá yngra fólki sem eigi að borða rautt kjöt mest einu sinni í viku Innlent Veita ekki viðtöl eftir ríkisstjórnarfund Innlent Holmes flutt á áfangaheimili Erlent Hafði ekkert með átök sundþjálfaranna að gera Innlent Kjarni málsins sé að Inga hafi ekki sagt alveg rétt frá Innlent Fleiri fréttir Allt umfram 2,8 milljarða dregið frá Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Húsbíll fauk út af Hver ákvað að Guðmundur Ingi ætti að hætta? Gæsluvarðhald framlengt yfir þremur Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Fundu umfangsmikla kannabisrækt í Bolungarvík „Nauðsynlegt er að kjarasamningar haldi“ Hafði ekkert með átök sundþjálfaranna að gera Freyr látinn fara frá Eflingu Segir Ingu hafa vitnað í trúnaðarsamtal Stefna á að taka inn skjólstæðinga í næstu viku Segir Ingu hafa brotið trúnað í ræðustól Alþingis Bein útsending: Sjálfsvíg á Íslandi – staðan, forvarnir og leiðin fram á við „Við erum ekki að byrja á núlli“ Fimm ára dómur Norberts staðfestur Veita ekki viðtöl eftir ríkisstjórnarfund Jöfnuður næst ekki í um öðrum hverjum kosningum Kjarni málsins sé að Inga hafi ekki sagt alveg rétt frá Endurskoða samning SÁÁ María Sigurðardóttir er látin Handtekinn fyrir líkamsárás, rán, íkveikju og þjófnað Fulltrúi Íslands yfirgaf ekki salinn með hinum Meira um krabbamein hjá yngra fólki sem eigi að borða rautt kjöt mest einu sinni í viku „Það er skilgreiningin á því að pissa í skóinn sinn“ Sorpa skoðar að fara í mál við grenndargámasóða „Mistök að fela honum forystu“ „Ég hef mikið til verið hér á eigin spýtur“ Uppselt á opnunarmyndina í tveimur sölum Mundaði hníf og skotinn með rafbyssu í Hagkaup á Eiðistorgi Sjá meira