Ljúka smíði nýs kappakstursbíls Linda Blöndal skrifar 6. apríl 2015 19:30
Verið er að leggja lokahönd á smíði nýs kappakstursbíl hjá verkfræðinemum við Háskóla Íslands. Haldið verður utan með bílinn þar sem keppt verður á alþjóðlegu hönnunar og kappakstursmóti. Langur undirbúningur Um fjörtíu nemendur í verkfræði við Háskóla Íslands hafa frá því í haust unnið að þróun og smíði kappakstursbílsins TS15, meðal annars í samstarfi við nemendur Listaháskóla Íslands. Nemarnir taka þátt í alþjóðlegu kappaksturs- og hönnunarkeppninni Formula Student sem verður haldin verður meðal annars á Silverstone-kappakstursbrautinni í Englandi í júlí næstkomandi.Keppa við meira en 110 liðÍslenska liðið nefnir sig Team Spark og tekur þátt í fimmta sinn í þessari árlegu keppni. Liðið er nokkuð breytt frá því í fyrra en það hlaut síðast viðurkenningu sem bestu nýliðarnir og hlaut flest stig fyrir endurnýjanleika. Rúmlega 30 verkfræðistúdentar í liðinu fara út í keppnina. „Þetta er alþjóðleg keppni og hún er haldin í öllum heimsálfum. Við tökum þátt í keppninni á Silverstone vellinum og þar verða yfir þrjú þúsund verkfræðinemar frá öllum heiminum. Við keppum við yfir 110 lið, frá 110 háskólum", segir Aðalheiður Guðjónsdóttir, liðstjóri. Fáum reynslu sem verkfræðingar Útsendarar frá stærstu bílafyrirtækjum heims verða á vettvangi og í keppninni felst ómetanleg starfsreynsla segir Aðalheiður. „Við fáum svolítið að finna fyrir því hvað verkfræðingar gera. Við fáum verkefni sem við vitum ekkert hvernig við eigum að leysa og við verðum bara að koma því á áfangastað og ég held að það sé frábært fyrir nema svona snemma í náminu að fá að kynnast þessu".Þurfum að rökstyðja og skýra alltÍ keppninni gera dómararnir miklar kröfur. „Við þurfum að rökstyðja hönnunina og allan kostnað. Við þurfum líka að selja okkar hugmynd og erum við viðskiptakynningu, við þurfum að hugsa verkefni frá A til Ö. Við þurfum jafnvel að hugsa að ef við tökum ál, þá hvernig við ætlum að framleiða hlutinn og líka hvernig við ætlum að farga hlutnum. Við þurfum að hugsa þetta alveg frá því að álið er framleitt og þangað til að það er komið í endurvinsslu - og allt þar á milli", sagði Aðalheiður í fréttum Stöðvar tvö í kvöld. Léttasti bíllinn hingað tilÁherslan er sem fyrr á rafknúinn og umhverfisvænan bíl og keppt verður í flokki þar sem bæði er dæmt út frá hönnun bílsins og akstri. Sá nýji er langtum léttari en sá sem farið var með út í fyrra, til að mynda eru koltrefjar notaðar í stað áls. Aðalheiður segir að ökumaðurinn muni hálpartinn liggja í bílnum þegar honum er ekið svo mikill halli sé á sætinu. Sex af nemendunum hafa gefið sig fram til að keyra svo áhuginn er því þónokkur að keppa í nýja tækinu. Fræðilega mun bíllinn komast upp í 120 kílómetra hraða á tveimur til þremur sekúndum en hann verður vígður með athöfn á Háskólatorgi næstkomandi fimmtudag klukkkan 17.
Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Innlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent Tilkynnt um ölvaðan flugmann Innlent Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði Innlent „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Innlent Fleiri fréttir Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði ESA geti ekki beðið endalaust Valgerður réttir fram sáttahönd Vill að Daði vísi til þess sem hún á að hafa sagt Tilkynnt um ölvaðan flugmann Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Konan sem lögreglan lýsti eftir er fundin Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Gera alvarlegar athugasemdir við málflutning Daða Skoðar uppfærslu í 36 sæta rafflugvél Neysla geðrofs-, tauga- og ofnæmislyfja stóraukist Dæmdur fyrir manndráp af gáleysi við Vík Innan við helmingur karla vill refsingar fyrir vændiskaup Árásin rannsökuð sem tilraun til manndráps Bein útsending: Hvernig birtast menntarannsóknir í opinberri umræðu? „Einn aðili sem hefur til þessa skilað auðu“ Telur ESA falla frá málsókn ef Alþingi samþykkir frumvarpið Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Tvöfalda makrílráðgjöf Ragnar Þór vissi ekkert og meirihluti karla vill ekki refsa fyrir vændiskaup Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Í mál gegn Íslandi fyrir vanefndir á bókun 35 Ein vél Fljótsdalsstöðvar úti „Ég er ógeðslega reiður“ Kröpp og djúp lægð og varasamar vindhviður Sjá meira