Fjölgar í 45 sveitarfélögum landsins sveinn arnarsson skrifar 17. mars 2015 08:30 Gleði á 17. júní. Landsmönnum fjölgaði um tæplega 3.500 í fyrra. Mikil fjölgun varð á sunnanverðum Vestfjörðum. Fréttablaðið/Daníel
Íbúum Reykjavíkur fjölgaði um 592 á síðasta ári sem er fjölgun um 0,5 prósent. Fjölgaði hlutfallslega meira í fjörutíu sveitarfélögum landsins en í Reykjavík. Mest fækkun var í Djúpavogshreppi en þar fækkaði íbúum um ríflega tíu prósent á einu ári. Þetta kemur fram í nýjum tölum Hagstofunnar um íbúafjölda í sveitarfélögum landsins þann 1. janúar 2015. Í ársbyrjun voru landsmenn 329.100 talsins og hafði fjölgað um 3.429 frá sama tíma í fyrra. Fjölgun landsmanna er því um eitt prósent. Í þremur stærstu sveitarfélögum landsins, Reykjavík, Kópavogi og Hafnarfirði, fjölgar íbúum samanlagt um 2.007. Í Kópavogi fjölgaði íbúum hlutfallslega um 2,8 prósent en í Hafnarfirði um 1,9 prósent. Ef svæði eru skoðuð í heild sést að Vestfirðir standa í stað, örlítil fækkun er á Austurlandi en fækkun á Norðurlandi vestra. Hin svæðin standa vel að vígi og fjölgun er á landsbyggðunum í heild sinni. Hins vegar, þegar sveitarfélög eru skoðuð, kemur í ljós að fækkun er umtalsverð á sumum svæðum.Þóroddur Bjarnason„Það vekur athygli í þessum tölum að íbúum sveitarfélaga í námunda við sterka kjarna fjölgar umtalsvert. Íbúum nágrannasveitarfélaga Reykjavíkur fjölgar meira en íbúum í Reykjavík. Með sama hætti fjölgar meira í nágrannasveitarfélögum Akureyrar en Akureyringum,“ segir Þóroddur Bjarnason, formaður stjórnar Byggðastofnunar. „Þetta á sér ýmsar skýringar en hækkandi fasteignaverð hefur eflaust talsverð áhrif.“ Á suðvesturhorni landsins fjölgar íbúum talsvert á Reykjanesi, í Reykjanesbæ og Grindavík, en einnig í Árborg og Hveragerði austan Hellisheiðar. „Fólki fjölgar líka á svæðum utan áhrifasvæða þéttbýlisstaða. Það vekur athygli að þau átta sveitarfélög þar sem fólksfjölgun er mest eru fámennir hreppar víðsvegar um landið,“ segir Þóroddur. Athygli vekur að langmesta fækkunin er í Djúpavogshreppi þar sem íbúum fækkar um ríflega tíu prósent á einu ári. „Árið í fyrra var afar erfitt fyrir Djúpavog og flutningur Vísis til Grindavíkur kostaði sveitarfélagið tíund íbúafjöldans. Það er mikilvægt að byggðarlagið nái viðspyrnu strax,“ segir Þóroddur. „Sem betur fer er ástandið á Djúpavogi ekki dæmigert fyrir landsbyggðirnar sem eru margar í sókn.“
Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Innlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent Tilkynnt um ölvaðan flugmann Innlent Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði Innlent Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Innlent Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Fleiri fréttir Bíl ekið á ljósastaur Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði ESA geti ekki beðið endalaust Valgerður réttir fram sáttahönd Vill að Daði vísi til þess sem hún á að hafa sagt Tilkynnt um ölvaðan flugmann Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Konan sem lögreglan lýsti eftir er fundin Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Gera alvarlegar athugasemdir við málflutning Daða Skoðar uppfærslu í 36 sæta rafflugvél Neysla geðrofs-, tauga- og ofnæmislyfja stóraukist Dæmdur fyrir manndráp af gáleysi við Vík Innan við helmingur karla vill refsingar fyrir vændiskaup Árásin rannsökuð sem tilraun til manndráps Bein útsending: Hvernig birtast menntarannsóknir í opinberri umræðu? „Einn aðili sem hefur til þessa skilað auðu“ Telur ESA falla frá málsókn ef Alþingi samþykkir frumvarpið Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Tvöfalda makrílráðgjöf Ragnar Þór vissi ekkert og meirihluti karla vill ekki refsa fyrir vændiskaup Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Í mál gegn Íslandi fyrir vanefndir á bókun 35 Ein vél Fljótsdalsstöðvar úti „Ég er ógeðslega reiður“ Sjá meira