Lögreglumanni vikið úr starfi: Dró sér 15 milljónir úr sjóði íslenskra leikara Atli Ísleifsson skrifar 17. mars 2015 07:45 Ákærði starfaði sem lögreglumaður en brot hans tengdust ekki lögreglunni eða störfum hans hjá embættinu á nokkurn hátt. Vísir/Getty/Pjetur
Lögreglumanni á Vestfjörðum hefur verið vikið úr starfi eftir að upp komst að hann hafði dregið sér alls 15,5 milljón króna úr sjóðum Félags íslenskra leikara á fjórtán ára tímabili. Í ákæru kemur fram að maðurinn, sem er á sextugsaldri, hafi sem stjórnarmaður Söngvarasjóðsins í Reykjavík, sem er undirsjóður innan 6. deildar Félags íslenskra leikara, millifært af reikningi Söngvarasjóðsins yfir á eigin reikning 14,4 milljónir og reikning hans og móður sinnar rúma eina milljón króna. Maðurinn nýtti féð í eigin þágu. Færslurnar úr sjóðnum voru alls 113 talsins þar sem sú fyrsta var gerð um mitt ár 2000 og sú síðasta árið 2013. Millifærslurnar námu allt frá 1.500 krónum til 695 þúsund króna. Í ákæru er þess krafist að hann verði dæmdur til greiðslu alls sakarkostnaðar. Félag íslenskra leikara krefst skaðabóta úr hendi ákærða að fjárhæð 15.484.865 króna með dráttarvöxtum.Lét af störfum hjá lögreglu þegar upp komst um málið Hlynur Snorrason, yfirlögregluþjónn á Vestfjörðum, staðfestir í samtali við Vísi að lögreglumaður sem starfaði í liðinu, með starfsstöð á Hólmavík um tíma, hafi verið kærður fyrir auðgunarbrot síðla árs í fyrra. „Í framhaldi kærunnar var gert samkomulag við lögreglumanninn um að hann léti af störfum strax, það var í desember síðastliðnum.“ Hlynur tekur fram að meint brot mannsins hafi ekki tengst lögreglunni eða störfum hans hjá embættinu á nokkurn hátt. Birna Hafstein, formaður Félags íslenskra leikara, segir í samtali við Vísi að margar ástæður séu fyrir því að ekki hafi komist upp um málið fyrr. Nú sé málið þó komið í hendur lögreglu þar sem það muni hafa sinn gang. Birna vildi ekki tjá sig frekar um málið. Málið verður þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur síðar í þessum mánuði.
Mest lesið Skilti sem átti að fæla burt ferðamenn hefur öfug áhrif Innlent Prófessor sakaður um ritstuld fannst látinn Erlent Gerir aðra atlögu að Lagarfljóti um helgina Innlent „Við hefðum viljað samráð frekar en samtal“ Innlent Sögusagnir farið af stað þegar hann sást á fundinum Innlent Önnur lestin af sporinu á innan við sólarhring Erlent „Klukkan tifar“ Innlent Íbúar flúðu undan tónlistarhátíð Bjarkar Innlent Flaggskip kólumbíska sjóhersins býður almenningi um borð Innlent Bændur í baráttuhug á leið í herferð um landið Innlent Fleiri fréttir Gerir aðra atlögu að Lagarfljóti um helgina „Klukkan tifar“ Skilti sem átti að fæla burt ferðamenn hefur öfug áhrif „Við hefðum viljað samráð frekar en samtal“ Bændur í baráttuhug á leið í herferð um landið Flaggskip kólumbíska sjóhersins býður almenningi um borð Enginn marktækur munur á jáurum og neiurum ESB-barátta, hiti meðal kennara og vændisskilti í Suðursveit Forsetahjónin halda til Eistlands Ökumaður á sjúkrahús eftir slys á Fljótsheiði Sögusagnir farið af stað þegar hann sást á fundinum Auglýsingar FM95BLÖ kostuðu Sýn tvær milljónir Bændur segja nei Ólafur Þór má rannsaka hlut Jóns Óttars í Samherjamálinu Skipar Eirík og Hildi sem landsréttardómara Landrisi í Öskju er lokið Nú má heita Hugríkur Húrinn og Aelía Rúa Ótímabært að hugsa um áhrif mögulegs verkfalls á sjúkraflug „Ég veit nákvæmlega hvar ég ætla að vera tólfta ágúst 2045“ „Þjóðin á rétt á að vita“ Þriggja milljarða vatnslögn skemmd: Gæti tekið tvö ár að fá nýja „Í þessu máli þá sat viðkomandi ekki skemur í fangelsi vegna lagabreytingarinnar“ „Bjór var drukkinn á Íslandi áður en Alþingi leyfði það“ Best að vera ekki með stórar yfirlýsingar Dómari kannar aðbúnað barna í vist á einkaheimilum Dómsmálaráðherra svarar gagnrýni á reynslulausn Uppsögn kjarasamninga geti verið óhjákvæmileg Rafmagnslaust í Mosfellsdal Vara við vasaþjófum á Norðurlandi eystra Rökræddi við rabbínann: „Hann er vanur heimssviðinu og ég er gómur á plani“ Sjá meira