Þurfum tíma í jafn flókin mál svavar hávarðsson skrifar 1. apríl 2015 08:15 Jón Gunnarsson
Jón Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og formaður atvinnuveganefndar, vonar að veiðigjaldafrumvörpin verði með fyrstu málum sem koma á dagskrá þingsins eftir páska – málið sé einfaldlega það stórt að engan tíma megi missa. Ljóst sé að þegar umsagnarferlinu lýkur komi það fyrst til kasta nefndarinnar sem gæti þá orðið undir lok apríl. „Ég hefði kosið að hafa rýmri tíma fyrir mál sem eru í augljósum ágreiningi, en það er ekkert annað í boði,“ segir Jón. Inntur eftir fréttaflutningi um málið, segir Jón það ofmat að túlka orð hans svo að honum finnist veiðigjöldin allt of há. „Kannski hafa svör mín verið loðin, en enginn áfellisdómur á hugmyndunum sem í frumvörpunum birtast felst í því. Málið er einfaldlega þannig vaxið að við eigum eftir að fara í alla vinnuna í þessu. Þetta hefur fengið takmarkaða kynningu á vettvangi stjórnarflokkana, og það á við um mig sem aðra, svo við höfum fengið takmarkaðan tíma til að rýna í þetta og gera okkur grein fyrir hvernig þetta liggur,“ segir Jón og bætir við að í viðtölum sínum við sjómenn úti um land hafi hann heyrt þau sjónarmið að hækkað veiðigjald kæmi þeim illa. Eins séu vondar fréttir af mörkuðum, ekki síst í Rússlandi, okkar helsta kaupanda makrílafurða. „Það eru svo mörg sjónarmið í þessu að það er vont að hafa svo lítinn tíma sem raun ber vitni.“
Mest lesið Segir erfitt að horfa upp á nágranna missa aleiguna Erlent „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Innlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Rúmlega 50 heimili horfin í stórbruna í Drammen Erlent Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent „Galið að komast að þessari niðurstöðu“ Innlent Maðurinn sem sóttur var í Glerárdal er látinn Innlent Halldór Árni Sveinsson er látinn Innlent Bongóblíða um nánast allt land og rofar til í borginni um stund Veður Fleiri fréttir „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Kvöldfréttir Sýnar í beinni Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Sveitarfélögin óþreyjufull og krefjast svara frá ráðherrum Fiskibátur varð aflvana við Stykkishólm Vegabréfsgjaldið hækkaði um fimm þúsund milli ára „Galið að komast að þessari niðurstöðu“ Krefjast lögbanns við laxveiðum Iðufólks í Stóru-Laxá Telur bikblæðingu hafa valdið brunanum Fólk eigi að hugsa sig tvisvar um ef því er ekki hleypt inn á heimilið Þyrla Gæslunnar kölluð út á Landmannaleið Segir gríðarlegt álag á miðakaupendum í sumar Vilji til að framlengja ETS sérlausn og hvalveiðar brutu ekki gegn lögum Íslendingur reyndi að smygla milljónum í reiðufé frá Grænlandi Maðurinn sem sóttur var í Glerárdal er látinn Hálftíma dauðastríð ekki talið brot á lögum um velferð dýra Halldór Árni Sveinsson er látinn Atli sagður milliliðurinn í Straumsvíkurmálinu Krefjast tæps milljarðs af félagi Bergþórs Minnstu munaði að harður árekstur yrði: „Hefði ég ekki bremsað væri hann dáinn“ Maður á áttræðisaldri dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir nauðgun Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Þyrla og björgunarsveitir kallaðar út í Eyjafirði „Imprað á því að við séum ekki baðhús og verðum aldrei baðhús“ „Ég væri hikandi að hafa börnin mín hjá mér“ Bæjarstjóri í beinni, gusumeistari sem biðlar til yfirvalda og sirkus Vísað á brott af hjúkrunarheimilinu í annarlegu ástandi Sjá meira