Fleiri nálgunarbannsbeiðnir viktoría hermannsdóttir skrifar 1. apríl 2015 07:30 Síðan átakið hófst hefur verið tilkynnt um fleiri heimilisofbeldismál til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. NORDICPHOTOS/Getty „
Við erum klárlega að sjá fleiri mál. Þetta skilar sér líka í aukinni tiltrú almennings á verkefninu, við erum að fá fleiri tilkynningar,“ segir Alda Hrönn Jóhannsdóttir, aðstoðarlögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu. Þann 12. janúar síðastliðinn var sett í gang sameiginlegt átak lögreglu, velferðarsviðs og Barnaverndar gegn heimilisofbeldi og hefur tilkynningum um heimilisofbeldismál fjölgað um helming á mánuði síðan. Í átakinu fólst að verklagi lögreglu var breytt, aukin áhersla lögð á málin strax í upphafi þegar lögregla er kölluð til. „Við einbeitum okkur að því, tökum myndir á vettvangi, af áverkum, reynum að fá sem réttastan framburð. Rannsakandi kemur á vettvang, auk Barnaverndar og félagsþjónustu. Við erum að grípa fyrr inn í og fylgjum málum betur eftir,“ segir Alda. Nálgunarbönnum hefur verið beitt í meiri mæli í takt við aukinn fjölda mála að sögn Öldu. Hæstiréttur staðfesti í síðustu viku ákvörðun lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu um að maður skyldi sæta brottvísun af heimili og nálgunarbanni við eiginkonu sína og son hennar í fjórar vikur. Áður hafði Héraðsdómur Reykjavíkur hafnað kröfu lögreglustjórans.Alda Hrönn jóhannesdóttirAlda segir þetta mál ekki vera einsdæmi. Í janúar felldi Hæstiréttur úr gildi þrjá nálgunarbannsúrskurði lögreglustjórans. Alda segir lögregluna hafa lært af þeim málum og rökstyðji nú nálgunarbannsúrskurði betur. Farið hefur verið fram á fleiri nálgunarbannsúrskurði en hefur verið áður síðan átakið fór í gang. „Það kemur sjálfkrafa – þegar við komum af meira afli í málin á fyrri stigum þá höfum við meiri upplýsingar sem gerir okkur kleift að átta okkur betur á málum og málavöxtum. Og getum tekið ákvarðanir um þessar þvingunarráðstafanir. Við erum að rökstyðja málin betur og sögu þeirra sem í hlut eiga. Við erum að vinna málin betur, við erum alltaf að læra og með auknum málafjölda þá eru dómstólar líka að fá aukna þekkingu.“ Fréttablaðið sagði frá því í síðustu viku að annasamt hefði verið í Kvennaathvarfinu undanfarið og sagði Sigþrúður Guðmundsdóttir, framkvæmdastýra athvarfsins, að rekja mætti fjöldann til átaksins. Um 20 dvelja þar nú, bæði konur og börn. Hins vegar sé líka aukning hjá þeim sem dvelja þar í skamman tíma og það sé vegna þess að lögregla sé að beita hinni svokölluðu austurrísku leið í meiri mæli, það er þegar ofbeldismaðurinn er fjarlægður af heimilinu, ekki þolandinn.
Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Innlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent Tilkynnt um ölvaðan flugmann Innlent Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði Innlent Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Innlent Fleiri fréttir Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði ESA geti ekki beðið endalaust Valgerður réttir fram sáttahönd Vill að Daði vísi til þess sem hún á að hafa sagt Tilkynnt um ölvaðan flugmann Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Konan sem lögreglan lýsti eftir er fundin Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Gera alvarlegar athugasemdir við málflutning Daða Skoðar uppfærslu í 36 sæta rafflugvél Neysla geðrofs-, tauga- og ofnæmislyfja stóraukist Dæmdur fyrir manndráp af gáleysi við Vík Innan við helmingur karla vill refsingar fyrir vændiskaup Árásin rannsökuð sem tilraun til manndráps Bein útsending: Hvernig birtast menntarannsóknir í opinberri umræðu? „Einn aðili sem hefur til þessa skilað auðu“ Telur ESA falla frá málsókn ef Alþingi samþykkir frumvarpið Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Tvöfalda makrílráðgjöf Ragnar Þór vissi ekkert og meirihluti karla vill ekki refsa fyrir vændiskaup Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Í mál gegn Íslandi fyrir vanefndir á bókun 35 Ein vél Fljótsdalsstöðvar úti „Ég er ógeðslega reiður“ Kröpp og djúp lægð og varasamar vindhviður Sjá meira