25 kílómetra eftirför: Mældist á 170 kílómetra hraða og reyndi að stinga af Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 14. júlí 2015 15:43 Leið mannsins eftir miðnætti aðfaranótt sunnudags. Stöðvaði hann bílinn sjálfur skammt vestan við afleggjarann upp í Galtalæk. Kort/Loftmyndir.is
Tæplega þrítugur karlmaður var handtekinn aðfaranótt sunnudags á þjóðvegi eitt, skammt vestan við afleggjarann upp í Galtalæk. Hafði maðurinn þá gefist upp eftir að hafa reynt að stinga af lögreglu sem mælt hafði manninn langt yfir hámarkshraða skammt austan við Selfoss. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Suðurlandi mældist maðurinn á 170 km/klst hraða við Tún, rétt austan við Selfoss og sinnti ekki tilmælum lögreglu um að stöðva bílinn. Ók hann sem leið lá austur á þjóðvegi eitt. Maðurinn var handtekinn um eittleytið aðfaranótt sunnudags og yfirheyrður í kjölfarið. Hann er grunaður um að hafa verið undir áhrifum vímuefna við aksturinn. Mildi má þykja að ekki urðu slys á 25 kílómetra langa vegakaflanum þar sem maðurinn reyndi að stinga lögreglu af. Nokkuð var um aðra bíla á þjóðveginum og braut ökumaðurinn fjölmörg umferðarlög á leiðinni.
Mest lesið Grunaður hraðbankaþjófur nennti ekki með austur nóttina örlagaríku Innlent Mannskæð skotárás í skóla í Bandaríkjunum Erlent Glímdi við veikindi fyrir andlátið sem breyttu persónuleika hans Innlent Ekki séð neitt þessu líkt á sínum fjörutíu ára ferli Innlent Til skoðunar að flytja Sjálfstæðisflokkinn úr Valhöll Innlent Stefna Open AI vegna sjálfsvígs sonarins Erlent Supu hveljur á fundi með ráðherra á Egilsstöðum Innlent Er við góða líkamlega heilsu en heilinn að „bregðast honum“ Erlent Gátu ekki opnað hraðbankann þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir Innlent Raðsundlaugarkúkari gengur laus í Oulu Erlent Fleiri fréttir Hafna „órökstuddum fullyrðingum“ Sigurðar Inga Þyrlan kölluð út vegna slasaðs manns í Gemludal Menningarráðherra skipaði son heilbrigðisráðherra í formannsstörf Vara við svikapóstum í þeirra nafni Bylting framundan en Landspítalinn þurfi að hlaupa hraðar Faðir plokksins kenndi ráðherra að plokka Gátu ekki opnað hraðbankann þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir Kári Stefánsson í beinni, erfiður hraðbanki og Dönum ekki skemmt Óttuðust um ferðamenn sem sátu fastir í Markarfljóti Glímdi við veikindi fyrir andlátið sem breyttu persónuleika hans Hraðbankaþjófur játar sök Framlengja gæsluvarðhald yfir leiðbeinandanum um fjórar vikur Supu hveljur á fundi með ráðherra á Egilsstöðum Grunaður hraðbankaþjófur nennti ekki með austur nóttina örlagaríku Með mikla áverka og mjög kaldur þegar hann fannst Móðirin áfram í haldi og húsleit á Írlandi Til skoðunar að flytja Sjálfstæðisflokkinn úr Valhöll Losun Íslands jókst á öllum sviðum og langt í land með skuldbindingar Bylting í heilbrigðisþjónustu og áróður Bandaríkjamanna Vilja halda leiðbeinandanum áfram bak við lás og slá Kynna drög að nýrri stefnu í heilbrigðismálum Ekki séð neitt þessu líkt á sínum fjörutíu ára ferli Innbrot og slagsmál í miðborginni Segir dóminn áfellisdóm yfir seinagangi lögreglu í kynferðisbrotamálum Málafjöldi tvöfaldast milli ára: „Hálfur milljarður farinn nú þegar“ Heilbrigðisráðuneytið færir sig um set Enginn vilji taka ábyrgð á því hvenær eigi að loka Reynisfjöru Minntust þess ekki að hafa brennt tösku fyrir Stefán Blackburn Sakar eftirlitsaðila um að framfylgja ekki leigubílalögum Játaði Hamraborgarmálið, grunaður í hraðbankamálinu og vitni í Gufunesmálinu Sjá meira