Krefjast þess að framkvæmdir við Hrólfsskálamel verði stöðvaðar Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 27. ágúst 2015 14:00 Framkvæmdir við húsbygginguna hófust fyrir skömmu en hvítu blokkirnar sem sjást á myndinni standa við Austurströnd. vísir/ernir
Íbúar við Austurströnd 2-14 á Seltjarnarnesi telja að uppbygging á reit við Hrólfsskálamel 1-5 sé ekki í samræmi við gildandi deiliskipulag bæjarins. Bærinn hefur samþykkt að á reitnum verði byggðar 34 íbúðir en Páll Kristjánsson, lögmaður, sem gætir hagsmuna íbúa við Austurströnd 2-14, hefur sent úrskurðarnefnd umhverfis-og auðlindamála bréf þar sem þess er krafist að framkvæmdir á reitnum verði stöðvaðar strax.Telja byggingu of háa miðað við núverandi deiliskipulag Að sögn Páls hafa íbúarnir ekkert við það að athuga að uppbyggingin sem slík fari fram á reitnum við Hrólfsskálamel. Athugasemdir þeirra snúa að því að húsið sé of stórt en í núverandi deiliskipulagi Seltjarnarness er meðal annars kveðið á um að byggingar á svæðinu skulu að mestu vera þrjár hæðir og inndregnar og stallaðar. „Með þeim hætti er áhrif á útsýni, birtu og annað slíkt skertar með sem minnstum hætti fyrir efstu hæðir Austurstrandar 2-14. En það er ljóst að miðað við fyrirliggjandi samþykktar teikningar hjá bænum og miðað við þau áform sem liggja fyrir þá er verulega farið út fyrir núverandi deiliskipulag. Byggingin er hærri; í staðinn fyrir að vera að mestu leyti þrjár hæðir þá er hún fimm hæðir að stærstu leyti og þá er ekki heldur gert ráð fyrir að efstu hæðir séu inndregnar eða stallaðar.“ Páll segir ljóst af þeim gögnum sem liggja fyrir að rísi byggingin með þessum hætti mun það hafa veruleg áhrif á birtu og útsýni við Austurströnd 2-14.Málið getur dregist um allt að ár hjá úrskurðarnefnd „Þá finnst manni líka alvarlegt að hvergi í gögnum málsins eru nokkrar rannsóknir á áhrif vinds eða annað slíkt. Við þekkjum það nú að rokið fer óvenju hratt yfir á Seltjarnarnesi stundum og það virðast engar mælingar liggja fyrir um hvaða áhrif þessi bygging mun hafa.“ Það liggur fyrir að það geti dregist um allt að ár að úrskurðarnefnd umhverfis-og auðlindamála kveði upp úr í málinu. Þess vegna hefur Páll farið fram á að framkvæmdir verði stöðvaðar strax til bráðabirgða með úrskurði nefndarinnar. Hann segir kröfuna vissulega geta verið erfiða og íþyngjandi fyrir byggingaraðilann en hún taki einfaldlega mið af löngum afgreiðslutíma nefndarinnar. Seltjarnarnesbær þarf að bregðast við kröfunni fyrir klukkan 16 á morgun. Haft er eftir Þórði Ó. Búasyni, skipulags-og byggingarfulltrúa bæjarins, í Morgunblaðinu í dag að bærinn muni færa rök fyrir sjónarmiðum sínum með bréfi til úrskurðarnefndarinnar. Þá segir hann að bærinn muni una úrskurði nefndarinnar.
Mest lesið Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Erlent Vilja formlega afsökun frá Selenskí Erlent Tilkynnt um tvær líkamsárásir Innlent Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Erlent Skil næstu lægðar nálgast Innlent Fleiri fréttir Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Umdæmin mishrifin af fækkun embætta Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Buxnalaus Lalli olli glundroða Þyrlan sótti slasaðan knapa Sjá meira