Klofningur meðal framhaldsskólakennara Þorbjörn Þórðarson skrifar 19. febrúar 2015 18:57
Klofningur er í stjórn Félags framhaldsskólakennara um nýtt vinnumat sem greidd verða atkvæði um í næstu viku. Verði vinnumatið fellt verða kjarasamningar framhaldsskólakennara lausir. Upptaka nýs vinnutímakerfis framhaldsskólakennara, svokallaðs „vinnumats“, verður borin undir sameiginlega atkvæðagreiðslu í Félagi framhaldsskólakennara (FF) og Félagi stjórnenda í framhaldsskólum (FS) mánudaginn 23. til föstudagsins 27. febrúar.Stjórn stéttarfélagsin klofin Vinnumatið, sem kynnt var í byrjun febrúar, er vægast sagt umdeilt meðal framhaldsskólakennara og hefur valdið klofningi í stéttarfélaginu, þ.m.t. í stjórn þess. Þrír aðalmenn eru fylgjandi vinnumatinu (Guðríður Arnardóttir, Hanna Björg Vilhjálmsdóttir og Reynir Þór Eggertsson) og tveir á móti því (Guðný Lára Petersen og Kjartan Þór Ragnarsson) auk þess sem báðir varamennirnir eru á móti vinnumatinu (Helga Helena Sturlaugsdóttir og Sigríður Ragna Birgisdóttir). Þetta hefur komið fram í lokuðum Facebook hópi framhaldsskólakennara þar sem fólk tjáir sig undir nafni. Baldur J. Baldursson trúnaðarmaður kennara hjá Tækniskólanum er einn þeirra sem er ósáttur. „Það má segja að kennarar almennt séu ósáttir við hversu ógagnsætt vinnumatið er. Það er mjög flókið reikniverk á bak við matið sem enginn veit hvað kemur út úr fyrir víst. Meira að segja eftir að kennsla er hafin, þegar komið er inn á önn, þá vita menn ekki hvað kemur út úr því fyrr en eftir umtalsverðan tíma. Annað gagnrýnivert er að þetta er mikið millifærslukerfi. Að nafninu til fá allir sömu launahækkun en síðan verður sumum gert að auka vinnuframlag sitt til að geta staðið undir auknum kjarabótum til annarra umfram þessa grunnhækkun sem allir fá,“ segir Baldur sem hvetur kennara til að fella vinnumatið.Segir gagnrýni byggða á misskilningi Guðríður Arnardóttir, formaður Félags framhaldsskólakennara, segir gagnrýni Baldurs byggða á misskilningi. „Hver einasti kennari, burtséð frá því hvaða starfshlutfall hann er með, mun fá 9,3 prósenta launahækkun ofan á sín grunnlaun 1. maí verði nýja vinnumatið samþykkt. Það er ekki verið að fara fram á meiri vinnu en fólk er að leggja af mörkum í dag og þá skiptir engu hvaða námsgreinar fólk kennir. Það sem nýja vinnumatið tekur aftur á móti til er nemendafjöldi. Það er ákveðin mæling á vinnu vegna hvers nemenda sem eðlilega hækkar eftir því sem nemendur verða fleiri. Í tímum talið þá reiknast fleiri tímar í vinnumati fyrir stærri hópa,“ segir Guðríður. Verði vinnumatið fellt í atkvæðagreiðslunni í næstu viku verða kjarasamningar framhaldsskólakennarar lausir og semja þarf upp á nýtt.
Mest lesið Fríska upp á kjarnorkumannvirki í laumi Erlent Sinueldur við Framheimilið Innlent „Framsókn styður ekki bókun 35“ Innlent Íhugar að leggja á sykurskatt Innlent Meiri hætta á ferðum vegna rýrnunar jökla Innlent Happdræti Háskólans varar við svikurum Innlent „Eins og handboltaþjálfari sem er á bekknum“ Innlent Drápu þúsundir í „fordæmalausri“ ofbeldisöldu Erlent „Það gekk alls konar á en ég er sátt við mína kosningabaráttu“ Innlent „Ég er heppin að hafa ekki brotnað“ Innlent Fleiri fréttir Happdræti Háskólans varar við svikurum Íhugar að leggja á sykurskatt „Framsókn styður ekki bókun 35“ Meiri hætta á ferðum vegna rýrnunar jökla Sinueldur við Framheimilið Ritari og varaformaður kjörnir: Báðar Liljur utan þings Gómaður með hamar, hnífa og þýfi „Eins og handboltaþjálfari sem er á bekknum“ „Það gekk alls konar á en ég er sátt við mína kosningabaráttu“ Lilja Alfreðsdóttir er nýr formaður Framsóknarflokksins Áþreifanleg eftirvænting eftir nýja formanninum Formaður Bændasamtakanna hefur aldrei orðið hræddur við tré „Erfitt fyrir formann að taka við sitjandi utan þings“ Bein útsending: Lilja formaður eftir spennandi flokksþing „Við erum áratugum of sein“ „Margt jákvætt að gerast en allir á tánum“ Mikil spenna fyrir formannskjör Framsóknarflokksins „Ég er heppin að hafa ekki brotnað“ Öryggi, heilbrigðismál, Evrópa og efnahagur á Sprengisandi Tölvuárás á Grund: Afrituðu gögn um tugi þúsunda manns Rósin segir sig úr fulltrúaráði Samfylkingarinnar Ný samræmd próf lögð fyrir Framsókn þurfi að þora að svara rangfærslum og hálfsannleik popúlista „Hrækjandi drullu eins og maður sé að steypa án grímu“ Kjartan er kominn heim til Íslands Aldrei fleiri útskrifast frá Bifröst Gagnrýnir hversu seint og illa endurreisn Grindavíkur gengur Íslendingar stemmningsfólk sem taki öllum gleðidögum fagnandi Bein útsending: Sigurður Ingi ávarpar Framsóknarmenn í síðasta sinn sem formaður Segir einkaðila ekki hafa fengið svör í marga mánuði Sjá meira