Skattkortin verða stafræn Þórhildur Þorkelsdóttir skrifar 1. ágúst 2015 20:00
Stefnt er að því að notkun skattkorta verði hætt um næstu áramót en sérstakur starfshópur vinnur nú að því að setja persónuafslátt á rafrænt form. Starfandi ríkisskattstjóri segir skattkortin verða barn síns tíma. Skattkortið hefur verið notað frá árinu 1988, eða frá upptöku núverandi tekjuskattkerfis en rafræn stjórnsýsla hefur einfaldað líf margra til muna síðustu ár. Ríkisskattstjóri lagði til við fjármálaráðuneytið í byrjun árs að notkun skattkorta yrði hætt um næstu áramót, og var í kjölfarið settur á laggirnar starfshópur um að afnema skattkort. Hópurinn vinnur nú hörðum höndum að verkefninu og mun skila af sér niðurstöðum með haustinu. „Að sumu leyti er þetta barn síns tíma. Við erum að hverfa út úr þessu pappírsþjóðfélagi sem við vorum í fyrir þrjátíu árum og inn í nýja tíma,“ segir Steinþór Haraldsson starfandi ríkisskattstjóri. En málið er flóknara en það virðist í fyrstu. Tæknileg lausn liggur fyrir en það þarf að endurskoða lög um staðgreiðslu svo hægt sé að hætta notkun skattkorta í núverandi mynd. Vonast er til að frumvarp sem heimilar breytinguna verði lagt fram innan tíðar. „Ég held að lausnin verði sú að við tökum upp rafrænt skattkort, eða rafrænan persónuafslátt innan skamms. Við stefnum að því að þetta verði komið inn á hvert borð áður en langt um líður,“ segir Steinþór.
Mest lesið Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Innlent Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir Innlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Erlent Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Erlent Fleiri fréttir Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Einum sleppt úr gæsluvarðhaldi og tveir eftir Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Ekið á hjólreiðamann í Kópavogi Reykjanesbraut verður lokað vegna framkvæmda Fella niður rannsókn vegna E. coli-sýkingar á Mánagarði Ný göngubrú vígð Íslenskar jökulár úr geimnum Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Fluttur með þyrlu á slysadeild eftir slys í tengivirki Ekki ákveðið hvort lagareldisfrumvarpið verði endurflutt Símafrí sett en PISA sýnir engin skýr tengsl við betri námsárangur Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Harðari tónn en áður hafi verið sleginn Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Sjá meira