Silungur úr eldi á land úr fjórum veiðiám Svavar Hávarðsson skrifar 28. maí 2015 10:45 Stærri fiskurinn ber eldisupprunans greinileg merki á sporði og uggum. mynd/orri
Regnbogasilungur hefur veiðst á skömmum tíma í fjórum veiðiám á Norðurlandi og Vestfjörðum. Ljóst er að um íslenskan eldisfisk er að ræða. Fyrir skemmstu veiddist regnbogasilungur í Eyjafjarðará, en hún er ein þekktasta bleikjuveiðiá landsins. Um helgina veiddist einnig regnbogasilungur í Fljótaá, og heimildir Fréttablaðsins greina einnig frá regnboga veiddum í Lambagilsá við Dýrafjörð síðasta haust og í Fnjóská í fyrrasumar. Orri Vigfússon, formaður Verndarsjóðs villtra laxastofna, hefur Fljótaá á leigu í gegnum félagið Veiðiklúbb Íslands. Hugmynd félagsins og bænda í Fljótunum er að byggja upp grunnstofna árinnar, en Fljótaá er ein gjöfulasta bleikjuveiðiá á Íslandi, auk þess sem þar veiðist vel af stórvöxnum laxi. Orri segir fréttir af regnbogasilungi staðfesta að varnaðarorð eru sannarlega ekki úr lausu lofti gripin. Fyrir þá sem vilja byggja upp veiðiperlu á náttúrulegum stofnum, eins og í Fljótaá, geti eldisfiskur verið bein ógn við stofnana svo ekki sé talað um höggið sem ímynd viðkomandi veiðivatns fær við aðskotafisk sem þennan. Ímynd ánna stafi bein ógn af því ef silungur og lax úr eldi veiðist ítrekað, eins og nýleg dæmi bendi til að verði þróunin. Ekkert er staðfest um uppruna regnbogasilunganna sem veiðst hafa í fyrra og undanfarna daga. Fiskurinn úr Fljótaá hefur verið sendur til rannsóknar hjá Veiðimálastofnun.
Mest lesið Sindri Freyr er látinn Innlent Voru látin í einhvern tíma áður en lögregla fór inn Innlent Biður kvikmyndagerðarmanninn afsökunar Innlent Tvö látin en ekkert bendi til saknæms atburðar Innlent „Okkar hlutverk að halda utan um hvert annað“ Innlent Mótor bátsins var of stór og mennirnir ekki í björgunarvestum Innlent Vill kvittanir frá framboði Höllu Innlent Áfengi og fíkniefni mældust í stýrimanninum Innlent Lögregla rannsakar andlát í Bolungarvík Innlent Áhyggjur læknanna ótímabærar og byggðar á misskilningi Innlent Fleiri fréttir Katrín græði stórum á vangetu kjósenda til að kjósa taktískt Andlát í Bolungarvík og forsetaefni í slorinu Héraðsdómur ruddur vegna fjölskyldutengsla og fyrri starfa dómara Áfengi og fíkniefni mældust í stýrimanninum Tvíburafolöld mætt í heiminn í Suðurnesjabæ Ferðafólki bjargað úr sjálfheldu við Þiðriksvallavatn Þriðjungur þekkir ekki neitt til Eiríks og Viktors Sindri Freyr er látinn Voru látin í einhvern tíma áður en lögregla fór inn Vill sjá leiðtoga á Norðurlöndunum en ekki aumingja og gungur Mótor bátsins var of stór og mennirnir ekki í björgunarvestum Óttast að þvingun og nauðung verði færð í lög Andlát til rannsóknar í Bolungarvík Áhyggjur læknanna ótímabærar og byggðar á misskilningi Ástandið í Hafnarfirði geti haft langvarandi áhrif á börn „Okkar hlutverk að halda utan um hvert annað“ Ræddu lokasprett æsispennandi kosningabaráttu Biður kvikmyndagerðarmanninn afsökunar Tvö látin en ekkert bendi til saknæms atburðar Enginn í haldi í tengslum við mannslát í Bolungarvík Slökkvilið kallað út vegna sprenginga í Hafnarfirði Lögregla rannsakar andlát í Bolungarvík Vill kvittanir frá framboði Höllu Baráttan um Bessastaði gæti orðið gífurlega spennandi Háspennubilun í Breiðholti Gæti haft gríðarlega þýðingu fyrir Ísafjörð Tafir á Miklubraut í sumar vegna framkvæmda Huldumaður bað um skóflu, límband, hanska og kúbein Soffía er nýr skólameistari FSu Forsetakosningar, kjaradeilur og hundrað kílómetra ganga Sjá meira