Launin í skólabækur og aðrar nauðsynjar Ingibjörg Bára Sveinsdóttir skrifar 28. maí 2015 12:00 Yfir tveir þriðju hlutar ungmenna sem vinna með skóla nota vetrarhýruna sína sem vasapening. VÍSIR/GVA „
Verulegur hluti framhaldsskólanema sem vinnur með námi notar launin til að borga fyrir skólabækur og innritunargjöld auk sumra annarra nauðsynja. Mér finnst hafa verið lítil umræða um hvaða áhrif breytingar á framhaldsskólanum hafi á möguleikana til vinnu með námi. Möguleikar á sumarvinnu gætu líka skerst. Ætla stjórnvöld til dæmis að greiða hærri barnabætur?“ spyr Margrét Einarsdóttir félagsfræðingur. Við vinnslu doktorsverkefnis síns skoðaði Margrét tengsl stöðu foreldra við launavinnu 13 til 17 ára ungmenna, við umfang bæði sumarvinnu og vinnu með skóla. Spurningalisti var lagður fyrir 2.000 manna tilviljunarúrtak í þjóðskrá árið 2008. Rétt tæpur helmingur 13 til 17 ára íslenskra ungmenna vinnur með skóla. Um fjórðungur notar að minnsta kosti hluta launanna í brýnar nauðsynjar. Tveir þriðju hlutar framhaldsskólanema vinna með skóla og tæpur helmingur þess hóps notar launin í brýnar nauðsynjar, þar á meðal í skólabækur og skólagjöld. „Niðurstöðurnar sýna að börn foreldra sem hafa minni menntun eru yngri þegar þau byrja í sumarvinnu og líklegri til að vinna mikið með skóla. Þau eru jafnframt líklegri til að nota vetrarlaunin í brýnar nauðsynjar heldur en börn sem eiga báða foreldra með háskólamenntun,“ greinir Margrét frá. Hún segir ástæðu til að spyrja hvort íslenska velferðarkerfið styðji ekki nógu vel við ungt skólafólk fjárhagslega. Margrét bendir á að hafa verði í huga að menntunarstaða foreldra sé aðeins óbeinn mælikvarði á efnahagslega stöðu þeirra. Vert sé að benda á að rannsóknin hafi verið gerð þegar mikil þensla var í íslensku efnahagslífi og börn og unglingar áttu greiðan aðgang að vinnu. Því sé brýnt að gera frekari rannsóknir á tengslum launavinnu ungmenna og stöðu foreldra þar sem horft sé á fleiri breytustærðir, m.a. á hjúskaparstöðu og tekjur foreldra. Vinna barna og unglinga hefur verið í hávegum höfð á Íslandi, að því er Margrét tekur fram. „Mörg íslensk ungmenni hafa vinnu aldurshópsins líka í hávegum. Þau leggja áherslu á rétt sinn til vinnu auk þess sem hún gefi þeim möguleika á að létta undir með foreldrum sínum. Út frá slíkri sýn má líta á niðurstöður rannsóknarinnar jákvæðum augum. Rannsóknin staðfestir hins vegar neikvæð tengsl milli mikillar vinnu með skóla og námsárangurs.“
Mest lesið Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Innlent Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Innlent Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Hló að svari sambýliskonunnar Innlent Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Innlent Fleiri fréttir Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Lögmenn fagna niðurstöðu EFTA-dómstólsins Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Umferðarslys við Nýbýlaveg í Kópavogi Gæsluvarðhald sonar þingmannsins aftur framlengt Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Hló að svari sambýliskonunnar Tilboð hrikalega hátt yfir kostnaðaráætlun Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Möguleg tengsl við heilabilun Skora á borgina að afturkalla uppsagnir á samningum við listamenn Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn „Enn ein vondu tíðindin af þessu máli“ Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Verðbólga, uppsagnir og mikil notkun svefnlyfja Forstjórar leita lausna Fulltrúi prentara vill verða forseti ASÍ Sýklalyfjanotkun í dýrum jókst um rúm tuttugu prósent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ „Dýr geta augljóslega ekki sjálf leitað réttar síns“ Segir upp eftir tvær vikur í starfi Lægð upp að landinu og önnur dýpri á morgun Tólf með réttarstöðu sakbornings vegna andláts á Stuðlum Einn stöðvaður sem var að „drifta“ á hringtorgi Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Sjá meira