Kannast ekki við heimilislækninn Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 28. maí 2015 15:21 Katrín Jakobsdóttir veltir því fyrir sér hvort verið sé að ýta fólki út úr Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. vísir/gva
Fjöldi fólks fær nú bréf frá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins þar sem því er tjáð að það sé skráð með tvo heimilislækna, annars vegar hjá heilsugæslunni og svo hjá sjálfstætt starfandi heimilislækni. Á meðal þeirra sem fengið hafa slíkt bréf er Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri grænna, en hún greinir frá þessu á Facebook-síðu sinni í gær: „Í dag fékk ég bréf sem segir mér að ég og börnin séum skráð með tvo heimilislækna, téðan heimilislækni og annan mann sem ég hef aldrei heyrt minnst á (og ekki segjast synirnir þekkja hann)! Síðan kemur á stofnanamáli tilkynning að um „að einfalda eigi skráninguna“ og að ef ég andmæli ekki innan tiltekins tímafrests verði ég færð frá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins (þar sem eini læknirinn sem ég kannast við að sé minn læknir er staðsettur) yfir til hins aðilans (vafalaust ágætur en aldrei heyrt hann né séð) sem er sjálfstætt starfandi utan heilsugæslustöðva. Best að setjast niður og andmæla [...] – en bréfið hljómar vissulega eins og ýta eigi manni út úr Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins.“ Í athugasemdum við færslu Katrínar segja fleiri frá því að þeir hafi fengið svipað bréf, þar á meðal Eiður Svanberg Guðnason, Eiríkur Bergmann og Kristinn Hrafnsson sem segir: „Ég hélt að þetta væri grín og hunsaði bréfið. Álíka og að hið opinbera tilkynnti manni sjálfkrafa skráningu í Hvítasunnusöfnuðinn nema því sé andmælt innan tímafrests. Hver hefur svona brenglaðan húmor?“Ekki verið að ýta fólki yfir í einkarekstur Svanhvít Jakobsdóttir, forstjóri Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, þvertekur fyrir í samtali við Vísi að verið sé að bola fólki út úr heilsugæslunni og til lækna sem starfa utan hennar og hafa samning við Sjúkratryggingar Íslands. „Það sem er í gangi er að í dag er töluvert um tvískráningar og í raun og veru er bara verið að taka til í þessu þannig að sjúklingar séu bara með einn heimilislækni skráðan. Fólk þarf bara að láta vita hjá hvaða lækni það vill vera,“ segir Svanhvít. Varðandi þann tímafrest sem fólki er gefinn til að láta vita, annars missi það sinn heimilislækni, og færist yfir í hitt kerfið segir Svanhvít: „Það er ekkert vandamál ef fólk bregst ekki við bréfinu strax. Þó að það bregðist ekki við innan þessara tímamarka þá er því bara velkomið að hringja og þá er það allt leiðrétt. Þetta snýst því ekki um að reyna að ýta neinum yfir í einkarekstur. Við erum líka að reyna að tryggja mönnun og að sem flestir geti haft fastan heimilislækni þannig bara að fólk sé ekki tvískráð.“ Svanhvít segist ekki kunna skýringar á því hvers vegna fólk sé skráð með tvo heimilislækna án þess að vita af því. Sjúkratryggingar verði að svara því en ekki hefur náðst í Steingrím Ara Arason, forstjóra Sjúkratrygginga vegna málsins.
Mest lesið Stigmögnun í nágrannaerjum: „Hann vildi keyra á mig“ Innlent Gengst nú við skilaboðunum umdeildu Innlent Hægt að nálgast vottorð um að makinn hafi rangt fyrir sér Innlent „Enda ekki í nokkru einasta ástandi til að vera meðal fólks“ Innlent „Það átti að taka mig í karphúsið“ Innlent Árásarmaðurinn svartklæddi reyndist vera ættingi Innlent Selenskí undir miklum þrýstingi Innlent „Einhver SA prins mættur til að láta sem allt sé bara kózý“ Innlent Játaði meira og meira eftir því sem á leið Innlent Trump fer í fýlu og dregur boð sitt til Carney til baka Erlent Fleiri fréttir „Enda ekki í nokkru einasta ástandi til að vera meðal fólks“ Árásarmaðurinn svartklæddi reyndist vera ættingi Stigmögnun í nágrannaerjum: „Hann vildi keyra á mig“ Gengst nú við skilaboðunum umdeildu Hægt að nálgast vottorð um að makinn hafi rangt fyrir sér Um 900 manns nú með lögheimili í Grindavík „Það átti að taka mig í karphúsið“ Selenskí undir miklum þrýstingi Tímamótaviðræður hafnar og ögurstund hjá Samfylkingunni Eldur í sendibíl á Miklubraut Arnar Grétarsson í stjórnmálin Gjörbreytt Langahlíð fyrir milljarð Segist ekki muna eftir að hafa sent skilaboðin „Einhver SA prins mættur til að láta sem allt sé bara kózý“ Endurtekin og alvarleg mál valda áhyggjum Hiti færist í leikinn: „Frægur karl með enga reynslu“ Samfylkingarmönnum í Reykjavík fjölgað um 72 prósent Heimilisofbeldismálin alvarlegri en áður og fundað um Úkraínu í Abu Dhabi Svona var Pallborðið með Heiðu Björgu og Pétri Játaði meira og meira eftir því sem á leið Fann innbrotsþjófinn sofandi á heimilinu Nú geta íbúar skráð sjálfir hvað megi betur fara í borginni „Þetta er svolítið óvenjulegt, ég er ekki á þingi“ Landsleikir á vinnutíma fela í sér tækifæri Pétur vill leiða Viðreisn í Kópavogi Kom ekki á teppið Landsvirkjun hyggst bjóða út alla verkþætti Hvammsvirkjunar í ár Lilja sækist eftir því að leiða Framsókn Willum fer ekki fram og styður Lilju Foreldrarnir vissu ekki af kynferðisofbeldinu Sjá meira