Handtekinn á grænu reiðhjóli á Grensásvegi 28. maí 2015 18:32 Maðurinn var í stolnum fatnaði, á stolnu reiðhjóli, þegar hann var handtekinn. vísir/pjetur
Tveir menn voru í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag dæmdir í fangelsi fyrir þjófnað og tilraun til fjársvika. Annar þeirra, sem er á fertugsaldri, var dæmdur í sjö mánaða fangelsi og hinn, sem er á fimmtugsaldri í fimm mánaða fangelsi. Mönnunum var gefið að sök að hafa í nóvember í fyrra brotist inn í hús við Langagerði á meðan húsráðandi svaf og stolið þaðan riffli, þremur farsímum og öðrum raftækjum, fatnaði, verkfærum og öðru lauslegu. Þá eru þeir sagðir hafa gert tilraun til að stela þremur fartölvum og tösku með myndavél og linsu. Þá var sá yngri ákærður fyrir að hafa í október í fyrra stolið tveimur úlpum starfsmanna í matvöruversluninni Þinni verslun við Seljabraut og úlpu þriðja aðila en í henni voru einhver verðmæti, meðal annars greiðslukort sem hann reyndi að nota á bensínstöð. Einnig var hann ákærður fyrir að hafa hinn 21. nóvember í fyrra brotist inn í hús og stolið þaðan ferðatöskum og fatnaði, þar á meðal peysu sem hann var í við handtöku. Þennan sama dag stal hann grænu reiðhjóli sem hann notaði til að hjóla á lögreglustöðina við Grensásveg þar sem hann var handtekinn. Báðir eiga mennirnir töluverðan sakaferil að baki en sá yngri hefur alls 34 sinnum verið dæmdur fyrir brot á almennum hegningarlögum, umferðarlögum, vopnalögum og lögum um ávana- og fíkniefni.
Mest lesið „Það er norskur sigur í dag“ Innlent Kolbeinn Sigþórsson ákærður fyrir brot gegn barnungri stúlku Innlent Íslendingur í gæsluvarðhaldi vegna Hamraborgarmálsins Innlent Halla vill skikka ungmenni í samfélagsþjónustu Innlent Samþykktu verkfallsaðgerðir á Keflavíkurflugvelli Innlent Betra að fá óþægilegu málin fram fyrr en seinna Innlent Útimarkaðurinn í Mosó hættir Innlent Búinn að skila inn undirskriftum eftir „óvenjulegan“ frest Innlent Ný skoðanakönnun á morgun og Pallborð klukkan 14 Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Fleiri fréttir Katrín efst en Jón hrynur í nýrri könnun Papa's Pizza, verkföll flugvallarstarfsmanna og óvæntur forsetaframbjóðandi Kolbeinn Sigþórsson ákærður fyrir brot gegn barnungri stúlku Framboð Viktors Traustasonar er gilt Hárgreiðslustóll ekki hættulegt tæki og konan fær engar bætur Afkoma borgarinnar versnar um níu milljarða króna milli ára Samþykktu verkfallsaðgerðir á Keflavíkurflugvelli Útimarkaðurinn í Mosó hættir Atli Þór ráðinn til Pírata: „Við ætlum að koma flokknum í ríkisstjórn“ Biðlistinn á Stígamótum styttist í fyrsta sinn í þrjú ár Ný skoðanakönnun á morgun og Pallborð klukkan 14 Áfram landris og óvissa um framhaldið Tryggja þurfi tímabundin afnot náttúruauðlinda í stjórnarskrá Búinn að skila inn undirskriftum eftir „óvenjulegan“ frest „Það er norskur sigur í dag“ Grindvíkingar opna bakarí og veitingastað á ný Bakarí og veitingastaður opna í Grindavík á ný Friðrik skipaður sendiherra í Póllandi Halla vill skikka ungmenni í samfélagsþjónustu Íslendingur í gæsluvarðhaldi vegna Hamraborgarmálsins Betra að fá óþægilegu málin fram fyrr en seinna Eldur í ruslageymslu í Hafnarfirði Seinni umferð biskupskjörs hefst á hádegi í dag Icelandair flýgur til Færeyja að nýju Stutt í næsta gos komi til gosloka „Það er hart sótt að okkar fólki“ Háskólanemar halda lautarferð og stofna hreyfingu fyrir Palestínu Jarðhræringar á Reykjanesi, flug til Færeyja og verkalýðsdagurinn Úrskurðurinn felldur úr gildi Vill hinn almenna launamann á þing Sjá meira