Vatnauðlindina þarf að nýta betur Linda Blöndal skrifar 22. mars 2015 19:30
Íslendingar hafa margfalt meiri aðgang að fersku vatni en önnur Norðurlönd. Þó er landið eftirbátur þeirra þegar kemur að frárennslismálum og er átaks þörf þar segir forstjóri Umhverfisstofnunar og aukin meðvitund um vatnsauðlindina er nauðsynleg. Alþjóðlegur dagur vatnsins er í dag. Milljarður hefur ekki aðgang að góðu vatni.Hreint vatn og öruggur aðgangur að því er grundvallarlífsskilyrði og oft nefnt bláa gullið. Á degi vatnsins er vakin athygli á því á margvíslegan hátt á hverju ári að undirlagi Sameinuðu þjóðanna. Alþjóða heilbrigðismálastofnunin gefur út að hver þurfi að lágmarki 20 lítra af vatni á dag til neyslu og hreinlætis. Hins vegar er talið að um 1,1 milljarður af um 6 milljörðum jarðarbúa hafi ekki aðgang að heilnæmu vatni.Tvö hundruð lítrar í sturtunniMeðvitund um hve mikið vatn við notum í daglegar athafnir er ekki mjög almenn. Með því að sturta niður í klósettinu getur allt að 14 lítrar af hreinu vatni þurft og tíu mínútna sturta tekur 200 lítra, svo fá dæmi séu nefnd. Kristín Linda Árnadóttir, forstjóri Umhverfisstofnunar segir þetta kalla á ábyrgð. „Þegar maður á stóra auðlind þá ber maður líka ábyrgð. Okkar er ábyrgðin að halda þessari auðlind stórri og góðri til framtíðar og það er ljóst að ef það verða mengunarslys nálægt okkar vatnsbólum þá getur það haft gríðarlega slæmar afleiðingar fyrir okkur. Þetta er allta sama hugmyndin um að við eigum ekki að sóa heldur nýta vel og bera virðingu fyrir auðlindum okkar", sagði Kristín Linda á Stöð 2.Viljum gera betur með auðlindinaUm 532 þúsund rúmmetrar eru af vatni á hvern einstakling á Íslandi miðað við þrjá rúmmetra á hvern mann í Danmörku. Íslendingar hafa margfalt meiri aðgang að hreinu vatni en það þýðir þó ekki að eitthvað megi teljast sóun á hreinu vatni að mati Kristínar Lindu. „Við erum auðvitað að nota vatnsauðlindina til að taka við mengun og hjá Íslendingum eru skólpmálin því miður ekki komin eins langt og við vildum sjá það og það er ákveðin sóun á vatnsauðlindinni". Átak í skólpmálum„Í okkar dreifðari byggðum erum við ekki komin nógu langt. Það er alveg ljóst að við þurfum að fara í ákveðið átak, eins og við Mývatn þar sem við höfum áhyggjur af skólpmálum. Þetta er verkefni sem við verðum að fara í", sagði Kristín Linda.
Mest lesið Sjötugur maður tapað hundrað og átta milljónum til fjárkúgara Innlent Hótar tollum vegna skógareldanna Erlent „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Innlent Yfir hundrað íbúðir gjörskemmdar Erlent Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Innlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Ekki með tök á eldinum og slökkviliðsstjóri hljóp á sig Erlent Mótorhjól og bíll skullu saman Innlent Segir erfitt að horfa upp á nágranna missa aleiguna Erlent Fleiri fréttir Slasaðist alvarlega við heyskap Stórbruni í Drammen og dularfull staða moskítóflugunnar Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Sjötugur maður tapað hundrað og átta milljónum til fjárkúgara Brotist inn í þrjá gáma og dýr verkfæri tekin ófrjálsri hendi Mótorhjól og bíll skullu saman „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Kvöldfréttir Sýnar í beinni Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Sveitarfélögin óþreyjufull og krefjast svara frá ráðherrum Fiskibátur varð aflvana við Stykkishólm Vegabréfsgjaldið hækkaði um fimm þúsund milli ára „Galið að komast að þessari niðurstöðu“ Krefjast lögbanns við laxveiðum Iðufólks í Stóru-Laxá Telur bikblæðingu hafa valdið brunanum Fólk eigi að hugsa sig tvisvar um ef því er ekki hleypt inn á heimilið Þyrla Gæslunnar kölluð út á Landmannaleið Segir gríðarlegt álag á miðakaupendum í sumar Vilji til að framlengja ETS sérlausn og hvalveiðar brutu ekki gegn lögum Íslendingur reyndi að smygla milljónum í reiðufé frá Grænlandi Maðurinn sem sóttur var í Glerárdal er látinn Hálftíma dauðastríð ekki talið brot á lögum um velferð dýra Halldór Árni Sveinsson er látinn Atli sagður milliliðurinn í Straumsvíkurmálinu Krefjast tæps milljarðs af félagi Bergþórs Minnstu munaði að harður árekstur yrði: „Hefði ég ekki bremsað væri hann dáinn“ Maður á áttræðisaldri dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir nauðgun Sjá meira