Innlent

Fyrirtæki innan SA hafa ekki sjálfstætt samningumboð

Heimir Már Pétursson skrifar
Framkvæmdastjóri SA segir samtökin vera að skoða hvort nýlegur kjarasamningur Verkalýðsfélags Akraness við Snók sé gildur.
Framkvæmdastjóri SA segir samtökin vera að skoða hvort nýlegur kjarasamningur Verkalýðsfélags Akraness við Snók sé gildur. vísir/gva
Samtök atvinnulífsins telja að nýgerður kjarasamningur Verkalýðsfélags Akraness við fyrirtækið Snók sé ógildur ef um almennan kjarasamning er að ræða. Almennt afsali fyrirtæki sér samningumboðið með aðild sinni að samtökunum.

Aðalsteinn Baldursson formaður verkalýðsfélagsins Framsýnar á Húsavík greindi frá því í fréttum Bylgjunnar í gær að nokkur fyrirtæki innan Samtaka atvinnulífsins fyrir norðan hefðu óskað eftir því að gera kjarasamning við félagið á þeim nótum sem kröfur Starfsgreinasambandsins byggja á.

Þorsteinn Víglundsson framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins segist ekki vita um neitt fyrirtæki á Norðurlandi innan samtakanna, sem vilji gera sérsamning.

„Almennt er staðan sú að þegar fyrirtæki ganga í Samtök atvinnulífsins framselja þau samningsumboð sitt til samtakanna. Þar af leiðandi hafa í raun og veru samningar sem gerðir eru beint við einstök verkalýðsfélög að hálfu viðkomandi fyrirtækja ekki gildi. Það er líka alveg ljóst að fyrirtæki sem hafa gert slíkt í gegnum tíðina  hafa oft bakað sér meiri vandræði en sá vandi sem þau eru að reyna að leysa hefur valdið þeim,“ segir Þorsteinn.

Hinn 17. mars skrifaði Verkalýðsfélag Akraness undir kjarasamning til fimm ára við við verktakafyrirtækið Snók á Akranesi  sem felur í sér að laun þar verði tengd við launavísitölu og hækki með henni. Þessi samningur er eini kjarasamningur fyrirtækis innan Samtaka atvinnulífsins sem framkvæmdastjóri samtakanna veit af að gerður hafi verið án aðkomu samtakanna. Þorsteinn segir Samtök atvinnulífsins vera að skoða þennan samning.

„Það er ekkert flókið að staða fyrirtækja, standi þau ein gegn verkalýðshreyfingunni, er mjög veik. Ef þú ert með 90 prósenta þátttöku í verkalýðsfélögum og vel skipulagða verkalýðshreyfingu þar sem eru þá sérfræðingar þá sérfræðingar í gerð kjarasamninga. Þess vegna hafa fyrirtæki valið að vera innan okkar raða,“ segir Þorsteinn.

Yrði þá Snókur að ganga úr samtökunum ef það vildi að samningurinn héldi gildi sínu? Eða hvernig virkar þetta?

„Eins og ég segi, við erum bara að skoða með hvaða hætti þessi samningur var gerður. Við höfum ekki tekið afstöðu til þess hvernig á því yrði tekið,“ segir Þorsteinn.

En þið teljið að samningurinn sé ekki gildur?

„Það er alveg ljóst að ef um hefðbundinn kjarasamning er að ræða milli fyrirtækis innan Samtaka atvinnulífsins og Verkalýðsfélags Akraness, þá er hann ekki gildur þar sem samningumboðið liggur hér,“ segir Þorsteinn Víglundsson.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×