Grunaður um ítrekaðar árásir en barnsmóðirin féll frá kröfu um nálgunarbann Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 6. maí 2015 10:02 Maðurinn og konan eiga tvö börn saman. Vísir/Getty
Hæstiréttur hefur staðfest úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur um að fella úr gildi ákvörðun lögreglustjórans í Reykjavík um nálgunarbann á hendur manni sem grunaður er um endurteknar árásir á barnsmóður sína. Konan féll sjálf frá beiðni um nálgunarbann og þótti bæði Héraðsdómi og Hæstarétti lögreglan ekki uppfylla þær heimildir sem til þurfi til að fá fram nálgunarbann að eigin frumkvæði. Ekki kemur fram í dómnum hvers vegna konan óskaði ekki lengur eftir nálgunarbanni. Áður hafði Hæstiréttur ómerkt nokkurra daga gamlan dóm Héraðsdóms Reykjavíkur í sama máli þar sem ekki þótti ljóst hvort konan hefði dregið fram kröfu sína um nálgunarbann til baka eður ei.Eiga tvö börn saman Í dómi héraðsdóms kemur fram að konan og maðurinn eigi tvö börn saman og hafi verið í sambúð þar til í febrúar í fyrra. Í dómnum eru rakin tilfelli þar sem maðurinn er grunaður um að hafa lagt hendur á konuna og haft í hótunum við hana. Er hann meðal annars grunaður um að hafa ráðist á konuna þann 22. apríl síðastliðinn. Lögreglan var þá kölluð að heimili konunnar en maðurinn á að hafa ráðist á hana þar sem hún var inni í bílnum sínum.Kastaði konunni til og frá í bílnum Sagði konan við lögreglu að hún hefði verið inn í bílnum þegar maðurinn kom þangað inn. Á hann að hafa kastað konunni til og frá í bílnum með þeim afleiðingum að „hún hefði skollið með höfuðið í harða hluti í bifreiðinni.“ Þá hafi maðurinn jafnframt haldið um hálsinn á henni svo hún átti erfitt með andardrátt og kýlt hana í höfuðið. Konan sýndi lögreglunni skilaboð sem hún fékk frá manninum á Facebook kvöldið áður þar sem hann segir við hana „nú stoppar mig ekkert.“ Tvö vitni urðu að árás mannsins á konuna. Sagði annað þeirra við lögreglu að það hefði séð að maðurinn var búinn að spenna konuna á milli framsætanna í bílnum. Hann hafi þrýst konunni í gólfið og var að berja hana. Vitnið stöðvaði manninn og tók hann út úr bílnum sem flúði af vettvangi.Rifbeinsbrot og líflátshótanir Konan leitaði á slysadeild í kjölfar árásarinnar en hún rifbeinsbrotnaði og hlaut yfirborðsáverka á hálsi og höfði. Í dómi héraðsdóms eru jafnframt rakin tvö önnur tilvik á seinustu þremur vikum þar sem lögregla hafi verið kölluð til vegna ofbeldis af hálfu mannsins í garð konunnar. Þá á hann jafnframt að hafa haft í hótunum við hana, meðal annars líflátshótunum. Þá er rifjað upp eldra mál frá apríl 2014 þar sem konan kom á lögreglustöð og kærði heimilisofbeldi. Í það skiptið sagði hún manninn hafa lagt á sig hendur og hótað því að brjótast inn til hennar og kveikja í fötum hennar. Héraðsdómur féllst ekki á kröfu lögreglunnar og var Hæstiréttur sama sinnis. Nánar um dómana hér.
Mest lesið Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Erlent Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Innlent Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Innlent Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Lögmenn fagna niðurstöðu EFTA-dómstólsins Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Innlent Fleiri fréttir Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Lögmenn fagna niðurstöðu EFTA-dómstólsins Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Umferðarslys við Nýbýlaveg í Kópavogi Gæsluvarðhald sonar þingmannsins aftur framlengt Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Hló að svari sambýliskonunnar Tilboð hrikalega hátt yfir kostnaðaráætlun Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Möguleg tengsl við heilabilun Skora á borgina að afturkalla uppsagnir á samningum við listamenn Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn „Enn ein vondu tíðindin af þessu máli“ Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Verðbólga, uppsagnir og mikil notkun svefnlyfja Forstjórar leita lausna Fulltrúi prentara vill verða forseti ASÍ Sýklalyfjanotkun í dýrum jókst um rúm tuttugu prósent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ „Dýr geta augljóslega ekki sjálf leitað réttar síns“ Segir upp eftir tvær vikur í starfi Lægð upp að landinu og önnur dýpri á morgun Tólf með réttarstöðu sakbornings vegna andláts á Stuðlum Einn stöðvaður sem var að „drifta“ á hringtorgi Sjá meira