Dæmi um að börn forðist sturtuferðir vegna ótta við myndatökur Lillý Valgerður Pétursdóttir skrifar 21. janúar 2015 20:46
Sífellt yngri börn eru komin með snjallsíma og eru dæmi um að börn allt niður í annan bekk í grunnskóla séu að fara óvarlega á netinu. Verkefnastjóri hjá SAFT segir ókunnuga oft nota þessa tækni til að nálgast börn sem oft skorti hyggjuvit til að nota á hana rétt. Samstarfshópurinn „Náum áttum" stóð fyrir fundi í dag þar sem snjalltækjanotkun barna og unglinga var rædd og þá sérstaklega út frá skólastarfi. Einn þeirra sem fylgist vel með snjallsímanotkun barna er Björn Rúnar Egilsson verkefnastjóri hjá Heimili og skóla og hélt hann erindi í dag. Hann segir þróunina hraða og sífellt yngri börn vera komin með snjalltæki til umráða.Málin hjá sífellt yngri krökkum „Síðustu ár vorum við aðallega beðin að koma og tala við unglingabekkina en núna eru skólarnir að átta sig á því að yngri og yngri börn eru að fá þessi snjalltæki og koma með þau í skólann þannig að núna hefur áherslan aðallega verið hjá okkur að fræða sjötta og sjöunda bekk,“ segir hann. „Það eru allskonar mál að koma upp. Alveg niður í fjórða, þriðja og jafnvel annan bekk þar sem kannski krakkar eru að fara óvarlega á netinu og það hefur alvarlegar afleiðingar.“ Hann segir börnin oft lenda í erfiðum aðstæðum á netinu. Sum þeirra hafi til að mynda nýtt sér app sem heitir Chatroulette þar sem þau lenda í myndbandspjalli við einhvern handahófskenndan sem þau vita ekkert um. „Mjög mörg börn lent í því að ókunnugir séu að reyna að hafa samband við þau og fylgjast með þeim á netinu, kannski þá einhver sem enginn í jafningjahópnum eða fjölskyldunni kannast við,“ segir Björn. Þekkja ekki mörkin „Svo eru líka að koma upp myndbirtingarmál þar sem verið er að taka myndir í leyfisleysi. Við höfum jafnvel heyrt af því að krakkar þori ekki lengur að fara í sturtu í leikfimi af því að þeir eru hræddir um að einhverjir muni taka af þeim mynd,“ segir hann og bætir við að birtingarmyndir snjalltækjanotkunar vera margar. „Þó svo að þau kunni betur á tæknina heldur en foreldrarnir þá þýðir það ekki að þau hafi nógu mikið hyggjuvit til að nota hana rétt og á ábyrgan hátt. Þannig þau gera sér ekki alveg grein fyrir því að hvað sé í lagi að deila á netinu, hverskonar myndir er í lagi að senda og hvað sé í lagi að segja við aðra og um aðra á netinu,“ segir Björn.Vill að foreldrar kynni sér málið Linda Heiðarsdóttir, aðstoðarskólastjóri Laugalækjarskóla, skorar á foreldra að kynna sér hvað krakkarnir eru að gera í snjallsímanum. „Það er ekkert að því að foreldri fái að vita hvaða öpp eru á skjáborðinu,“ segir hún og segir sjálfsagt að spyrja hvað öppin gera. „Við erum að sjá kannski að málin sem eru að koma til okkar eru að breytast. Mál sem eru að koma upp í skólanum tengjast gjarnan samfélagsmiðlunum. Það er þá ábyrgð okkar að taka þátt í því að leysa málin, setja okkur inn í málin í málin, þannig að við þurfum að vera upplýst um hvað krakkar eru að gera á netinu,“ segir hún. „En það er ekki síður foreldranna líka og það er eiginlega það sem við erum búin að vera að gera síðan í haust, að vera með fræðslu fyrir foreldrana, auka fræðslu til nemenda, auka samstarfið við félagsmiðstöðina, af því þau fá oft aðrar upplýsingar en við og koma til okkar, sem við getum síðan komið til foreldra,“ segir hún.
Mest lesið Dánarorsök Ozzy Osbourne ljós Erlent Segja upp og draga úr útgáfu: Óvissan í rekstrinum „því miður aukist mikið“ Innlent Trúa varla að tollahækkanirnar séu að skella á Innlent Handtekin fyrir ölvunarakstur eftir grænt ljós frá löggunni Innlent Lax ofan Stuðlagils gæti hafa veiðst lengst frá sjó á Íslandi Innlent Gagnrýndur fyrir að nota gervigreind í embættisstörfum Erlent Neyddur til að taka ketamín og sjónvarpi kastað í höfuð hans Innlent Herða öryggisreglur eftir slysið: „Þetta hafa verið mjög erfiðir dagar“ Innlent Flugeldum kastað að fólki á Akureyri Innlent Boðar „norsku leiðina“ í útlendingamálum Innlent Fleiri fréttir Segja upp og draga úr útgáfu: Óvissan í rekstrinum „því miður aukist mikið“ Lax ofan Stuðlagils gæti hafa veiðst lengst frá sjó á Íslandi Trúa varla að tollahækkanirnar séu að skella á Til skoðunar að hafa mannskap við vöktun í Reynisfjöru Herða öryggisreglur eftir slysið: „Þetta hafa verið mjög erfiðir dagar“ Flugeldum kastað að fólki á Akureyri Handtekin fyrir ölvunarakstur eftir grænt ljós frá löggunni Ráðstafanir í Reynisfjöru, tollar og lax á sjaldséðum slóðum Boðar fund um tolla Trumps og ESB Rauða ljósið mun blikka fyrr Enn má búast við gosmóðu þó eldgosinu sé lokið í bili Flutti lítra af kókaínvökva til landsins gegn greiðslu „Samstaða skapar samfélag“ er þema Hinsegin daga Strangari reglur og ný gjaldskrá til að „tempra kraftmikla fólksfjölgun“ Neyddur til að taka ketamín og sjónvarpi kastað í höfuð hans Tollar Trumps muni hafa tilætluð áhrif Sendir „dylgjur“ Haralds aftur til föðurhúsanna Allt bendir til þess að eldgosinu sé lokið Vörubifreið ekið á vegfarandann Útlendingamálin, Reynisfjara og Hinsegin dagar Ferðamenn gangi á eigin ábyrgð til leiks við náttúru Íslands Ekið á gangandi vegfaranda við Kaplakrika Boðar „norsku leiðina“ í útlendingamálum Mjög lítil virkni en mallar enn Reyndist ekki borgunarmaður fyrir vikudvölinni Ekki stóra málið hvað við köllum „leyniþjónustuna“ Þýskir klettaklifrarar slógust í hóp með björgunarmönnum Vill að maðurinn viðurkenni að hann sé ekki faðir drengsins Íbúar á gömlum og fallegum dráttarvélum í Hrísey Þrettán kærðir fyrir ölvunarakstur og hundruð stöðvuð vegna hraðaksturs Sjá meira