Viðræðum í tvígang hætt án niðurstöðu sveinn arnarsson skrifar 9. mars 2015 07:00 Verði framkvæmdin að veruleika gæti það þýtt um 120 ný störf. Umhverfismat liggur ekki fyrir.
Faxaflóahafnir, Hafnasamlag Norðurlands, Hörgársveit og Atvinnuþróunarfélag Eyjafjarðar hafa ekki séð forsendur fyrir því að fyrirtækið TS-Shipping geti sett upp starfsemi á þeirra svæðum með það fyrir augum að rífa niður skip í brotajárn. Nú er Dalvíkurbyggð í viðræðum við fyrirtækið.Þorvaldur Lúðvík SigurjónssonGísli Gíslason, hafnarstjóri Faxaflóahafna, segir viðræður við fyrirtækið ekki hafa farið langt. „Við ræddum aldrei beint við fyrirtækið heldur lögfræðing þess. Þetta fyrirtæki var að okkar mati svolítið höfuðlaust og við sáum ekki forsendur til að halda áfram viðræðum,“ segir Gísli. Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson, framkvæmdastjóri Atvinnuþróunarfélags Eyjafjarðar (AFE), virðist hafa sömu sögu að segja af fyrirtækinu. AFE leiddi viðræður við TS-Shipping að beiðni Hafnasamlags Norðurlands og Hörgársveitar árið 2012 og gerði jafnframt athugun á fyrirtækinu.Gísli Gíslason„Þessar þreifingar áttu sér stað um nokkurra mánaða skeið og fólu í sér fundarhöld sveitar- og hafnarstjórna við TS-Shipping. Eftir nokkra vinnu var undirrituð viljayfirlýsing af hálfu yfirvalda hér, en hún var aldrei undirrituð af hálfu fyrirtækisins,“ segir Þorvaldur Lúðvík. Einnig var ekki á hreinu hvernig fjármögnun yrði háttað. „Á haustmánuðum varð það því niðurstaða okkar að verkefnið væri ekki komið nægilega langt til þess að ástæða væri til að taka það lengra. Fjármögnun og áætlanir voru um margt á huldu og heyrðum við ekki frekar frá þeim á þeim tímapunkti,“ segir Þorvaldur Lúðvík. Bjarni Th. Bjarnason, sveitarstjóri Dalvíkurbyggðar, segir bæjarfélagið verða að snúa vörn í sókn. „Þessar viðræður okkar við fyrirtækið eru ekki komnar langt á veg. Dalvíkurbyggð er í ákveðinni varnarbaráttu og við þurfum að efla atvinnulíf á svæðinu“ segir Bjarni.
Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Innlent Á spítala eftir misheppnaða aftöku Erlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Innlent Tilkynnt um ölvaðan flugmann Innlent Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði Innlent Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Innlent Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Innlent Fleiri fréttir „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Flutningabíll valt á Þverárfjallsvegi sem er lokaður Lægðin grynnist í dag en von á annarri Bíl ekið á ljósastaur Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði ESA geti ekki beðið endalaust Valgerður réttir fram sáttahönd Vill að Daði vísi til þess sem hún á að hafa sagt Tilkynnt um ölvaðan flugmann Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Konan sem lögreglan lýsti eftir er fundin Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Gera alvarlegar athugasemdir við málflutning Daða Skoðar uppfærslu í 36 sæta rafflugvél Neysla geðrofs-, tauga- og ofnæmislyfja stóraukist Dæmdur fyrir manndráp af gáleysi við Vík Innan við helmingur karla vill refsingar fyrir vændiskaup Árásin rannsökuð sem tilraun til manndráps Bein útsending: Hvernig birtast menntarannsóknir í opinberri umræðu? „Einn aðili sem hefur til þessa skilað auðu“ Telur ESA falla frá málsókn ef Alþingi samþykkir frumvarpið Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Tvöfalda makrílráðgjöf Ragnar Þór vissi ekkert og meirihluti karla vill ekki refsa fyrir vændiskaup Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Sjá meira