Innlent

Ísland í dag: Sagði frá kynferðisofbeldi á leikskóla sínum en málið fellt niður

Bjarki Ármannsson skrifar
Árið 2002 lýsti hin næstum því fjögurra ára Birta Ósk Friðbertsdóttir því fyrir foreldrum sínum hvernig starfsmaður á leikskóla hennar beitti hana kynferðislegu ofbeldi. Þrátt fyrir greinargóðar lýsingar hennar á því sem gerðist þótti vanta sannanir og málið var látið niður falla. Birta er nú sextán ára og hún sagði sögu sína í þætti kvöldsins af Íslandi í dag.

Anna María Halldórsdóttir, móðir Birtu.Vísir
„Helvíti á jörð“

„Ég held að þetta sé án efa það erfiðasta sem ég hef gengið í gegnum,“ segir Anna María Halldórsdóttir, móðir Birtu, í fréttaskýringaþættinum Kompási á Stöð 2 árið 2008. „Ég held að ég geti sagt alveg með hreinni samvisku að þetta er helvíti á jörð.“

Fram kom í þeim þætti að Birta sagði móður sinni frá atburðunum við kvöldmatarborðið.

„Við erum að fara að byrja að borða þegar hún byrjar bara að hágráta og segist alls ekki vilja fara meira í leikskólann. Við verðum hissa og ég spyr hvað sé að. Þá lýsir hún því hvernig henni er misþyrmt af þessum starfsmanni á mjög slæman hátt, kynferðislega.“

Starfsmaðurinn sem um ræðir hafði verið einn á vakt með Birtu milli eitt og fimm þennan dag. Anna María hafði samband við leikskólastjórann strax næsta dag og hann ákvað að yfirheyra meintan geranda sjálfur.

„Ég segi, er þetta það sem er gert?“ segir Anna María. „Hvað er í gangi? Ég hringi í Barnahús og fæ þar viðtal við konu, sem ég álit að sé sú eina í öllu kerfinu sem hefur reynst mér vel.“

Anna María hafði samband við leikskólastjórann og spurði hvort hann gerði sér grein fyrir því að hann væri að brjóta lög með því að tilkynna ekki um málið. Það hafi verið síðustu samskiptin þeirra á milli. Stuttu síðar var Birtu úthlutaður réttargæslumaður og öll fjölskyldan yfirheyrð.

„Við kærum og hann neitar,“ segir Anna María. „Hann er tekinn þrisvar sinnum í yfirheyrslu og neitar staðfastlega.“

Málið var látið niður falla vegna þess að þótti vanta sannanir. Framburður Birtu fyrir skýrslutökum var þó afdráttarlaus og skýr að sögn móður hennar, sem segir fjögurra ára barn ekki hafa hugarflug í að skálda svona frásögn.

Birta er í dag sextán ára og nemandi við Verslunarskóla Íslands.Vísir
Segir ósanngjarnt hvernig tekið var á máli sínu

Birta er í dag sextán ára og nemandi við Verslunarskóla Íslands.

„Þetta var rosalega erfitt fyrst en svo náði ég að vinna úr þessu með foreldrum mínum og systkinum,“ segir Birta í Íslandi í dag í kvöld. Aðspurð hvort hún muni mikið eftir atburðinum segir lykt og liti og þvíumlíkt sitja eftir í undirmeðvitundinni.

„Ég man rosalega vel eftir hárlitnum á gerandanum og hvernig mér leið á þessum tíma,“ segir hún. „Ef mér er kalt og ég er ein einhversstaðar úti, þá hugsa ég um þetta. Það minnir mig á þetta.“

Hún segir ósanngjarnt hvernig tekið er á kynferðisofbeldismálum hér á Íslandi.

„Ég var mjög skýr í skýrslutöku,“ segir Birta, en í skýrslu sem hún veitti í Barnahúsi í nóvember árið 2002 lýsir hún því meðal annars hvernig maðurinn hafi „potað í pjölluna“ á henni „með typpinu.“

„Ég sagði hreint út frá þessu. Þess vegna tel ég ekki hafa verið rétt unnið úr þessu máli.“

Sjá má viðtal Íslands í dag við Birtu í heild sinni í spilaranum hér fyrir ofan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×